Neytendablaðið - 01.03.2004, Qupperneq 16
í maí árið 2002 birti írska neytendablað-
ið Consumer Choise grein eftir Alan
Dooley sem bar yfirskriftina „Specified
illness cover" og fjallar greinin um ýmis-
legt sem tengist sjúkdómatryggingum.
Þrátt fyrir að greinin sé ekki alveg ný
af nálinni er í henni komið inn á ýmis
áhugaverð atriði sem ritstjórn Neyt-
endablaðsins telur að eigi erindi við
neytendur á íslandi.
Hvað er sjúkdómatrygging?
Sjúkdómatrygging tryggir vátryggingar-
taka greiðslu á tiltekinni peningaupphæð
greinist hann með sjúkdóm sem fellur
undir skilmála tryggingarinnar. Sjúk-
dómatryggingar er tiltölulega ný tegund
trygginga og þegar orðin mjög algeng.
Frá sjónarhóli neytandans eru ýmis
vandamál þeim tengd, svo sem vegna
flókins eðlis sjúkdóma, notkunar á lækn-
isfræðilegum hugtökum í skilmálum og
erfiðleikum á samanburði sjúkdóma-
tryggingum ólíkra tryggingafélaga.
Hvers vegna sjúkdómatryggingu?
Þær fullyrðingar sem helst eru notaðar
til að selja sjúkdómatryggingar eru að
tryggingin geti:
• greitt dagleg útgjöld fjölskyldunnar
• greitt lækniskostnað og læknismeð-
ferð
• greitt niður skuldir
• greitt fyrir breytingar á húsnæði, til
dæmis ef þörf er á hjólastól
• staðið straum af tekjutapi í veikindum
og á meðan bata er náð
• greitt fyrir heimilishjálp í veikindum
HvaÖa sjúkdómar falla undir sjúk-
dóma tryggingu ?
Mjög breytilegt getur verið eftir trygg-
ingafélögum hvaða sjúkdómar falla
undir sjúkdómatryggingu, sérstaklega
hjá erlendum tryggingafélögum. Sam-
kvæmt lauslegri athugun Neytendasam-
takanna virðast skilmálar þeirra þriggja
íslensku vátryggingafélaga sem bjóða
upp á eigin sjúkdómatryggingar vera
nánast samhljóða en hjá öllum félögun-
um er að finna lista með sömu 16 sjúk-
dómunum sem falla undir trygginguna.
Neytendasamtökin gerðu ekki könnun
á skilmálum erlendra tryggingafélaga en
samkvæmt Consumer Choise er algeng-
ast að sjúkdómatryggingar tilgreini á milli
6 og 30 sjúkdóma sem falla undir þær.
Fyrir hinn almenna neytanda getur verið
mjög erfitt að skilja lista sjúkdómatrygg-
inganna yfir sjúkdóma sem menn eru
tryggðir fyrir og þar af leiðandi er allur
samanburður á þessum tryggingum mjög
erfiður. Hvernig á til dæmis að ákveða
hvort kaupa eigi sjúkdómatryggingu
sem tryggir gegn motor neuron disease
(MND) eða multiple sclerosis (MS)? Vita
neytendur endilega hvað þessi læknis-
fræðilegu hugtök þýða?
Einnig er mikilvægt að nefna að sú sjúk-
dómatrygging sem geymir lengsta listann
yfir tryggða sjúkdóma er ekki endilega
sú besta. Sumir sjúkdómar eru afar
sjaldgæfir og því ólíklegt að gera þurfi
kröfur vegna þeirra. Samkvæmt trygg-
ingasölumanninum John Geraghty ættu
sjúkdómatryggingar aðallega að beinast
að því að tryggja neytendur fyrir þeim
sjúkdómum sem hafa hvað mest áhrif á
Iffsstíl fólks.
Hvaða kröfur eru algengastar?
Því miður er þessi tölfræði ekki til í op-
inberum gögnum á Islandi og því styðst
umfjöllunin hér aðeins við þá tölfræði
sem kynnt var í Consumer Choise en hún
byggir á tölfræði fyrirtækisins Irish Life
fyrir árið 2001. Tölurnar sýna að greiðsl-
ur til vátryggingataka úr sjúkdómatrygg-
ingum skiptust með eftirfarandi hætti:
Ástæða greiðslu: Konur Karlar
• krabbamein 64,0 % 44,0%
• hjartaáfall 5,0 % 25,0%
• heilablóðfall 9,5% 6,5%
Samt. af heildargr.: 78,5% 75,5%
Einnig sýndu tölur Irish Life fyrir árið
1999 að af þeim 214 kröfum sem greidd-
ar voru út vegna sjúkdómatryggingar
voru 91% vegna aðeins sex sjúkdóma:
• krabbameins
• hjartaáfalls
• heilablóðfalls
• kransæðaskurðaðgerðar
• góðkynja heilaæxlis
• heila- og mænusiggs - MS
Þar af voru 77% af greiðslunum vegna
fyrstu þriggja sjúkdómanna (krabba-
meins, hjartaáfalls og heilablóðfalls).
Consumer Choise taldi líklegt að hlut-
fallið væri svipað hjá öðrum trygginga-
félögum.
1B NEYTENDABLAÐIÐ 1. TBL. 2004