Neytendablaðið - 01.03.2004, Qupperneq 21
Það eru engin takmörk fyrir því hvað
verslunum og þjónustuaðilum dettur í
hug að taka gjald fyrir. Nýjasta dæmið
er að finna á matseðli McDonald's,
en frá og með síðustu áramótum hafa
tómatsósubréfin verið seld á 10 krónur
stykkið. Franskar kartöflur án tómats-
sósu eru óhugsandi fyrir aðdáendur
skyndibitanna. En þegar 14 gr. af tómats-
sósu kosta 10 krónur þýðir það að kíló-
verðið er 714 krónur. Er það ekki aðeins
meira en góðu hófi gegnir. Hvenær byrja
þeir að selja saltið og rörin í gosið, og
kannski munnþurrkurnar líka?
Nöldrarinn
Lækningarmáttur
í sokkabuxum
Furðulegan bækling hefur rekið á fjör-
ur Neytendasamtakanna. Þetta er lítill
pési um Sanpelligrino sokkabuxur þar
sem sokkabuxnaframleiðandinn auglýsir
sérstaklega samstarf við Istituto Erborist-
ico l'Angelica. Útkoman er BIOCOMP-
LEX, byltingarkennd nýjung í sokkabux-
um. Og í hverju felst svo þessi bylting? Jú
sokkabuxurnar eru unnar úr sérstökum
tvinna og náttúrulega virkum efnum sem
munu að sögn leysa flest vandamál sem
að öllu jöfnu hrjá fótleggi kvenna, eins
og þurra húð, þreytu og fitusöfnun.
Lýsingarnar sem má finna í bæklingnum
eru kostulegar og lyginni Ifkastar. Hér
eru nokkur dæmi:
• Náttúruleg efni úr þangi og koffíni vinna
saman ásamt sérstökum vefnaði.
• Þang: dregur úrfitulagi undir húðinni.
• Koffín: eykur blóðstreymi sem minnkar
líkurnar á appelsínuhúð.
• Laufblöð rauðra vínberjaplantna: draga
úr bólgu og þreytu.
• Grænt te: Andoxunarefni sem mynda
náttúrulega vörn gegn skaða af völd-
um geislunar.
• Þökk sé nuddáhrifum og náttúrulegum
efnum gerir Biocomplex SNELLENTE
fótleggina grennri og fallegri dag
hvern.
Samkvæmt bæklingnum mun þvottur á
sokkabuxunum engin áhrif hafa á eigin-
leika sokkabuxnanna og eins eru sokka-
buxurnar bættar þægilegum ilmi sem
enn auka á vellíðanina.
í samkeppnislögum er skýrt kveðið á um
að auglýsingar verða að vera sannar og
þær mega ekki villa um fyrir kaupend-
um. í sjöttu grein segir meðal annars um
fullyrðingar og meðmæli með vöru og
þjónustu:
„Kynning á vöru og þjónustu verður að
vera áreiðanleg. Þær fullyrðingar sem sett-
ar eru fram í auglýsingum um eiginleika
og áhrif vöru og þjónustu þarf að vera
unnt að sanna."
Neytendasamtökin draga fullyrðingar
sokkabuxnaframleiðandans stórlega í efa
og efast um að þessi auglýsing standist
samkeppnislög.
Ég fór í ísbúð um daginn og keypti mér ís í
brauðformi með dýfu og kurli. Ekki í frásögur
færandi, eða hvað? Þar sem bíllinn rninn
hafði nýverið verið hreinsaður að innan
vildi ég ekki taka mikla áhættu og bað
þess vegna um að ísinn minn yrði settur
í box svo hann læki ekki út um allan bíl.
Þá kom babb í bátinn, ég þurfti að borga
sérstaklega fyrir tómt ísbox. Þetta kom
mér á óvart því ég hélt að þetta þætti
sjálfsögð þjónusta (innifalin í verðinu,
meina ég). Ég hringdi nokkur símtöl
þegar heim var komið til að athuga
hvort þetta væri algengt f ísbúðum á
höfuðborgarsvæðinu og niðurstaða mín
var þessi: Stikkfrí selur box og skeið á
25 kr. Isbúðin í Álfheimum selur boxið
eftir stærð 10, 20 og 30 kr. stykkið. Skalli
selur boxið á 10 kr. og skeiðina á 10 kr.
og Bettís í Kópavogi selur box og skeið
á 15 kr.
Nöldrarinn
NEYTENDABLAÐIÐ 1.TBL 2004 21