Neytendablaðið - 01.09.2005, Side 7
WW hinsvegar - eins og þitt - aö ganga úr
skugga um að þú getir haft myndavélina
þína í vasanum eöa veskinu, hvar og hvenær
sem er.
Er hún örugglega nægilega lítil um
sig?
Hver er tilgangurinn í því aö eiga litla
myndavél ef hún springur út eins og regnhlíf
í hvert sinn og þú ætlar að taka mynd?
Hlífar sem detta af, linsur sem skaga út,
feitar rafhlöðueiningar, LCD-skjáir sem
eru spenntir til hliðar, flass sem springa
út - fyrir utan að á þeim eru of margir
hreyfanlegir hlutir sem geta brotnað.
Hér þarf að muna lykilorðin smár" og
„fyrirferðalítill". Veittu því athygli hlutum
sem spara pláss eins og linsuvörn sem
dregst til hliðar eftir myndavélinni, þunnum
rafhlöðum, LCD-skjám á baki vélarinnar og
innbyggðu flassi. Sumar nýrri gerðir koma
með sjónrænum brunlinsum sem fara ekki
út fyrir myndavélahúsið. í stuttu máli ættir
þú, áður en þú fjárfestir í smámyndavél, að
prufukeyra hana í versluninni til að fullvissa
þig um að hún sé í raun eins fyrirferðalítil
og af er látið.
Er það til vansa að þær eru svona
flottar?
Viðurkenndu það bara, þú vilt sennilega
vekja athygli með nýju smávélinni. Þar
til nýlega var nánast ómögulegt að finna
nýtískulega smávél á viðráöanlegu verði.
Núna eru framleiðendur hins vegar að bjóða
úrval smávéla með nýtískulegri hönnun,
mismunandi liti, burstuðu stáli og fleiri
glæsilegum útfærslum. Útlitið fer aftur á
móti fyrir lítiö ef myndavélin getur ekki
tekið góðar myndir.
Ending rafhlaðna
Það liggur í hlutarins eðli að ef smávélin
er fyllt af alkaline-rafhlöðum verður
hún ekki fyrirferðalítil smávél til
lengdar. Flestar smávélarnar koma meö
endurhlaðanlegum lithium-ion rafhlöðum,
en ekki eru allar endurhlaðanlegar
rafhlöður jafnar að gæðum. Athugaðu því
upplýsingar um meðallíftíma rafhlöðunnar
og taktu sérstaklega eftir rafhlöðum
sem eru sérhannaðar af framleiðanda
myndavélarinnar og framleiddar fyrir þá
vél. Þó að þú gætir þurft að eyða eitthvað
fleiri krónum þegar tími er kominn til að
skipta út rafhlöðunni þá virka sérhannaðar
rafhlöður gjarnan betur í þeirri vél sem
þær eru framleiddar fyrir. Einnig munu
upplýsingarnar um rafhlöðuna vera
nákvæmari þar sem þær eru framleiddar
fyrir tiltekna myndavél.
Leitaöu að góöum LCD-skjá og
myndkíki
Þótt myndavélin sé smágerð þarf það ekkert
endilega að þýða að LCD-skjárinn þurfi
einnig að vera lítill. Aðgangur að verkseðlum
og stillingum er gjarnan í gegnum LCD-
skjáinn og ef hann er lítill verða stafirnir
það litlir að arnaraugu þarf til að lesa á
hann. Að hafa almennilegan LCD-skjá er
einn af aðalkostum þess að eiga stafræna
myndavél. Fullvissaðu þig því um að þú tapir
ekki þessum kosti í leit þinni að minnstu
gerð myndavéla. Margir framleiðendur
smávéla henda út myndkíkinum til að spara
í stærð. Þá er gott að hafa í huga að það
getur verið mjög erfitt að sjá á LCD-skjá á
björtum degi í sólskini.
Megapunktar, geymsla og allt þaö dót
Hvað varðar tækni og upplausn smá-
myndavélarinnar ættir þú að reyna að
fylgja sömu viðmiðum og gilda fyrir
skyndimyndavélarnar - 4+ megapunktar, 3+
sjónrænt brun og 256MB+ minniskort til að
byrja með.
Stafrænar vasamyndavélar (pocket camera)
4-5 megapunktar klára verkið
Ef ætlunin er að prenta skýrar 8x10
cm Ijósmyndir þarftu 4-5 megapunkta
myndavél. Ef þú hins vegar ætlar að senda
skyndimyndir með tölvupósti yfir Netið,
dugar vel 3 megapunkta vél. Hafðu í huga
að myndir sem teknar eru á 3 megapunkta
myndavél er ekki hægt að stækka án þess
að tapa einhverjum gæðum og myndin
verður gróf.
Sjónrænt brun skiptir máli, stafrænt
brun ekki
Að nota stafrænt brun á myndavél er það
sama og að taka hluta af mynd og stækka
hann í myndvinnsluforriti - þ.e. upplausnin
minnkar eftir því sem þú stækkar punktana.
Þú nærð betri árangri með hugbúnaðinum
hvort eð er, þannig að best er að forðast að
nota stafrænt brun alveg.
Sjónrænt brun hins vegar notar Ijósfræði
linsu myndavélarinnar til að nálgast
myndefnið án þess að tapa neinum mynd-
gæðum. Flestar skyndimyndavélar um
miðbik verðskalans koma með 3X - 4X
sjónrænt brun og sumar nýrri vélar með
8X - 10X. Þó skulu kaupendur hafa varan á
þar sem einhverjir framleiðendur hafa tekið
upp á því að leggja saman bruntölurnar, þ.e.
sjónbrun og stafrænt brun. Þetta er bæði
villandi og ruglingslegt. Haltu þig því við
sjónrænt brun og láttu þar við sitja.
Þjöppun skekkir uppgefnar tölur um
fjölda mynda í minni
Hlutirnir verða aðeins flóknari þegar kemur
að því að geyma myndirnar þannig að það
er kannski ráðlegt að vita eitthvað um
þjöppun. Nýja vélin þín kemur mjög líklega
stillt af verksmiðjunni á tiltekna þjöppun til
að koma fleiri myndum fyrir á minniskortinu.
Þjöppunaralgrím eru flókin en í stuttu máli
þá sleppa þau punktum úr mynd til að
minnka hana að umfangi. Til samanburðar
mun óþjöppuð mynd nýta alla mögulega
punkta í mynd til að varðveita nákvæma liti
og skýrleika myndar í umtalsvert stærri skrá.
Flestar skyndimyndavélar gera þér kleift að
stilla þjöppun i „gott", „betra", „best" skala.
Jafnvel virtir framleiðendur stafrænna
myndavéla eiga það til að ýkja svolítið þegar
því er haldið fram að vélarnar þeirra komi
með 16MB minniskorti sem geti geymt yfir
100 myndir. Vert er að hafa í huga að þær
munu vera með lægstu mögulega upplausn
og mestu þjöppun sem hægt er. Ef besta
upplausn er notuð er aðeins hægt að geyma
um 38 þjappaðar myndir í meðalgæðum á
16MB minniskorti eða 2 myndir óþjappaðar.
Leitiö að einnota og
endurhlaðanlegum rafhlööum
Skyndimyndavélar koma með einnota
rafhlöðum(sennilegaAA),endurhlaðanlegum
rafhlöðum eða innbyggðum rafhlöðum með
hleðslutæki. Eins og um alla aðra tæknilega
hluti eru menn ekki alltaf sammála um hvað
er best. Flestir eru hins vegar sammála því
að kostir þess að hafa einnota alkaline-
rafhlöður eru þeir að þær eru ódýrar, hægt
er að kaupa þær nánast alstaðar og þær
þurfa ekki utanaðkomandi orkugjafa - sem
getur verið mikilvægt, t.d. á fjöllum. Að
þessu sögðu þá er myndavél sem tekur bæði
einnota AA-rafhlöður og endurhlaðanlegar
nickel-metal hydride rafhlöður jafnvel
ennþá betri kostur. Innbyggðar rafhlöður
með hleðslutæki hafa einnig sina kosti, þær
endast yfirleitt lengur og kosta minna metið
útfrá líftíma myndavélarinnar. Takmarkaður
líftími rafhlaðna mun þó sennilega vera
stærsta vandamálið við stafræna myndavél,
þó ætti það ekki að koma í veg fyrir kaupin.
Ef myndavélin þín gengur bæði fyrir einnota
og endurhlaðanlegum rafhlöðum er það
kostur, en.ef þú hins vegar finnur alla þá
eiginleika sem þér líkar á einni vél, ættir þú
sennilega að kaupa hana án tillits til raf-
hlöðusamsetningarinnar.