Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 19

Neytendablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 19
Magn og gæði í fjölmiðlabyltingu Henry Fielding, breska 18. aldar leikskáldiö, rithöfundurinn og blaðamaðurinn sagði einhverju sinni að „dagblað samanstæði af nokkurn veginn sama fjölda orða, hvort sem í því væru einhverjar markverðar fréttir eða ekki." Það er ekki tilviljun að þessi ummæli Fieldings hafi ratað inn í spakmælabækur í gegnum áratugina og aldirnar, því þau beina athyglinni með skemmtilega nöprum hætti að kjarna fjölmiðlunar - semsé að það er innihaldið sem skiptir mestu, ekki magnið. Raunar á þetta við um fleiri framleiðslu- vörur en fjölmiðlun, þó við sem neytendur gleymum því gjarnan í gleði okkaryfir að fá meira fyrir minna. En ummæli Fieldings eru áhugaverð í þeirri fjölmiðlaumræðu og þeirri þróun sem orðin er á fjölmiðla- markaði á íslandi á síðustu misserum. Engin spurning er að eftir að útvarps- og sjónvarpsrekstur var gefinn frjáls hefur orðið sprenging í framboði á fjölmiðlaefni. Við höfum nú fjölmargar sjónvarpsrásir og sjónvarpsstöðvar í stað einnar áður. Við höfum ótrúlegan fjölda útvarpsstöðva og útgáfa prentaðs efnis er margföld á við það sem hún var og nær til miklu fleira fólks en áður. Stór hluti landsmanna fær nú til sín tvö ókeypis dagblöð og tvö önnur er hægt að kaupa. Morgunblaðið og Fréttablaðið hafa nú komið út á mánudögum um skeið. Tímaritaútgáfan er voldug. Við stöndum nú á þröskuldi hinnar stafrænu framboðssprengingar og í haust hefur verið boðuð ný sjónvarpsstöð, frétta- og dægurmálastöð sem starfar frá morgni til kvölds. Mikil gróska? Gagnvart fjölmiðlaneytendum lítur þetta út sem mikil gróska og gríðarlega aukin þjónusta. Það er hins vegar ekki alveg sjálfgefið að svo sé að öllu leyti. Magnið hefur vissulega aukist - við fáum fleiri orð, fleiri rásir og lengri útsendingartíma. Óhjákvæmilega hefur inntakið vaxið líka, þó ekki sé víst að það hafi verið í sömu hlutföllum og aukningin í magninu. Margt bendir til að við séum einfaldlega að fá meira af því sama, en í ólíkum tækilegum umbúðum. Fjölmiðlun er orðin að hefðbundinni markaðsvöru og er að þessu leyti hluti af þeirri viðskiptabyltingu, sem átt hefur sér stað í landinu. Það er opinbert leyndarmál að fréttastofur og ritstjórnir eru mannaðar eins naumt og frekast er kostur. Líka á þeim miðlum sem ganga þokkalega. Ástæðan er einföld. Það þarf að gæta hagkvæmni og sparnaðar í framleiðslunni. Fráfarandi sjónvarps- og fréttastjóri á Stöð 2, Páll Magnússon, var afar hreinskilinn í viðtölum þegar hann hafði fengið stöðu útvarpsstjóra á Ríkisútvarpinu. Þá sagði hann að hlutverk einkafjölmiðla væri að ná til sem flestra áhorfenda með eins litlum tilkostnaði og hægt væri. Hann taldi réttilega, að öfugt við það sem verið hefur, ætti hlutverk RÚV að vera af öðrum toga. Afþreying Það blasir því við að verulegur hluti af inntaki þess aukna framboðs á fjölmiðlum sem við fjölmiðlaneytendur eigum kost á í dag er afþreyingarefni og efni sem er unnið með eins litlum tilkostnaði og hægt er. Ekki ritstjórnarlega vel unnið upplýsingarefni, þó slíkt efni sé sem betur fer vissulega innan um. Það er verið að endurnýta eða margnýta sama efnið, sem búið er þannig um, að það henti fyrir mismunandi gáttir. Þetta er ódýrt innflutt eða fljótunnið efni sem ekki lýtur gagnrýnum efnistökum. Og síðast en ekki síst er þetta efni sem hefur skemmtigildi og er stæling á raunveruleikaþáttum erlendra stöðva sem gengið hafa hvað lengst í markaðssetningu léttmetis og afþreyingar. Erlendis er þessi þróun vel þekkt enda langt síðan markaðsvæðing fjölmiðlanna átti sér stað þar. Vandað ritstjórnarefni Mikilvægt einkenni þessarar markaðsvæð- ingar er að útgáfufyrirtæki hafa orðið að hlutafélögum sem lúta lögmálum fjármagnsins og stjórnendur slíkra félaga telja sig fyrst og fremst ábyrga gagnvart hluthöfum, en ekki lesendum eða áhorfendum. Þetta er ekki endilega slæmt, en klárlega breyting sem neyt- endur þurfa að vera vakandi fyrir. Við eigum að fagna hagfræði magnkaupanna og hagræðingarinnar sem skilar okkur aukinni fjölmiðlun. „Tveir fyrir einn" hugmyndafræðinni, þar sem menn stæra sig af því að bjóða fólki meira og meira fyrir sama verð eða alveg ókeypis. En við þurfum, sem neytendur, að vera meðvituð um hvort áherslan er eingöngu á að auka magnið og úrval umbúðanna, eða hvort varan sem slík skiptir lika máli. Þegar allt kemur til alls er það mikilvægasta málið. Það þarf meira en eina vídd í samkeppnina, gæði unnins ritstjórnarefnis skipta neytendur jafn miklu máli ef ekki meiru, en það hver sigrar i uppbyggingu stafræns dreifikerfis eða magninnkaupum til sýninga og endur- sýninga á gömlum sápuóperum. Eins og Fielding benti á strax á 18. öld, þá fara magn og gæði ekki endilega saman - sérstaklega ekki í fjölmiðlum. Birgir Guðmundsson 19 NEVTENDABLAÐIÐ 3.TBL. 2005

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.