Neytendablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 15
Þrátt fyrir aö búiö sé aö banna nikkel í
snyrtivörum fer því fjarri aö reglunum
sé alltaf fylgt. Ný dönsk rannsókn frá
rannsóknarstofu Miljo og Sundhed leiddi
í Ijós hátt hlutfall nikkels í 19 tegundum
algengra maskara.
Mælt er meö því aö nikkelinnihald maskara
fari ekki upp fyrir 5 mg/kg, en þaö ættu allir
aö þola. I könnuninni kom í Ijós að maskarinn
meö hæst hlutfall nikkels innihélt 41 mg/kg
en sá sem haföi minnst 16 mg/kg.
Nikkelinnihaldiö erekki merkt sérstaklega og
þvi getur verið erfitt aö forðast þá maskara
sem eru hvað verstir.
En hvernig stendur á því aö nikkel er svona
algengt í maskörum þrátt fyrir að búiö sé að
banna nikkel í snyrtivörum?
Þann 1. janúar 2005 gekk í gildi bann viö
notkun nikkels í snyrtivörum á Evrópska
efnahagssvæðinu. Nikkel í snyrtivörum er
þó leyfilegt ef um er að ræða „óhreinindi".
Það þýðir að nikkel getur slæðst með öðrum
hráefnum sem notuð eru í vöruna, í þessu
tilfelli meö litarefni, sérstaklega svörtu
eða dökku. Engar reglur eru til um hámark
nikkels i formi „óhreininda".
Claus Jorgensen sem starfar hjá dönsku
neytendastofnuninni segir í viðtali við
blaðið Tænk að hámark nikkels ætti aö
miðast við 5 mg/kg hvort sem miðað er
við óhreinindi eða ekki. Claus bendir enn
fremur á að í sænskri könnun frá 1990 hafi
meira en helmingur maskaranna innihaldiö
minna en 5 mg/kg. Það sé því Ijóst aö
framleiðendur geti framleitt maskara með
minna nikkelmagni kjósi þeir það.
Þeir sem eru með ofnæmi fyrir nikkel gætu
þurft aö þola óþægindi vegna maskara
með háu nikkelinnihaldi. Þá er ráðlagt
að láta maskarann ekki snerta húöina og
þvo hann vel af áöur en lagst er til svefns.
Nikkelhlutfallið er hæst í svörtum eða
dökkum maskara en minna í maskara i
Ijósari litum.
Þeir sem ekki þjást af nikkelofnæmi ættu
ekki aö finna fyrir óþægindum vegna
maskara jafnvel þótt nikkelinnihald sé hátt.
Hins vegar er um aö gera aö forðast alla
þekkta ofnæmisvalda eins og kostur er.
Tegund Nikkelinnihald mg/kg
Clarins, Pure curl mascara 01 41
Clinique, Lash curling mascara 01 37
Maybelline, Great Lash Mascara 36
Origins, Fringe benefits lash-loving mascara 31
The Body Shop, Define 8t Lengthen mascara 01 31
Nivea Beaute, Lash designer mascara 31
GOSH, Amazing length'n build mascara 31
MAC, Mascara N 27
Dansk Helios, Dr. Hauska mascara 26
Lancóme, Flextencils full extension and curving
mascara 01 24
Lavera, Trend sensitive No.1 volumen mascara 24
Chanel, Cils a cils mascara lash building mascara 23
Only Cosmetics, Mascara black 21
L'Oreal, Lash architect mascara 21
Elisabeth Arden, Double density maximum volumen
mascara 21
Max Factor, 2000 Calorie dramatic look mascara 20
HEtM, Volumen mascara 17
Rimmel, Endless length Et lift Mascara 16
Sjá meira um rannsóknina á www.miljoeogsundhed.dk
Ánægður viðskiptavinur Elko
Kona nokkur hafði samband við
Neytendasamtökin og bar Elko
góða sögu. Hún hafði keypt
„Sing-star" tæki hjá versluninni
en annar hljóðneminn bilaði mjög
fljótlega. Fór hún með hljóð-
nemann með sér í verslunina
og sagði farir sínar ekki sléttar.
Afgreiðslustúlkan tók vel í erindið
og eftir stutta bið kom hún aftur
með nýjan hljóðnema sem hún
afhenti og nýja sölukvittun með.
Vildi konan hrósa fyrirtækinu fyrir
góða þjónustu.
Neytendur treysta á fullyrðingar seljenda
þetta kemur fram í samevrópskri könnun
Evrópskir neytendur vilja boröa holla fæöu en flestir reiöa sig þó á fullyrðingar seljenda þegar
verslað er í matinn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í könnun Evrópusamtaka neytenda
(BEUC) sem gerð var í fimm Evrópulöndum.
Flestir, eða 77%, segjast áhugasamir um næringu og 81% sögöust fagna upplýsingum um
næringargildi á umbúöum. Hins vegar horfa neytendur einkum til fullyröinga seljenda, t.d. létt,
kalkríkt og fitulítið, og segjast skilja þær betur en hefðbundnar upplýsingar um næringargildi sem
oft má finna á matvælaumbúðum . Þá viröast neytendur treysta sérstaklega vel fullyrðingum á
matvælum frá þekktum framleiðendum.
Þvi miður eru fullyrðingar framleiöenda ekki best til þess fallnar að veita neytendum
mikilvægustu upplýsingarnar þar sem þær draga einungis fram einstaka þætti vörunnar. Næstum
helmingur aöspurðra haföi jákvæöa afstöðu gagnvart matvöru sem sögð var kalkrík þrátt fyrir
að þessi sama vara innihéldi einnig hátt hlutfall af fitu, sykri og salti.
Jim Murray formaöur samtakanna segir niðurstöðu rannsóknarinnar sýna aö neytendur taki
ákvarðanir sem byggjast á ófullnægjandi upplýsingum eða/og að neytendur skilji ekki til hlítar
þær upplýsingar sem þeir fá. Það sé auk þess mikiö áhyggjuefni hversu margir reiöa sig á
fullyrðingar seljenda og það þurfi að skoöa nánar.
Evrópusamtök neytenda leggja áherslu á að reglur um heilsufullyrðingar verði hertar enda Ijóst
að þær eru oft á tíðum villandi og auðvelda fólki ekki aö velja hollari mat. Heilsufullyrðingar
ætti ekki að leyfa á matvælum sem innihalda óhóflega mikið af salti, sykri eða fitu. Þá mælast
samtökin til þess aö framleiðendum verði gert skylt aö gefa upp næringarupplýsingar á öllum
innpökkuðum unnum vörum og aö nýtt og einfaldara merkingarkerfi verði tekið upp.
Sjá nánar umfjöllun um heilsufullyrðingar á bls. 20.
15 NEVTENDABLAÐIÐ 3.TBL. 2005