Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 23

Neytendablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 23
Hefur þú stjórn á innkaupunum? I norska neytendablaðinu Forbruker- rapporten er áhugaverð grein sem ber heitið Manipulert impulskjop eða stýrð skyndikaup. Þegar við göngum inn í matvöruverslun erum við með nokkuð ákveðna hugmynd um það hvað við ætlum að kaupa. En oftar en ekki lenda allskyns vörur í innkaupakörfunni sem aldrei var ætlunin að kaupa. Flvernig skyldi standa á þessu? Þegar verslanir eru innréttaðar er ekkert gert af tilviljun. Allt hefur sinn tilgang og markmiðið er að við förum út með sem mest af vörum. Lítum á nokkur dæmi. Verslanir stilla oft kökum, brauði og grænmeti við inngang verslana. Það er til þess að við fáum strax á tilfinninguna að allt í versluninni sé ferskt og vellyktandi lostæti. Auk þess eru oft kynningar á nýjum vörum framarlega í verslunum því þá erum við í kaupstuði og ekki orðin æst og sveitt við að komast áfram með innkaupakörfurnar. Þegar við erum inni í verslunum lítum við frekar til hægri, þess vegna eru dýrar vörur oftar hægra megin en hefbundnar nauðsynjavörur frekar vinstra megin. Verslanir eru oft innréttaðar sem völundarhús þannig að við neyðumst til að fara fram hjá sama rekkanum oftar en einu sinni. Nýjar freistingar á leiðinni eiga líka að fá okkur til að hlaupa til baka. Ostur á tilboði kallar til dæmis á kex, brauð, vínber eða sultu. í grænmetis- og ávaxtadeildinni er sérstök lýsing sem gerir það að verkum að allt lítur girnilega út. Gjarnan er mikið af speglum í þessari deild en þannig virkar vöruúrvalið meira. Verslanir deilast oft niður í deildir þar sem spennandi og óspennandi deildir skiptast á. Á eftir grænmetisdeildin kemur til dæmis frosinn matur og þar á eftir kemur svo aftur spennandi deild til að halda uppi kauplystinni. Mikilvægar vörur eins og mjólk og egg eru gjarnan innst í verslunum, þannig þurfum við að fara fram hjá ýmsum freistingum áður en við náum í mjólkurlítrann sem var ástæðan fyrir búðarferðinni. Við kassann eru ýmsar freistingar, rannsóknir sýna að við erum tilbúin til að kaupa ýmislegt þegar okkur leiðist og það gerist einmitt þegar við stöndum í röð. Þá erum við tilbúin að kaupa hvað sem er svo lengi sem varan er ekki of dýr. DVD- myndir, blöð og sælgæti er oft að finna við kassann. Röðin á kassanum á að koma okkur á óvart. Þess vegna eru kassarnir yfirleitt vandlega skermaðir af og við sjáum ekki röðina fyrr en kemur að því að borga. Þetta þýðir að við verðum ekki stressuð inni í búðinni af því að sjá langar raðir við kassana. I blaðinu er líka fjallað um hillupláss. Fyrir ekki löngu voru það starfsmenn verslana sem röðuðu í hillur og ef einhver vara fékk meira pláss var það af því að hún seldist vel. I dag er baráttan um hilluplássið mikil enda ekki sama hvar í hillum varan lendir. Besta plássið er rétt fyrir neðan augnhæð og úti á endum rekkanna. Kambur er helsti óvinur höfuðlúsarinnar Samkvæmt breskri rannsókn sem kynnt var í British Medical Journal í ágúst sl. kemur í Ijós að rétt meðferð lúsakambsins er árangursríkasta vopnið gegn höfuðlúsinni. Niðurstaða rannsóknarinnar sýndi að lúsakambur er fjórum sinnum árangursríkari en venjulegt lúsasjampó. Þetta eru góðar fréttir þar sem í lúsalyfjum getur verið skordýraeitur og foreldrar því ekki hrifnir að nota slíkt í hársvörð barna sinna. I Bretlandi og víðar hefur svokölluð „Bug Busting"- aðferð verið notuð um nokkurt skeið. Hún var þróuð af bresku góðgerðarstofnuninni Community Hygiene Concern og allt frá 1996 hefur stofnunin þróað pakkningu sem inniheldur leiðbeiningar og áhöld sem þarf til fyrir þessa meðferð, m.a. kamb og hárnæringu. í meðferðinni er mikilvægast að fylgja tímaáætlun því hún gengur út á það að rjúfa lífshring lúsarinnar. Blautt hárið með hárnæringunni er einfaldlega kembt á nákvæman hátt í fjögur skipti á hálfs mánaðar tímabili. Sá sem notar kambinn lærir að greina og fjarlægja á kerfisbundinn hátt fullorðna lús sem er um 3 mm að stærð. Þannig hefur hann gripið inn í hegðunar- og þroskaferil lúsarinnar og árangurinn er eftir því. 23 NEYTENDABLAÐIÐ 3. TBL. 2005

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.