Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.2005, Síða 18

Neytendablaðið - 01.09.2005, Síða 18
Neytendasamtökin og Húseigendafélagið gerðu verðkönnun á þjónustu fasteigna- sala síðastliðið vor. Haft var samband við 77 fasteignasölur en þar af neituðu 9 að svara. Umsemjanleg söluþóknun í Ijós kom að söluþóknun er mjög mismunandi og virðist í mörgum tilfellum vera umsemjanleg eða I um helmingi tilfella. Lægsta uppgefna söluþóknunin var 0,7% en sú hæsta 2,9% af söluverði fasteignar. Það er því um að gera fyrir seljendur að semja við fasteignasölur um þóknun áður en hafist er handa. Aðeins tvær fasteignasölur sem kannaðar voru taka fast verð fyrir sölu á eign. Verð án virðisaukaskatts Flestar fasteignasölur gefa upp verð án virðisaukaskatts sem er ólöglegt. Virðisaukaskatturinn á að vera innifalinn í þeirri þóknun sem gefin er upp, rétt eins og á öllum vörum og annarri þjónustu á neytendamarkaði. Það sama á við um umsýslugjald sem gjarnan er uppgefið ýmist með og án virðisaukaskatts. Neytendur eru ekki undanþegnir virðisaukaskatti og því er þeim tilmælum beint til fasteignasala að hætta að gefa upp verð án virðisaukaskatts og veita neytendum upplýsingar um verð á þjónustu með virðisaukaskatti í öllum tilvikum eins og reglur gera ráð fyrir. Virk samkeppni kemur neytendum til góða Neytendasamtökin og Húseigendafélagið vilja undirstrika mikilvægi þess að gjaldskrár fasteignasala séu aðgengilegar neytendum og skýrar. Fæstir standa í fasteignakaupum oft á ævinni og er aleiga fólks oftast undir í viðskiptum með fasteignir. Það er því mikilvægt fyrir fólk að staldra við og huga vel að öllum málum áður en haldið er af stað. Þetta skiptir sérstaklega miklu máli í Ijósi þess hversu oft virðist hægt að semja um þóknanir og gjöld sem fasteignasalar innheimta. Samkeppnin virðist virk þar sem verðmunur milli fasteignasala er töluverður og fjöldi fasteignasala mikill. Fólk sem stendur í fasteignaviðskiptum ætti að geta nýtt sér það. Vissir þú að............... við prentun Neytendablaðsins er notkun skaðlegra efna af öllu tagi haldið í algjöru lógmarki Þess vegna er Neytendablaðið Svansmerkt Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna en hátt í ellefu hundruð fyrirtæki og þjónustuaðilar bjóða Svansmerktar vörur og þjónustu á Norðurlöndunum. Þeir einir fá að nota Svansmerkið sem uppfylla strangar kröfur um gæði og takmörkun umhverfisáhrifa. UST Nánari upplýsingar um Svansmerktar vörur á íslandi er að finna á ust.is. Umhverfisstofnun

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.