Neytendablaðið - 01.11.2006, Qupperneq 7
LG42LC2R1
Panasonic TH42PV6001
Philips 42PF9631D101
á móti stafrænum sjónvarpsmerkjum þar
sem flest sjónvörp sem eru í notkun hér á
landi taka eingöngu viö hliðrænu sjónvarps-
merki (analogue). Þess vegna er líklegt að
sjóngæði slíkrar dagskrár séu minni en efni
standa til þar sem talsvert tapast af gæðum
sendingarinnar þegar merkinu er breytt
úr stafrænu merki í hliðrænt með afrugl-
aranum, en það verður að gerast svo að
hliðræna sjónvarpið geti sýnt mynd. Þetta
sést ágætlega þegar myndgæði útsendrar
dagskrár eru borin saman við myndgæði
DVD-disks, en þau ættu að vera nánast þau
sömu ef sjónvarpsútsendingin erstafræn.
Víða í Evrópu hafa stafrænar útsend-
ingar aukist til muna. Þetta þýðir að
sjónvarpsstöðvarnar hafa þurft að
endurnýja allan tækjabúnað sinn til að geta
átt við stafrænt efni. Eins hafa neytendur
þurft að endurnýja sjónvarpstæki sín til að
geta tekið á móti stafrænum sjónvarps-
sendingum. Það gera þeir ýmist með því
að kaupa stafrænt sjónvarp eða sjónvarp
með innbyggðum stafrænum afruglara eða
þýðanda, svokallað iDTV. Einnig er auðvitað
hægt að fjárfesta í utanáliggjandi afruglara
sem tekur sjónvarpsmerkið og þýðir það (í
hliðrænt merki) fyrir sjónvarpið. En eins og
áður sagði hverfur eitthvað af gæðum staf-
rænu útsendingarinnar þar sem „venjulegt"
sjónvarpstæki tekur aðeins við hliðrænu
merki, eins og flest flötu sjónvörpin gera
sem seld eru hér á landi í dag.
Æskilegt að hafa í huga þegar sjón-
varpstæki er keypt:
• Athugið hvernig myndin kemur út ef
horft er á skjáinn frá hlið. Prófið einnig
að hreyfa höfuðið upp og niður meðan
horft er. Það skiptir máli þegar margir
horfa á sama sjónvarpstækið hversu góða
mynd vítt sjónarhorn gefur. Þetta hefur
batnað með nýrri tækjum en myndin vill
hinsvegar dökkna á þeim sumum eftir því
sem sjónarhornið breytist.
• Reynið að skoða fjölbreytt úrval sjón-
varpsmynda í versluninni. Horfið sérstak-
lega eftir eðlilegum húðlit á fólki í mynd-
veri, t.d. fréttaþul.
• Takið einnig eftir hvort um litakast sé að
ræða, eins og bleika eða græna slikju fyrir
myndinni sem illmögulegt er að lagfæra
algjörlega með stillingunum.
• Takið eftir aðgengi að tengingum, t.d.
hvort auðvelt sé að tengja DVD-spilara,
leikjatölvu og önnur tæki.
• Athugið hvort tengingarnar á sjón-
varpinu passi við þau tæki sem þið eigið
nú þegar eða verða hugsanlega keypt í
framtíðininni. HDMI er stafrænt tengi
fyrir bæði hljóð og mynd í einum kapli.
Það er óvitlaust að athuga hvort tækið
sem skoðað er hafi a.m.k. eitt slíkt tengi.
• Ef ætlunin er að nýta sjónvarpið einnig
sem leikjatölvu þarf að vera DVI-tengi
fyrir nýrri tölvurnar eða VGA-tengi fyrir
eldri tölvur. HDMI-tengi gæti gengið ef
tölva hefur HDMI-tengi eða þið hafið
DVI-HDMI-kapal.
• Ef líkur eru á því að fjarstýringin týnist
eða bili er ráðlegt að velja tæki sem
hefur stjórntækin aðgengileg á sjón-
varpinu sjálfu. Ef festa á tækið upp á
vegg er gott að hafa í huga hvar stjórn-
tækin eru staðsett því ef þau eru ofan
á tækinu getur orðið erfitt að nota þau
eftir að tækið hefur verið fest upp.
• Hefur tækið kveikja/slökkva hnapp?
Mörg nýrri tæki hafa engan slíkan hnapp
og eru því alltaf í biðstöðu og eyða
rafmagni þegar þau eru ekki í notkun.
Þess utan fylgir því mikil íkveikjuhætta
að hafa rafmagn á tækinu.
• Hefur sjónvarpið nægilega upplausn til
að sýna og taka á móti háskerpuútsend-
ingu? Lægsta mögulega upplausn er 720
línur.
• Getur tækið tekið við stafrænum send-
ingum? Ef svo er hefur það „digital
ready" vörumerki en slík tæki ganga
gjarnan undir heitinu iDTV. Þetta þýðir
að ekki þarf að fjárfesta í aukaþýðanda
eða afruglara til að geta tekið á móti
stafrænum sendingum þegar þær koma.
Hafið auga með litlum höndum!
LCD sjónvarpstæki eru umtalsvert léttari
en gömlu túputækin, en þau geta samt
valdið tjóni ef þau falla á barn. Þetta er
ekki vandamál þar sem sjónvörpin eru fest á
vegg, en séu þau á standi er rétt að athuga
vel hvort þau séu völt og gera viðeigandi
ráðstafanir ef þeirra er þörf.
7 NEYTENDABLAÐIÐ 4. TBL.2006