Neytendablaðið - 01.11.2006, Page 12
PERSÖNUGERT debetkort
A WWW.CUTNIR.IS - FRÍTT DE8ETKORT
OG 100 FRÍAR DEBETKORTAFÆRSLUR
Námsmenn fá 100 Irlar clebetkortafærslur á ári
og þeir sem óska eftir ISIC skirteini fé það ókeypis
með debetkorlinu.
PERSÖNUGERT DEBETKORT
Persónugerðu debetkortin hafa slegið í gegn.
Það er einfalt að hanna kortið á netinu og klára málið.
HANNAÐU PITT EIGIÐ DEBETKORT A GLITNIR.IS
nágrannans, eöa skrá sig í sambúö meö
tilliti til húsaleigubóta, svo dæmi séu tekin.
Það verður ekki annaö sagt en að það sé
húmor í þessum auglýsingum. Hins vegar
er sú áhersla sem Glitnir leggur á yfir-
dráttarvexti gagnrýniverö þar sem þeir
geta seint talist „hagstæðari" eins og þó er
auglýst. Líkt og aörir bankar og sparisjóðir
býður Glitnir upp á lán af ýmsu tagi, t.d.
bílalán fyrir námsmenn (allt aö 90% lán
án ábyrgðarmanna), tölvukaupalán, náms-
lokalán, lán fyrir útskriftarferð og námslán
í erlendri mynt. Ekki verður því annað séð
en að bankinn hvetji til lántöku og þannig
talar hann t.d. um „spennandi lánamögu-
leika" á meðan lítið fer fyrir upplýsingum
um sparnaö.
Glitnir hefur gefið út bækling sem heitir „Til
hamingju með fjárræðið". í bæklingnum er
fjallað um ábyrgð fjárráða einstaklinga og
m.a. bent á mikilvægi þess að skrifa ekki
undir lán nema að vel athuguðu máli. Þaö
er ástæða til að hrósa Glitni fyrir þennan
bækling sem á svo sannarlega erindi til
unglinga og vonandi fá ungir viðskiptavinir
bankans bæklinginn í hendur áður en þeir
skrifa undir einhver af þeim ótal lánum sem
þeim bjóðast.
KB banki:
Nám erlífstíll
Þekktur skemmtikraftur leikur uppskafning
eða menntasnobbara sem segir fyndna
brandara um námsgreinar og heimspeki.
Leið hans hefur legið í gegnum þekkta
mennta- og menningarstaði; M.R., Oxford,
Cambridge og Akropolis. Þarna er frekar lítið
gert úr námsmönnum og jafnvel ýjað að því
að þeir eigi ekki að hafa áhyggjur af heila-
starfseminni. Ein af yfirskriftunum ert.a.m.:
„Láttu hjartað ráða för í náminu. Heilinn
er ekkert til að treysta á." Það eru vonandi
ekki skilaboð KB banka að viðskiptavinirnir
eigi ekki að treysta á heilann þegar þeir
skoða lánatilboð bankans, en þau felast
m.a. í útgjaldadreifingu, tölvukaupalánum,
framfærslulánum, námslokalánum, yfir-
dráttarlánum, kreditkortum og ábyrgðum á
LÍN-lán.
Sparisjóðirnir:
Gerðu mikið úr litlu
Sparisjóðirnir fara þá leið að senda í pósti
200 gr af poppmaís í fallega hönnuðum
umbúðum. Námsmönnum er bent á að
poppa maísinn og þræða hann á band með
nál og tvinna þar sem „þetta er skart-
gripur", þ.e. hálsmen gert út poppi. Það má
spyrja hvað þaö kosti bankann eiginlega að
senda allt þetta popp í pósti og hvort þetta
sé ekki sóun á matvælum og umbúðum?
Þá eru dæmi um að poppmaísinn hafi
Þetta er skartgripur
<<■ ■ ■ ■ ■ ■ i
dreifst út um öll gólf þegar pakkinn var
rifinn upp. Með þessari auglýsingaherferð
má frekar segja að sparisjóðirnir geri
afskaplega lítið úr miklu. Um leið bjóða
sparisjóöirnir upp á greiðslukort, skamm-
tímalán, greiðsluþjónustu, úttekt í tískubúð
og ferðaávísun gegn notkun kreditkorts.
Landsbankinn
Sýnum námsmönnum tillitssemi
Landsbankinn hefur sýnt auglýsingar sem
ganga út á að námsmönnum sé sýnd tillits-
semi. í einni auglýsingunni kemur fram að
það sé ósanngjarnt að hafa próf daginn
eftir mikilvægan fótboltaleik. Önnur auglýs-
ing sýnir nemanda sem á í einhverjum
vandræðum vegna andfúls kennara. Þetta
er gott dæmi um auglýsingu sem á að
vera vera fyndin á kostnað kennarans
og snýst því hæglega upp í andhverfu
sína. Fræðingar hafa kallað þessa nálgun
„antiadultism" en það þýðir í stuttu máli að
auglýsendur, sem beina sjónum sínum að
börnum og unglingum, gera gagngert lítið
úr fullorðnum, t.d. foreldrum og kennurum,
og sýnir þá hallærislega og leiðinlega - og
jafnvel andfúla.
Landsbankinn er einna fyrirferðarmestur
fjármálafyrirtækja á „nemendafélaga-
markaðnum" og hefur m.a. staðiö fyrir
kaupum á ballmiðum. Bankinn býður uppá
fjölbreytta þjónustu fyrir námsmenn líkt
og keppinautarnir og námureikningur er,
samkvæmt heimasíðu Landsbankans, tékka-
reikningur með afar hagstæð kjör og nýir
viðskiptavinir fá veglegar inngöngugjafir.
Auk þessa býður bankinn upp á tölvulán,
yfirdráttarlán, námslán og námslokanám
(þ.e. endurfjármögnun á þeim lánum sem
námsmenn tóku á námsárum sínum).
ÞH, BP
12 NEYTENDABLAÐIÐ 4.TBL. 2006