Neytendablaðið - 01.11.2006, Blaðsíða 13
Jóhannes Gunnarsson
formaður Neytendasamtakanna
Frá þingi Neytendasamtakanna
A þingi Neytendasamtakanna í haust
var samþykkt ítarleg áætlun um stefnu-
mótun í neytendamálum næstu tvö árin.
Hér verður tæpt á nokkrum atriðum.
Virk samkeppni á öllum sviöum
í samþykktinni var mikil áhersla lögð á virka
samkeppni á sem flestum sviðum, enda er
virk samkeppni mjög mikilvæg fyrir neyt-
endur. Þingið lagði áherslu á að samkeppni
verði aukin í sölu landbúnaðarvara.
Þetta verði gert með niðurfellingu eða
verulegri lækkun á tollum á innfluttar
landbúnaðarvörur. Þannig verði tollar á
svína- og kjúklingakjöti og eggjum felldir
niður samhliða því sem verð á aðföngum
til þessara greina verði sambærilegt við
það sem gerist í nágrannalöndunum. Einnig
að tollar á kindakjöt og mjólkurvörur lækki
verulega nú þegar og falli niður á fáum
árum. Nýlegar fréttir um að þrjú stærstu
mjólkursamlögin ætli í eina sæng knýja
enn frekar á að tollar á mjólkurvörum verði
með öllu aflagðir og fjarlægðarverndin látin
duga íslenskum mjólkuriðnaði.
Bankarnir geta boöið betur
Þingið lagði áherslu á að íslenskir neyt-
endur búa viö allt önnur kjör en neyt-
endur í nágrannalöndunum þegar kemur
aö þjónustu banka og sparisjóða. Það var
niðurstaða þingsins að íslenskir bankar
geti boðið neytendum mun betri kjör en
þeir gera í dag, allavega þegar miðað er
við hagnað þeirra, en einnig þau kjör sem
þeir geta veitt viðskiptavinum sínum í þeim
löndum utan íslands þar sem þeir eru einnig
með starfsemi. Einnig var þess krafist að
stimpilgjöld yröu felld niður.
Samþjöppun á tryggingamarkaði
Þingið benti á að eignaleg samþjöppun hefði
aukist á síðustu misserum og að þrír aðilar
hefðu nálægt 100% markaðshlutdeild. í
krafti fákeppni hafa tekjur tryggingafé-
laganna aukist ár frá ári og einnig hafa
iðgjöld trygginga hækkað verulega á þessu
ári. Þingið hvatti neytendur til að vera á
varðbergi og leita tilboöa frá öðrum trygg-
ingafélögum en þeir skipta við til að ýta
undir samkeppni.
Lyfjaverö of hátt
Þingið benti á að verð á lyfjum sé alltof hátt
hér á landi. Ástæður eru einkum tvíþættar.
í fyrsta lagi eru tvær keðjur orðnar nær
allsráðandi á þessum markaði og í öðru lagi
of lítið framboð samheitalyfja. Um leið og
samkeppnisyfirvöld voru hvött til að fylgjast
vel með þessum markaði voru stjórnvöld
hvött til að knýja á um aukinn innflutning
samheitalyfja.
Neytendalöggjöf þarf aö auka og
bæta
Þing Neytendasamtakanna lagði þunga
áherslu á að neytendalöggjöf verði bætt og
var löggjafarvaldið gagnrýnt fyrir sinnuleysi
hvað þetta varðar.
Þess var krafist að:
• Sett verði lög um innheimtustarfsemi,
hverjir megi stunda slíka starfsemi og
hvernig skuli staðið að henni.
• Sett verði lög um ábyrgðarmenn til að
tryggja réttaröryggi ábyrgðarmanna og
koma í veg fyrir mistök hjá fjármálafyrir-
tækjum.
• Sett verði lög um greiðsluaðlögun þar
sem tryggt yrði að neytendur sem verða
fyrir fjárhagslegum áföllum, svo sem
vegna láts eða veikinda fyrirvinnu eða
vegna atvinnuleysis, geti leitað til óháðs
aðila sem myndi úrskurða hve stóran
hluta af lánum viðkomandi geti greitt og
öll lán lækkuð í samræmi við það. Bent
var á að með slíku næðist að innheimta
stærri hluta skulda en ella, auk þess sem
slík lög tryggðu að einstaklingar í veru-
legum greiðsluerfiðleikum væru áfram
virkir þátttakendur í þjóðlifinu.
• Loks taldi þingið mikilvægt aö lögum
um neytendalán verði breytt þannig að
lántöku-, innheimtu- og uppgreiðslugjöld
verði aldrei hærri en sem nemur kostnaði
lánveitenda en ekki tekjulind þeirra eins
og nú er.
Lög um hópmálsókn
Mikilvægt er að setja lög um hópmálsókn,
en það sýna best samráð oliufélaganna og
hugsanlegar bótakröfur neytenda vegna
tjóns þeirra af samráðinu. Ef slík lög væru
fyrir hendi hefðu Neytendasamtökin getað
farið í mál fyrir alla þá sem leituðu til þeirra
í staö þess að annast um eitt prófmál.
Einnig taldi þingið mikilvægt að samkeppn-
islögum yrði breytt þannig að stjórnendur
fyrirtækja, sem taka ákvörðun um að brjóta
gegn ákvæðum þessara laga, sæti refsi-
ábyrgð. Slíkt ákvæði myndi letja menn frá
því að brjóta gegn samkeppnislögum.
13NEVTENBABLAilfi4.TBL.2006