Foringinn - 01.02.1975, Side 23
AFLRAUNAHAÐURINN
HJÁ DÖMARANUM
Kynnir: Góðir áhorf endur .' Nú
gefst ykkur tækifæri til að sjá
hinn óviðjafnanlega aflraunamann,
Kláus Kleifhuga. Þessi aflrauna-
maÖur getur gert dálítið, sem ég
þori að fullyrða, að enginn nú-
lifandi maður geti leikið eftir
honum. Hann ætlar sár að lyfta
hér hvorki meira né minna en
tvisvar sinnum tíu tonnum. Trúi
nú hver sem vill, en sjón er
sögu ríkarif
Aflraunamaðurinn kemur inn,
klæddur engu nema mittisskýlu.
Þyrfti helzt að vera leikinn af
lágvöxnum, feitum skáta. Lyfti-
tækið er inni. Hvor kúla, (úr
pappa), vegur 10 tonn, eða a.m.k.
stendur það á þeim. Aflraunamað-
urinn lyftir, meö tilheyrandi
látbragði. Eftir miklar stunur
og pústra, tekst honum að lyfta
kúlunum upp á brjóstið. Þá er
eftir þyngsta þrautin, að lyfta
henni með handleggina beina
yfir höfuð sér. Eftir mikil átök
tekst það, og afIraunamaðurinn
kemur lyftitækinu niður á jörð-
ina aftur, með miklum erfiðleik-
um. Aflraunamaðurinn hneigir
sig, og fer út. Sá væskilsleg-
asti skáti, sem hægt er að finna
kemur þá inn, ber "tækið" út
í annarri hendi um leið og hann
flautar lagstúf.
Þessi þáttur, eins og hinn
fyrri, byggist upp á góðum lát-
Leikendur: Dómarinn (D)
Ákærði (Á)
D: Vill næsti, hr. jón Jónsson
gjöra svo vel að koma inn.
(Á kemur inn). Þér eruð
ákærður fyrir að hafa slegiö
til konunnar Jónu Jónsdóttur
£ strætisvagni, um miðjan dag
hinn 30. febrúar síðast lið-
inn. Hafið þér yður nokkuð til
málsbóta?
Á: Já, það var nefnilega þannig,
herra dómari, að ég var í
strætó á leið inn í sundlaug-
ar. Ég fer nefnilega alltaf í
laugarnar eftir vinnu.
D: Svona, haldiö yður við efnið.
Þaö kemur þessu máli ekkert
viö, hve oft þér farið í laug-
arnar. Þér viðurkennið semsagt,
að hafa slegið til konunnar?
Á: já, herra dómari, en það var
ekki að ástæðulausu.
D: Hver var ástæðan?
Á: Jú, sjáið þér til. Ég sat
nokkuð framarlega í strætis-
vagninum, og fylgdist því með
farþegunum, sem komu inn í
vagninn. Svo, á einni biðstöð-
inni, kom þessi kona inn í
vagninn, og settist hinum megin
við ganginn, þ.e.a.s. gegnt
mér. Hún átti eftir að borga.
Hún var með töskuna sína með
sér. Og takið þér nú eftir.
D: Ég hlusta.
Á: Fyrst opnaði hún töskuna, tók
budduna úr töskunni og lokaði
töskunni. Svo opnaði hún budd-
una, tók pening úr buddunni og
lokaði svo buddunni. Síðán opn-
aði hún töskuna lét budduna
£ töskuna og lokaði svo tösk-
unni. Þegar hún hafði fengið
vagnstjóranum peninginn, sagði
Frh.á bls.16