Foringinn - 01.06.1975, Page 24
FORINGJAkJÁLFUNARKERFI
Eins og foringjum er eflaust
kunnugt urn , er reiknaö meö aö
flokksforingjaþjálfun sé í
höndum skátafálaganna en sveit-
arforingja- og æöri þjálfun á
vegum Bandalags ísl. skáta.
Foringjaþjálfunarráö B.l.S. hef-
ur upp á síðkastið unnið aö
uppsetningu foringjaþjálfunar-
kerfis, þar sem eitt námskeiö
tekur við af ööru og efni raðað
á námskeiðin með tilliti til
þess. Þetta kerfi er sýnt hár.
Haustnámskeiðin verða miðuð viö
þessa uppbyggingu.
GRUNNNÁMSKEIB
Skipulag: Námskeiöið fjallar um
öll aldursstig skátun-
ar.
Þátttökuskilyrði:15- 16 ára
(dróttskátar) eða eldri.
Markmið: Kynna hin þrjú aldurs-
stig skátastarfs -
ylf/ljósálfa; skáta-;
og dróttskátastarf.
Vekja áhuga á sv.for.
störfum og veita þá
þekkingu sem þarf til
að aðstoða viö sveita-
starf.
Námskeiðiö er liður í
töku FORSETAMERKIS.
UNDIR3ÚNINGSNAKSKEIS
Skipulag: Sérnámskeið fyrir
hvert aldursstig.
Þáttt.skilyrði: 16-17 ára aldur
eða eldri og hafa sótt
grunnnámskeið.
Markmið: Námskeiðið er ætlað
verðandi sv.for.aldurs-
stiganna.
Af námskeiðinu á skát-
inn að koma tilbúinn
til þess að taka að
sér stjórn sveitar.
FRAMHALDSNÁMSKEIÐ
Skipulag: Geta bæði verið sam-
eiginleg fyrir sv.for.
allra aldursstiga cg
fyrir hvert fyrir sig.
Þáttt.skilyröi : 17-18 ára aldur
og eldri og hafa sótt
undirbúningsnámskeið,
unnið með sveit og
fengið nokkra reynslu
í því starfi.
Markmið: Frekari þjálfun í
ýmsum störfum sv.for.
samkvæmt óskum og þörf-
um þátttakenda.
Námskeiðið er ekki skilyrði til
að geta tekið þátt í Gilwell og
þannig að nokkru laust við
stigann.
GILHELL - námskeið yrðu sameig-
inleg og skilyrði þar aö hafa
sótt undirbúningsnámskeið og
vera eldri en 18 ára.
Ætlað til frekari fræðslu um
skátastörf, byggt mikið að
kröfu þátttakenda.
Gilwell yröi æðsta menntun
sveitarforingja.
NTC og ^ITT eru námskeið ætluð
leiðbeinendum og stjórnendum á
sv.for. námskeiðum.
NTC er haldið hér á landi fyrir
íslendinga eina.
ITT er alþjóðlegt með þáttt. frá
fleiri en einu landi.
Sérnámskeið er ætlað 15 ára og
eldri.
nAmskeið erlendis
SKÁTASTARF MED ÞROSKAHEFTUM:
Skátar munið norrasna námskeið-
ið um skátastarf með þroska-
heftum. Námskeiðið er í
NOREGI 23.-27. júní'75.
(Sjá nánar í 2.tbl.FORINGJANS).
24