Bændablaðið - 13.08.1996, Qupperneq 1
Blað II
0\»u1é\að
Greiðslukort með beinni skuldfærslu
og fjölmörgum öðrum kostum
Einkakort ESSO er viðskipta- og greiðslukort,
ætlað þeim einstaklingum sem hafa áhuga á föstum
lánsviðskiptum við Olíufélagið hf.
Kostirnir eru augijósir:
•é Nú þegar er hægt að gjaldfæra beint af reikningi hjá
Islandsbanka, Landsbanka eða Póstgíróstofunni
J Sundurliðað viðskiptayfírlit er sent reglulega
og einfaldar það bæði bókhald og skattframtal
J Vikuleg gjaldfærsla tryggir afsláttarpunkta
á sama hátt og Safnkort
j Hægt er að nota kortið í sjálfsala ESSO-stöðvanna
j Hvorki stofngjald né útskriftargjald
Margvísleg fríðindi
Olíufélagið hf
-~50ára~
Umsóknareyðublöð með skýringum liggja frammi á bensínstöðvuniESSO
ilýsingar veitir kortadeild Olíufélagsins hf. í síma 5f
Bændahöllin við Hagatorg í
Reykjavík er með þekktari
byggingum í borginni. Því
veldur án efa að þar er til
húsa Hótel Saga, stærsta og
veglegasta hótel landsins,
og nýtir meginhluta hússins.
Eigendur Bændahallarinnar
og jafnframt Hótel Sögu eru
Bændasamtök íslands. Búnaðar-
félag íslands og Stéttarsamband
bænda réðust í þessa byggingu
fyrir 40 árum og hún var tekin í
notkun árið 1962. Um líkt leyti
fluttu eigendurnir starfsemi sína
í húsið og ýmsar fleiri stofnanir
landbúnaðarins. Um áramótin
!994/’95 sameinuðust BÍ og SB
í Bændasamtök Islands.
Samtökin hafa með höndum
kjarabaráttu bænda og
margvísleg sameiginleg málefni
þeirra en auk þess annast þau
leiðbeiningaþjónustu fyrir land-
búnaðinn ásamt búnaðarsam-
böndum í landinu. A vegum
Bændasamtaka íslands starfa
landsráðunautar í flestum
greinum landbúnaðar og hafa
þeir yfirumsjón með leið-
beiningunum hver á sínu sviði.
Notkun á tölvum verður sífellt
mikilvægari við leiðbeiningar í
landbúnaði. Búnaðarsamtökin
reka tölvudeild sem annast hvers
kyns skráningu, uppgjör og
skýrslugerð er varðar landbúnað,
auk umfangsmikillar
hugbúnaðargerðar í þágu
starfseminnar og einstakra
bænda.
Bændasamtökin reka einnig
byggingaþjónustu og um-
fangsmikla útgáfustarfsemi. Á
þriðju hæð Bændahallarinnar er
einnig til húsa Framleiðsluráð
landbúnaðarins. Það var stofnað
árið 1947 og hefur umsjón með
búvöruframleiðslunni og
verðlagningu búvara að svo
miklu leyti sem um hana er
samið. I Bændahöllinni er
Lífeyrissjóður bænda einnig til
húsa.
Nokkur búgreinafélög hafa
þar aðsetur, m.a. Landssamband
kúabænda, Félag hrossabænda,
Svínaræktarfélag Islands, Félag
alifuglabænda og
Æðarræktarfélag íslands. Þá
hefur Landssamband
hestamannafélaga þar skrifstofur
sínar.