Bændablaðið - 13.08.1996, Side 6
6
Bœndablaðið
Þriðjudagur 13. ágúst 1996
Bændablaðið/Bjöm Þorsteinsson
Bændaskólinn á Hvanneyri
Á Hvanneyri í Borgarfjarðarsýslu var stofnaður bændaskóli
1889 og hefur frá upphafi brautskráð hátt í 3000 búfræðinga. í
tengslum við bændaskólann er háskóladeild sem hefur
brautskráð 200 nemendur frá því hún var sett á laggirnar árið
1947. Stór hluti þeirra sem hér hafa stundað nám, hafa með
einhverjum hætti tengst landbúnaði í lífsstarfi sínu, en einnig
má finna fólk í flestum starfsgreinum sem einhverju sinni hcfur
verið hér við nám. Allir eiga þeir þó eitt sameiginlegt að vera
Hvanneyringar.Öflugt endurmenntunarstarf hefur verið sett á
laggirnar á síðustu árum í tengslum við bændaskólann. Þar
gefst bændum og búaliði, auk margra annarra kostur á að efla
þekkingu sína á ýmsum sviðum.Hér eru auk bændaskólans
staðsettar fleiri landbúnaðarstofnanir t.d. Bútæknideild Rala og
Hagþjónusta landbúnaðarins. Margskonar rannsóknastarfsemi
sem tengist landbúnaði fer hér fram, auk þess sem hefðbundin
landbúnaðarstörf eru stunduð, með ær og kýr og nokkuð stórt
loðdýrabú er á staðnum. Hross sjást einnig víða í landi skólans,
flest í eigu staðarbúa.
SúfræðinBur á
leiOtl
Oanmerkur
Við sundlaug staðarins iðar allt
af mannlífi, unglingar við
hefðbundna unglingavinnu sem er
mikilvægur liður í að halda
görðum og gróðri í góðu ástandi
yfir sumartímann.
Verkstjórinn þeirra, Ásmundur
Bjarni Ámason var spurður um
ástæðuna fyrir veru sinni hér á
Hvanneyri. Hann kvaðst hafa
komið hér fyrst til náms í
bændaskólanum og stefnan hafi
verið sett á búfræðinginn, enda
fæddur og uppalinn í sveit.
Markinu hafi verið náð nú í vor, en
þar sem honum og konu hans Auði
Rögn Gunnlaugsdóttur bauðst
vinna á staðnum í sumar eru þau
hér enn.
-Ætlar fjölskyldan að setjast
hérað?
“Ekki í bili a.m.k, því í ágúst
förum við til Danmerkur, ég ætla
þar í bútækninám við Nordisk
landboskole á Fjóni. Hitt er svo
annað mál að okkur líkar öllum
mjög vel hér, þannig að ekki er
ólíklegt að við skoðum möguleika
á vinnu hér að námi loknu. Þessi
staður er mjög fjölskylduvænn auk
þess sem maður er hér í mikilli
nálægð við náttúruna. Við höfum
átt hér góðan tíma og líklega
hefðum við á fáum stöðum getað
búið á skólastaðnum, Auður
fengið vinnu sem hentaði henni og
dóttir okkar átt víst leikskólapláss
eftir því sem þörf var á.”
-Segðu okkur aðeins nánarfrá
námi þínu hér
“Búfræðinámið er tveggja ára
nám ef menn eru bara með grunn-
Ásmundur Bjarni
skólapróf eins og ég var. Fyrsta
önnin er bóklegt nám hér á
staðnum, síðan tekur við ein önn
hjá bændum sem skólinn hefur
samninga við, þar kynntist maður
nýjum aðstæðum við búskapinn og
lærði heilmargt nýtt. Seinni vetur-
inn er tvískiptur, fyrir áramót eru
allir við bóklegt og verklegt nám í
landbúnaðartengdum greinum, en
síðari hluta vetrar velja nemendur
svið og ég t.d. útskrifast héðan af
rekstrarsviði þar sem Iögð er
megináhersla á rekstrar- og hag-
fræðigreinar tengdar landbúnaði.
Tvö önnur svið eru nú við bænda-
deildina búfjárræktarsvið og land-
nýtingarsvið.”
-Hvernig er félagslífi nemenda
háttað?
“Það mótast af nemendum
hverju sinni. Hér eru möguleikar
til að hafa öflugt félagslíf en frum-
kvæðið verður að koma frá nem-
endum. Það eru til allmargar
gamlar hefðir hér en mismunandi
hve virkir nemendur vilja vera í að
viðhalda þeim eða skapa nýjar
stefnur. Skólalífíð sl. vetur var að
mínu mati gott og maður á fullt af
kunningjum eftir veruna hér.”
Kjaftsöur i að
fara í nðmto
Á túnspildu sem skipt er í reiti
með hvítum prikum hittum við
fyrir Daða Má Kristófersson hann
starfar við gróðurtilraunir hér í
sumar. Tilraunir hafa verið gerðar
um margra áratuga skeið með
ýmislegt sem snertir túngróður og
meðhöndlun hans. Það sem kemur
fram við þessar tilraunir er síðan
kynnt bændum, svo þeir hafi
ástæður til að breyta eins og best
hentar hverjum og einum. Daði
Már starfar einnig að rannsóknum
er snerta matjurtir. Þar eru árlega
gerðar gagnmerkar athuganir á
afbrigðum og tegundum matjurta
sem hentað gætu til heimilis-
garðræktar.
-Hvernig komst Daði í þessa
vinnu?
“Ég er hér við nám í bú-
vísindum á vetuma, en fékk síðan
sumarvinnu við jarðræktartilraun-
ir. Upprunalega ætlaði ég í dýra-
lækningar og fór því í bænda-
Daði Már ásamt eiginkonu sinni,
Ástu Hlín Ólafsdóttur.
skólann. Svo var ég eiginlega
kjaftaður inn á að fara frekar í há-
skólann hér og eftir að ég hafði
komist að því með sjálfum mér að
það væru forréttindi að búa á
Hvanneyri, er ég mjög sáttur við
þessa ákvörðun. Háskólanámið er
þriggja ára nám sem tekur á mörgu
innan þessa sviðs, það er því
grunnur fyrir margþætt
framhaldsnám, en hér verður eng-
inn sérfræðingur í smámunum.
Menn læra smávegis um æði margt
sem er bæði kostur og löstur. Þeir
sem hafa lokið námi frá búvísinda-
deildinni hafa ekki átt í neinum
vandræðum með að fá vinnu á sínu
sviði, þannig stendur þessi háskóli
betur að vígi en margir aðrir.”
-Þú segir að það séu for-
réttindi að búa hér, hvemig?
“Hér býr maður við alla kosti
dreifbýlisins, án þess að vera mjög
langt frá þéttbýli S-Vestur homs-
ins.”
-Ætlar þú að vera hér áfram?
“Ég ætla í framhaldsnám í
hagfræði þegar ég er búinn hér.
Ef mitt framhaldsnám gæti nýst til
að fá hér vinnu í framtíðinni væri
ég alveg til í að koma aftur.”
Átta hundruð
mauusí endur-
menntun
f fundarsal rannsóknahúss
Bændaskólans, var hópur fólks á
námsstefnu um hrossabeit og mat
ábeitilandi. Þarna var um að ræða
eitt af fjölmörgum námskeiðum
sem haldin eru á vegum Bænda-
skólans, oft í samstarfí við aðrar
stofnanir. Endurmenntun er stór
þáttur í starfseminni hér og við
Haukur og Auður ásamt börnum.
tókum tali nýráðinn endur-
menntunarstjóra Hauk Gunnars-
son, sem flutti ásamt Ijölskyldu
sinni að Hvanneyri nú f vor.
-Hvaðan kemur þú og hvað
gerir þú hérna ?
“Ég er Reykvíkingur að upp-
runa, dvaldi í Noregi í 7 ár þar
sem ég stundaði nám í sagnfræði
og ensku við Oslóarháskóla.
Síðastliðin 6 ár á hef ég búið á
Húsavrk og starfað þar við
kennslu í grunn- og framhalds-
skóla. I vetur fékk konan mín,
Auður Arnþórsdóttir starf hér sem
dýralæknir á sviði júgursjúkdóma
og ég fylgdi henni að sjálfsögðu
með það í huga að einhverja vinnu
yrði hér að hafa. Þegar endur-
menntunarstjórastarfið losnaði nú
í vor, sótti ég um og fékk það. Þar
sem mér eru fræðslumál hugleikin
og hef verið upptekinn af full-
orðinsfræðslu alllengi þótti mér
spennandi að tengjast mennta-
stofnun sem hefur endurmenntun
sem eina af aðaláherslum sínum.
Hlutverk mitt er að skipuleggja
margvísleg námskeið sem tengjast
landbúnaði. Hingað komu á
síðasta skólaári rúmlega 800
manns á vegum endurmenntunar-
deildarinnar.”
-Nú ert þú nýkominn hingað
hvernig líst þér á staðinn?
-"Afskaplega vel, hér er fallegt,
mannlífið virðist mjög blómlegt og
okkur hefur verið tekið mjög vel
héma. Svo virðist staðurinn góður
til að ala upp böm. Nálægðin við
höfuðborgarsvæðið er einnig kostur,
þar sem fjölskyldur okkar eru
búsettar þar. Samt njótum við kosta
dreifbýlisins, hvað snertir mögu-
leika til útivistar t.d. hesta-
mennsku.”.