Bændablaðið - 13.08.1996, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 13. ágúst 1996
Bændablaðið
11
Fæðudeild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins
Auk þess að vinna upp og
koma á framfæri vönduðum
upplýsingum um
næringargildi matvæla hafa
verið gerðar rannsóknir hjá
Rannsóknstofnun landbúnað-
arins (RALA) þar sem mæld
eru ýmis aðskotaefni í
matvælum. Aðskotaefni eru
þau efni sem eru óæskileg í
matvælum. Á RALA hafa þau
verið mæld í mjólkurvörum og
innmat lamba. Mælingarnar
hafa staðfest hreinleika ís-
lenskra landbúnaðarafurða og
saman ferskt kjöt og kjöt sem hafði
verið fryst. Þetta var gert til þess
að vinnslustöðvar, veitingahús og
neytendur fengju bestu fáanlegar
upplýsingar um meðferð kjötsins
fyrir matreiðslu.
Tilraunir með
loftdregnar og
loftskiptar umbúðir
Jafnframt er verið að kanna
nýjar pökkunaraðferðir og gera
mælingar á geymsluþoli á nýju
kjöti. I því sambandi hafa verið
gerðar tilraunir með umbúðir, t.d.
loftdregnar og loftskiptar umbúðir
og hversu lengi kjötið geymist í
þeim án þess að tapa gæðum.
Á síðustu árum hefur svo
áherslan í gæðamálum verið að
færast yfir í það að unnar eru upp
vörulýsingar, ráðgjöf er veitt og að-
stoðað við innra eftirlit íyrirtækja og
stóreldhúsa, bæði í tengslum við
útflutning og vöruinnkaup.
Starfsmenn fæðudeildar hafa unnið
fyrir opinbera aðila að mótun
reglugerða um kjötmat og innihald
kjötvara, s.s. kjötmagn, fitu o.fl.
Bændablaðið/ÁÞ
Starfsmenn fceðudeildar RALA við bragðprófun.
eru okkur mjög mikilvægar.
Þetta eru upplýsingar sem eru
nauðsynlegar fyrir neytendur,
heilbrigðisyfirvöld,
vinnslustöðvar og yfirvöld í
öðrum löndum.Samanburður
við sambærilegar erlendar
vörur hefur verið okkur mjög
hagstæður.
Áhersla lögð á gæði
og þróun íslenskra
afurða
Næringarefnatöflumar, sem
eru í raun gagnasafn um efnainni-
hald matvæla, em gmnnur fyrir
þróun á nýjum matvælum. Á
fæðudeild RALA er mikil áhersla
lögð á gæði og þróun íslenskra af-
urða. Þær rannsóknir hófust með
því að sérfræðingar fóru í sláturhús
og mældu hita og sýrustig í kjöti
fyrir frystingu við mismunandi
hitastig til þess að geta gefið út
leiðbeiningar um bestu meðferð
kjötsins. Þetta var gert til þess að
koma í veg fyrir kæliherpingu sem
gerir kjötið seigt. Einnig voru
könnuð áhrif grisju og plastpoka á
frystihraða og rýmun lamba-
skrokka. Á svipuðum tíma vom
gerðar mælingar á meymunartíma
lambakjöts þar sem borið var
Matvœlarannsóknir á Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins
eru kannski þœr rannsóknir þar
sem tengslin milli hagsmuna
bœnda og neytenda eru hvað
augljósust. Á fœðudeild RALA
vinna sérfrœðingarnir jöfnum
höndum með bœndum, vinnslu-
fyrirtœkjum og neytendum og
kappkosta að samrœma og upp-
fylla þarfir þessara aðila með
rannsóknum, þróunarstarfi og
miðlun upplýsinga. Að sögn
Guðjóns Þorkelssonar, deildar-
stjóra fœðudeildar RALA, hef-
ur mest áhersla verið lögð á kjötrannsóknir og efnasam-
setningu matvœla. Við rannsóknir á efnasamsetningu hafa
verið tekin sýni úr öllum helstu tegundum mat\’œla frá ís-
lenskum landbúnaði og gerðar mœlingar á þeim. Niður-
stöðurnar hafa verið birtar í ýmsurn skýrslum og í nœringar-
efnatöflum, bœði stórum uppflettiritum fyrir séifrœðinga og
fyrirtœki og í minni handbókum, eins og ritinu Nœringargildi
matvœla sem er handhœgar nœringarefnatöflur fyrir fyrir
skóla og almenning. Þriðja útgáfa þeirra taflna er vœntanleg
fljótlega frá Námsgagnastofnun.
Fagkeppni í kjötiðnaði
á íslandi og í
Danmörku
Ýmiss konar ráðgjöf í
tengslum við vömþróun hefur
aukist mikið undanfarin ár. Fyrstu
verkefnin fólust í því að finna
nýjar aðferðir við söltun og reyk-
ingu á hangikjöti og í framhaldi af
því var tekið upp samstarf við kjöt-
iðnaðarmenn og kjötvinnslufyrir-
tæki um ýmiss konar námskeiða-
hald tengt vömþróun. Þetta starf
leiddi síðan til fagkeppni í kjöt-
iðnaði á íslandi og þátttöku í fag-
keppni í Danmörku. I fag-
keppninni hér heima hafa margar
athyglisverðar nýjungar verið
kynntar og það besta hefur síðan
verið sent í alþjóðlega fagkeppni
kjötiðnaðarmeistara í Danmörku
þar sem árangur Islendinga hefur
verið mjög góður.
Unnið hefur verið með og fyrir
ákveðin fyrirtæki í ýmsum þróun-
armálum, t.d. við brytjun á dilka-
kjöti í sláturtíð og við að endur-
móta kjöt. Eru lambanaggarnir
vinsælu frá Kjötiðju KÞ dæmi um
þá samvinnu. Jafnframt er unnið
að framleiðslu á þurrsöltuðu
lambakjöti sem svipar til hrá-
skinku úr svínakjöti sem þekkt er
víða í Evrópu.
Umfangsmiklar
tilraunir með fóðrun
svína og áhrif á
kjötgæði
Áhrif ýmiss konar meðferðar á
bragðgæði kjöts eru skoðuð. Sem
dæmi má nefna áhrif fóðrunar á
bragðgæði og vinnslueiginleika
kjöts. Nýlega voru gerðar um-
fangsmiklar tilraunir með fóðrun
svína og áhrif fóðursins á gæði
kjötsins. Til þess að skoða áhrifin
er nauðsynlegt að hafa sérþjálfað
fólk og á RALA hefur hópur
starfsmanna verið þjálfaður í
skynmati. í skynmati felst að
dómaramir gefa sýnunum ein-
kunnir fyrir bragð, lykt, áferð og
fleiri þætti. Svínakjöt, lambakjöt
og nautakjöt hefur verið skoðað
með þessum hætti, einnig unnar
kjötvömr, íslenskir bleikjustofnar
og margt fleira.
Starfsmenn fæðudeildar vinna
með starfsmönnum annarra deilda
RALA að mörgum verkefnum
Einnig er góð samvinna við ýmis
samtök bænda, s.s. svínabændur,
kúabændur, sauðfjárbændur og
hrossabændur. Jafnframt er unnið í
samvinnu við aðrar stofnanir;
Framleiðsluráð landbúnaðarins,
Bændasamtök íslands o.fl. Fram-
leiðendur geta haft samband við
fæðudeild og beðið um rannsókn á
tiltekinni vöm og/eða samanburð á
vörutegundum og hafa margir nýtt
sér það.
Neytendur og bændur
Þótt megináhersla sé lögð á
kjötrannsóknir er einnig öðrum
verkefnum sinnt. Má þar nefna
ráðgjöf og verkefni fyrir bakara-
meistara, útreikninga á næringar-
gildi og efnainnihaldi matvæla og
mælingar á trefjum í íslenskum
jurtum, t.d. fjallagrösum.
Eins og sagði í upphafi er með
verkefnum fæðudeildar verið að
reyna að tengja bændur og
neytendur, þ.e. safna upplýsingum
og miðla þeim. Starfsemi deildar-
innar hefur varað í 15 ár þannig að
mikil þekking hefur safnast fyrir
og hægt er að veita ráðgjöf um
margs konar gæða- og þróunarmál.
Fæðudeild hefur staðið fyrir nám-
skeiðum og tekið þátt í upp-
byggingu kennslu í matvælafræði
við Háskóla íslands og Háskólann
á Akureyri og samvinna við
erlenda aðila fer vaxandi.
JOrfium f
fækkafii nm
4,2% fril
198501
1994
Á tíu ára tímabili frá 1985 til
1994 fækkaði jörðum í ábúð
um 203 eða 4,2%. Hafi jörð
áður verið skipt í eitt, tvö eða
fleiri lögbýli og þau ekki sam-
einuð aftur formlega er við-
komandi bóndi talinn ábúandi
á jörð sem hann á lögheimili á
samkvæmt manntali, en hin
eða hinar jarðirnar eru taldar í
eyði sé enginn skráður til lög-
heimilis á þeim. Á framan-
greindu tímabili fjölgaði eyði-
jörðum um 233, en eyðijarðir
eru felldar út af jarðaskrá
ríkisins eftir 25 ár. Til saman-
burðar má geta þess að í
Noregi varð 13% fækkun jarða
í ábúð á fimm ára tímabili frá
1990 til 1995.
Á tímabilinu 1985-1994
fækkaði einbýlisjörðum um 169
og tvíbýlis- eða fleirbýlisjörðum
fækkaði um 34. Hins vegar hefur
jörðum í bæjarfélögum fjölgað á
milli ára, sem á sér m.a. þá
skýringu að hreppar hafa sam-
einast bæjarfélögum (samanber
t.d. Mosfellsbæ og Hveragerði).
Jarðir í eigu “annarra aðila” eru
oftast jarðir í eigu félagasamtaka
eða einstaklinga sem ekki stunda
búskap á viðkomandi jörð. í stað-
inn eru þeir oft með sumarbústaði
eða aðra starfsemi á jörðinni sem
tengist afþreyingu og/eða beit og
hlunnindum. Jörðum í eigu ábú-
enda sjálfra fækkaði um 123 á
tímabilinu 1985 til 1994 á sama
tíma og jörðum í sameign ábúenda
og annarra fjölgaði um 95.
Heillaðist af
íslenska hestinum
Ung, þýsk stúlka, Stefanie
Wolf, skrifaði Bændasamtökum
Islands á dögunum og óskaði eftir
aðstoð við að fá vinnu hjá ís-
lenskum hrossabónda í tvo til þrjá
mánuði.
Stefanía er 25 ára og hefur
mikið dálæti á íslenskum hestum
en þeim kynntist hún átta ára
gömul. Hún á reyndar þijá ís-
lenska hesta og þar af er einn enn
á íslandi. “Ég lauk listanámi í
fyrra. Eftir það ferðast ég um ís-
land og heillaðist af landinu. Nú
langar mig til að vinna í landi ykk-
ar og kynnast íslenska hestinum
enn betur.”
Stefanía hefur komið hingað
til lands og lærði m.a. hesta-
mennsku af Einari Hermannssyni
og segir óhætt fyrir fólk að hafa
samband við hann til að fá
upplýsingar um sig. Sími Einars er
6776488. Sími Stefaníu er 0049
40 605 2324 og fax 0049 4532
21721. Heimilisfangið er Scháfer-
kamp 22,22949, Ammersbek.