Bændablaðið - 13.08.1996, Síða 13
Þriðjudagur 13. ágúst 1996
Bœndáblaðið
13
Forseti klúbbs
matreiðslumanna um
kokkalandsliðið
Gæði lamba-
kjötsins á
ríkan þðtt i
velgengni
okkar
“Góður árangur íslenska kokkalandsliðsins
felur ekki einungis í sér hróður fyrir meðlimi
liðsins og íslenska matargerð heldur einnig fyrir
íslenskan landbúnað sem leggur til hráefni í
þau veisluföng sem liðið hefur boðið fram, ”
segir Jakob Magnússon, veitingamaður og
eigandi matsölustaðarins Hornið í Hafnarstræti
í Reykjavík, en hann er forseti klúbbs mat-
reiðslumanna. Liðið vann til bronsverðlauna á
síðasta Olympíumóti sem haldið var í Frankfurt
árið 1992 og til gullverðlauna á móti, sem
haldið var í Luxemburg árið 1994. Nú stendur
fyrir dyrum að halda næsta Olympíumót en það
er haldið á fjögurra ára fresti og að þessu sinni
verður breytt út af venjunni um keppnisstað
sem lengi hefur verið Frankfurt og keppt í
Berlín.
Jakob segir undirstöðu þess árangurs, sem náðst
hafi á mótinu í Luxemburg, vera íslenska lambakjötið
en sérstakt lambafille hafi verið matreitt vegna
keppninnar. Engin spurning sé um að lambakjötið
veki athygli á erlendri grund sem sérstök gæðavara
sé það matreitt á réttan hátt. “Lambakjötið er í raun
villibráð þar semféð gengur á heiðum uppi mestan
hluta vaxtartímans og er því nánast eingöngu alið á
nýjum gróðri. ísland verður einnig að teljast lítið
mengað land í samanburði við önnur Evrópulönd og
hefur það áhrif á áhuga evrópskra matreiðslumanna
á lambakjötinu sem hráefni í áhugaverða og úrvals
rétti. Þannig er lambakjötið dœmigert fyrir landið og
þar sem Island er lítið þekkt á meðal margra Evrópu-
búa og annarra
útlendinga þá getur
þessi úrvalsvara
virkað sem góð land-
kynning. Góður
árangur í keppni á
borð við Olympíu-
keppni matreiðslu-
manna hefur því mikið
að segjafyrir okkur. ”
Jakob segir að
sumir matreiðslumenn
vilji halda nokkru af
þeirrifitu sem er í
kjötinu meðan á
matreiðslu stendur því
Jakob Magiiússon._________/><?;> telji það geta aukið
bragðgœði þess eða
með öðrum orðum að nota fituna sem krydd og
styrkja þannig hið náttúrulega bragð kjötsins. Aðrir
vilji á hinn bóginn skera fituna frá en smekkur manna
sé nokkuð mismunandi í þessu efni.
Jakob segir að lambakjötið verði áfram
uppistaðan í matreiðslu kokkalandsliðsins í
matargerð en einnig verði bornirfram kaldir réttir
líkt og áður þegar liðið hefur tekið þátt í keppni.
Jakob segir íslenska borðið hafa vakið mikla athygli.
Jakob segir að gesti þessara keppnissýninga geti
keypt sér að borða og verði þá að velja sér ákveðið
land. Margir hafi valið Island og ráði eflaust margt
því vali. Landið sé lítið þekkt og veki því ákveðna
forvitni en einnig telji fólk að um náttúrulegar og
hreinar vörur geti verið að rœða afsvo norðlægum
slóðum. Jakob kvaðst bjartsýnn á þátttöku
kokkalandsliðsins í komandi keppni í Ijósi þeirrar
reynslu sem þegar hafi fengist afþátttöku þess í
ólympíumótum óg öðrum keppnum. Hið góða hráefni
eigi sinn þátt í þeirri velgengni.
Þú
getur haft heppnina með þér!
Það getur borgað sig að rýna ögn í Bændablaðið enda bíða glæsilegir
vinningar þeirra sem fá nöfn sín dregin úr pottinum. Svaraðu
eftirfarandi spurningum og sendu svörin til Bændablaðsins merkt
“GETRAUN” fvrir 31. áoúst.
1. Fyrir hvaða orð stendur skammstöfunin RALA
2. í hvaða sýslu er Hvanneyri
3. Hvað heitir formaður Bændasamtaka íslands?
1. vinningur: Framleiðsluvörur frá Sláturfélagi Suðurlands að
verðmæti kr. 25.000
2. vinningur: Framleiðsluvörur frá Goða að verðmæti kr. 25.000
3. vinningur: Framleiðsluvörur frá Höfn/Þríhyrningi að verðmæti
kr. 25.000
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
auglýsir:
Framleiðnisjóður landbúnaðarins vill efla sókn
fagfólks á sviði landbúnaðar til endurmenntunar
og öflunar nýrrar þekkingar. íþessu skyni verða
á árinu 1996 boðnir fram nokkrir námsstyrkir.
* Sérstök áhersla verður lögð á að styrkja nám í
bjúfjárrækt, fóðurfræði, jarðrækt, þar með talin
garðyrkja, auk náms í hagfræði og greinum sem
snerta rekstur og tækni í búrekstri svo og í
umhverfisfræðum landbúnaðar.
* Allir starfsmenn við leiðbeininga, - rannsókna-
og menntastofnanir landbúnaðarins geta sótt um
styrk, enda hafi þeir starfað í a.m.k. 5 ár hjá
stofnunum landbúnaðarins.
Eftirtaldir styrkir eru í boði:
I. Tveir styrkir að upphæð 500.000,- sem
miðast við að lágmarki 6 mánaða
námstíma, er verði að mestu varið til
náms við erlenda búnaðarháskóla.
II. Sex styrkir að upphæð allt að kr.
300.000.- sem miðast við eins til þriggja
mánaða námstíma. Styrkupphæð miðast
við kr. 80.000 -100.000.- á mánuði
Umsóknarfrestur er til 15. september 1996
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins Laugavegi 120,
105 Reykjavík, sími 525 6400 og hjá formanni
stjórnar sjóðsins í síma 452 4646.
LYFTARAR ÞEGAR
MEST Á REYNIR!
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Reykjavík