Bændablaðið - 15.07.1997, Síða 1
T
13. tölublað 3. árgangur Þriðjudagur 15. júlí 1997 ISSN 1025-5621
Ný reglugerð um
mjólk og
mjólkurvörur
ísk Bænda-
samtahanna
um Mn
var ekki
sinnt
„Áform um að breyta reglu-
gerðinni í þá átt sem raun ber
vitni voru kynnt formanni BÍ á
fundi í landbúnaðarráðu-
neytinu. Ari lét bóka mótmæli
við fyrirhuguðum breytinum
en þau voru ekki tekin til
greina," sagði Sigurgeir Þor-
geirsson, framkvæmdastjóri
BÍ í tilefni af því að ný reglu-
gerð um mjólk og mjólkur-
vörur tekur gildi um áramótin.
„Breyting reglna um frumutölu
byggir á hæpnum forsendum
hvað varðar núverandi ástand
og okkur fannst ótækt að flýta
breytingunni án þess að fara
betur yfir málin. Spurningin er
um það, hvað er raunhæft að
fara hratt í þessar breytingar."
Eftir að reglugerðin hafði
borist BI til umsagnar fóru stjómir
BÍ og Landssambands kúabænda
yfir drögin. „Enn fórum við þess á
leit við landbúnaðarráðuneytið að
það beitti sér fyrir frestun á
setningu hennar þar til tími hefði
unnist til að hafa frekara samráð
um efni hennar. A það var ekki
hlustað,“ sagði Sigurgeir.
„Við óttumst að þau tímamörk
sem reglugerðin setur séu óraunhæf
og sérstaklega að undanþágu-
heimildin sé of þröng, en það breytir
ekki því að nú verða allir að leggjast
á eitt, ráðunautar og dýralæknar við
að aðstoða þá bændur sem eiga við
vandamál að stríða. Baráttan við
frumutölu hefur borið árangur en
tíminn er of skammur."
Sjá nánar á bls. 8
Bœndablaðsmynd: Jón Eiríksson
Einn þeirra dugnaðarbœnda sem býr blómlegu búi við Hrútafjörð er garðyrkjubóndinn Hulda Einarsdóttir. Hún
ásamt jjölskyldu sinni rekur sauðfjárbú en sérgrein Huldu er ylrœktin sem hún hefur starfrœkt í átta ár, með
áherslu á sumarblóm og matjurtir. „Við erum aðeins tveir garðyrkjubœndur hér íbáðum Húnavatnssýslum, ég og
Ólöf í Skrúðvangi á Laugarbakka og engin á Vestfjörðum, svo mér gengur vel að selja framleiðsluna,“ sagði þessi
hressi garðyrkjubóndi sem var í önnum við afgreiðslu plantna með starfsfólki sínu þegar Bœndablaðið sótti hana
heim ígróðurhúsið á Reykjum./JE
Skrifstofur Bændasam-
takanna verða lokaðar frá
26. júlí til 10. ágúst vegna
sumarleyfa starfsfólks. Hægt
verður að fá upplýsingar og
koma nauðsynlegum
skilaboðum um skiptiborð
samtakanna í síma 563 0300.
Þá er þess að geta að
Bændablaðið kemur næst út
2. september. Auglýsingar
þurfa að hafa borist fyrir kl.
17 miðvikudaginn 27. ágúst.
I\lýr forstöOu-
maOur Að-
fangaeftirlitsins
Ólafur Guðmundsson aðstoð-
arforstjóri Rannsóknastofnun-
ar landbúnaðarins hefur
fengið leyfi frá RALA til að
gegna starfi forstöðumanns
Aðfangaeftirlitsins. Ólafur er
settur til eins árs og tók við
starfinu 1. maí síðastliðinn.
Aðfangaeftirlitið starfar sam-
kvæmt lögum nr. 22/1994 um
eftirlit með fóðri, áburði og sáð-
vöru. Það er sjálfstæð stofnun og
heyrir beint undir landbúnaðar-
ráðuneytið. Það hefur eftirlit með
framleiðslu, geymslu og sölu á
fóðri sem ætlað er búfé sem haldið
er til matælaframleiðslu og sölu-
fóðri annarra dýra, svo og alla
sáðvöru, tilbúinn áburð og önnur
jarðvegsbætandi efni. Markmiðið
er að tryggja bændum og öðrum
notendum fullnægjandi vöru í
samræmi við vörulýsingar og
kröfur til landbúnaðarafurða um
hollustuhætti.
Aðfangaeftirlitið er til húsa í
aðalbyggingu RALA á Keldna-
holti. Sími er 577 1010, fax 577
1020 og heimasíða á internetinu er
http://www.rala.is/adfang.
Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar
Ástæða fil að óttast unt
gæfii framleiðslunnar
„Afkoma bænda hefur verið í
sviðsljósinu í langan tíma og
flestum er ljóst að núverandi
starfsgrundvöllur þeirra er með
öllu óviðunandi. Kjör bænda, sem
um þessar mundir eru að jafnaði
talin vera um eða undir fátæktar-
mörkum, koma í veg fyrir eðlilega
endumýjun tækja, búnaðar og
aðstöðu og valda um leið at-
gervisflótta úr landbúnaðinum.
Hvort tveggja getur haft alvar-
legar afleiðingar í för með sér
fyrir samkeppnishæfni landbúnað-
arins á komandi ámm og mjólkur-
iðnaðurinn er þar engin undan-
tekning," segir Guðlaugur
Björgvinsson, forstjóri Mjólkur-
samsölunnar í nýútkomnu frétta-
bréfi MS.
Þá segir í fréttabréfinu að um-
ræðan á nýlegum aðalfundum af-
urðastöðva í mjólkuriðnaði beri
það með sér að bændum er í vax-
andi mæli ljós sú ógnun sem að
steðjar en þegar meðalaldur fjósa
á Suðurlandi sé orðinn 30 ár og
nýbyggingar fjósa heyri til undan-
tekninga sé Ijóst að alvarleg
stöðnun ríki í aðbúnaði fmmfram-
leiðslunnar. „Þegar endumýjun er
í lágmarki og bændur að auki
famir að drýgja tekjur sínar með
margþættum störfum utan bú-
rekstursins er ástæða til að óttast
um gæði framleiðslunnar, bæði í
bráð og lengd. Við óbreyttar að-
stæður er afar erfitt að tryggja
fyrsta flokks framleiðslu og fylgja
þróun og framförum í landbúnaði
nágrannaríkjanna."
Guðlaugur segir það því miður
blasa við að þrátt fyrir talsverða
hagræðingu í búrekstri á undan-
fömum ámm vanti mikið upp á að
eðlilegt samræmi hafi verið á milli
tekna og gjalda. „Þeim vanda sem
nú hefur safnast upp verður vart
ýtt úr vegi nema til komi í senn
breytt verðlagning til bænda og
mun hagkvæmari búrekstur
þeirra."
Þrátt fyrir að búum hafi
fækkað og rekstrareiningar
stækkað telur Guðlaugur að bænd-
ur þurfi að koma með mun rót-
tækari hætti til móts við umsamd-
ar hagræðingarkröfur. „Margir
telja að til þess að búreksturinn
skili framlegð sem staðið getur
undir nauðsynlegri endumýjun
þurfi meðalbústærð hérlendis
nánast að tvöfaldast. Umtals-
verðar breytingar sýnast því óum-
flýjanlegar á næstu ámm og von-
andi finnast ásættanlegar leiðir til
þess að renna nýjum stoðum undir
mjólkurframleiðslu í sveitum,“
segir Guðlaugur. - Sjá nánar
leiðara á bls. 4.
■f