Bændablaðið - 15.07.1997, Blaðsíða 10

Bændablaðið - 15.07.1997, Blaðsíða 10
10 Bændablaðið Þriðjudagur 15. júlí 1997 Limousine tvíkelfingarnir á Klauf sem komu íheiminn hinn 25.júní. Fyrstu Limousine káliurnir í Eyjufirði í Eyjafirði eru nú fæddir fyrstu kálfarnir af Limousinekyni vegna notkunar sæðis úr nautum í Einangrunarstöðinni í Hrísey. Þann 23. júní bar Spíra 19 á Ytri-Reistará í Amameshreppi fyrsta kálfinum. Sá er undan Linda 95452. Kálfurinn er naut og var við fæðingu 43 kg og með 80 sm brjóstummál. Burðurinn gekk vel og án aðstoðar. Meðgöngutími kálfsins var þó 292 dagar. Spíra 19 er sex ára gömul, blendingur af Gallowaykyni. Þess má geta að á Ytri-Reistará fæddist þann 16. júní sl. kvíga af Aberdeen Anguskyni, undan Anga 95400 og Tinnu 51 sem er þriggja Til sölu tætla Deutz Fahr KH 500 árg. 80, vbr. 5,10m. Þrír faxprúðir fjörgammar, tilbúnir í hestaferða- lagið. Uppl. í síma 487 8523 (Þráinn í hád. og kvöldin). Til sölu New Holland 945 heybindivél árg. 88. Mjög góð. Einnig 4 baggavagnar og 10 m færiband. Uppl. í síma 431 2484. ára Galloway blendingur. Fæðing- arþungi hennar var 44 kg en 10 daga gömul var hún orðin 56 kg og hafði þannig þyngst um 1200 g á dag frá fæðingu. Bijóstummál var þá 90 sm. Tvíkelfingar í Klauf Benný 351 í Klauf bar 25. júní tveim kvígukálfum undan Ljúf 95450. Önnur kvígan var 33 kg og hin 30 kg en báðar vom þær með 71 sm brjóstumál. Burður gekk vel og hjálparlaust þótt meðgöngu- tíminn væri 293 dagar./GS Aberdeen Angus kálfur á Ytri- Reistará. Bœndablaðsmyndir: Guðm. Steindórsson Limousine kálfur á Ytri-Reistará. Landbúnaðarráðuneytið hefur í samvinnu við Bændasamtök íslands gefið út kynningar- myndband fyrir ferðaþjónustu- aðila um íslenska náttúru og íslenskan landbúnað. Sýningartími myndarinnar er um 12 mínútur og í henni er ís- lenskur landbúnaður og ffamleiðsla landbúnaðarafurða við íslenskar aðstæður kynnt sem einstakar. Með ífásögninni er m.a. bent á að það er ekki einungis ósnortin fegurð náttúmnnar sem dregur ferðamenn til landsins, heldur er full ástæða til þess að heimsækja Island til að kynnast þeim landbúnaðarafurðum sem þar em ffamleiddar. Þeir sem hafa í hyggju að nota myndbandið við kynningarstörf geta fengið það í landbúnaðarráðu- neytinu og hjá Upplýsingaþjónusm landbúnaðarins í Bændahöllinni. Flugleiðir hafa nú þegar ákveðið að nota myndina í flugvélum sínum. Félag skágarbænda stnfnaO á Vestnrlandi Þann 23. júní sl. var haldinn að Valfelli í Borgarhreppi stofn- fundur Félags Skógarbænda á Vesturlandi. Á fundinum skráðu 18 manns sig sem stofnfélaga. I lögum hins nýstofnaða félags segir m.a., að félagssvæði þess sé Vesturlandskjördæmi og að félags- menn geti allir þeir orðið, sem em eigendur og/eða ábúendur á lög- býlum á félagssvæðinu og stunda eða hyggjast stunda skógrækt á jörðum sínum. Með skógrækt er í þessu tilviki bæði átt við ræktun jólatrjáa, timburskóga, skjólbelta og svokallaðra fjölnytjaskóga (skóga, sem ræktaðir eru lil al- mennra landbóta, fegmnar, útivistar og yndisauka). Helsta hlutverk félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna í hví- vetna, hafa milligöngu í samningum við þriðja aðila (t.d. Skógrækt ríkisins) og að efla sam- heldni meðal félagsmanna, sem og umræður og fræðslu um skógrækt. Vert er að vekja athygli á því, að ekki er sett það skilyrði fyrir aðild að félaginu, að býlið sé á svæði, sem Skógrækt ríkisins við- urkennir hæft til svokallaðrar nytjaskógræktar (öðru nafni timburskógræktar). Lög um Suð- urlandsskóga, þar sem gert er ráð fyrir stuðningi við bæði skjólbelta- rækt og landbótaskógrækt, sem og boðaðar auknar fjárveitingar til skógræktar á næstu áram vegna mikilvægis hennar við bindingu koltvísýrings, vekja vonir um, að í framtíðinni muni fleiri njóta fyrir- greiðslu og fjárstuðnings hins opinbera en þeir einir, sem stunda svokallaða nytja- eða timburskóg- rækt. Auk þess má búast við, í ljósi reynslu undanfarinna ára, að mörk nytjaskógræktarsvæða verði endurskoðuð, og þá fremur vílckuð út en hitt. A aðalfundinum vom kjörin í stjóm: Sigvaldi Asgeirsson, for- maður, Karólína Hulda Guð- mundsdóttir, ritari og Reynir As- geirsson, gjaldkeri. Varamenn í stjóm em: Jón Bjömsson, Deildar- tungu, Vífill Búason, Ferstiklu og Guðbrandur Brynjúlfsson, Brúar- landi. Athygli skal vakin á því, að menn geta gerst stofnfélagar í Fé- lagi Skógarbænda á Vesturlandi til loka þessa árs. Félagsgjald fyrir árið 1997 er kr. 2.500. Em menn hvattir til að hafa samband við ein- hvem eftirtalinna hið fyrsta, hafi þeir hug á að gerast félagsmenn í hinu nýstofnaða félagi: Karólína Hulda Guðmunds- dóttir, Drápuhlíð 40, Rvk. s: 562- 0132, en símanúmer Huldu að Fitjum í Skorradal er: 853-2789. Reynir Ásgeirsson, Svarfhóli í Svínadal, s: 433-8826 eða 854- 8826. Sigvaldi Ásgeirsson, Vilmund- arstöðum í Reykholtsdal, hs: 435- 1126 og 566-6075, en vinnusími Sigvalda er: 566-6014/SÁ BKRONESKRONE HKRONE Bœndur athugið! Síðsumars- afsláttur Frá 15. júlí veitum við síðsumarsafslátt af öllum Krone rúllubindivélum KRONE-vélarnar hafa verið mest seldu rúllubindivélarnar á Islandi síðustu ár VELARs, ÞJÓNUSTAhf Járnhálsi 2, pósthólf 10180,130 Reykjavík, sími 587 6500, fax 567 4274 Útibú Akureyri Óseyri 1 a, sími 461 4040, fax 461 4044 Hryssueigendur Eigum nokkur laus pláss hjá eftirtöldum stóðhestum sem eru á seinna gangmáli. Baldur frá Bakka 84165010, sem fer í hólf að Hrafnsstöðum, Dalvík, 20. júlí, Logi frá Skarði 88186775, sem fer í hólf að Torfunesi, S.-Þing. 20. júlí og Núma frá Þóroddsstöðum 93188902, seinna gangmál, sem fer í hólf að Skinnastöðum, Torfa- lækjarhreppi, A.-Hún. Pantanir berist Zophoníasi í síma 466 1471. Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.