Bændablaðið - 15.07.1997, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 15. júlí 1997
Bœndablaðið
23
Svfnapest í Evrópu
Svínapest geysar nú
um Evrópu og veldur
þar mjög miklu tjóni.
Sérstaklega er ástand
slæmt í Hollandi, en
þar gengur erfiðlega að
ráða við þennan skæða
veirusjúkdóm. Skorið
hefur verið niður á 250
búum þar í landi og er
nú hafin aflífun á frá-
færugrísum til þess að
draga úr fjölda svína í
suðaustur homi lands-
ins en þar er hann sér-
lega mikill. Nú þegar
(júní 1997) hafa um 1
milljón svína verið af-
lífuð í Hollandi vegna
svínapestarinnar og eru
áform uppi um að aflífa fleiri
milljónir til viðbótar. Svínapest er
einnig í Þýskalandi, Ítalíu og
Spáni. Einnig má gera ráð fyrir að
svínapest sé vfða í Austur Evrópu.
Einkenni
svínapestar
Svínapestarveiran sýkir ein-
göngu svín. Villisvín
em oft smituð og em
mörg dæmi um að smit
hafi borist úr þeim í
ræktuð svín. Enda geta
villisvín þvælst allt að
100 km á milli svæða.
Ef veiran berst inn á
svínabú veikjast flest
öll svínin. Einkenni
koma oftast fram eftir 3
- 6 daga (getur verið 2 -
12 dagar). þau em hár
hiti, lystarleysi, rennsli
úr augum ásamt
bólgum, uppköst og
heiftarleg grálituð eða
blóðlituð skita. Svínin
em mjög slöpp, liggja
mikið og em treg til að
hreyfa sig. Afturhluti getur lamast
algerlega eða að hluta til og hreyfa
þá svínin sig einkennilega að aftan
(slettast til). Auk þessa geta komið
fram einkenni frá miðtaugakerfi
og krampar. Einkennandi er fjólu-
blár blær á húðinni sérstaklega á
kvið, eyrum og innanverðum
fótum vegna tmflana í
blóðrásarkerfi. Alls staðar í
Konráð
Konráðsson,
dýralœknir
svínasjúkdóma
Loðdýrabændur
Skorall á ráöherra að breyta
regluni Stotnlánadeildar
Reglur Stofnlánadeildar land-
búnaðarins voru nokkuð til
umræðu á ráðstefnu á loð-
dýradögum á Sauðárkróki fyrir
skömmu og var á ráðstefnunni
samþykkt ályktun til
landbúnaðarráðherra um
breytingu á þeim gagnvart
lánum til loðdýrahúsabyggina
og búrakaupa.
Innihald samþykktar fundar
Jörð til sölu
Til sölu er eyðijörðin
Reykjase! í Lýtings-
staðahreppi. Engin hús eru
á jörðinni né ræktun. Gott
beitiland. Landið er ógirt.
Góð rjúpnaveiði. Tilboðum
sé skilað á skrifstofu
Lýtingsstaðahrepps fyrir
15. ágúst.
loðdýrabænda um þetta efni var að
landbúnaðarráðherra beiti sér fyrir
breytingu á lánareglum Stofnlána-
deildar þannig að lán til loðdýra-
húsa og búra verði afborgunarlaus
í tvö ár. Jafnframt var skorað á
ráðherrann að gera þær breytingar
á reglum að gjalddagi lána verði
seinna á árinu en nú er, t.d. 15.
nóvember.
Auk þessa var samþykkt á
ráðstefnunni eftirfarandi áskomn á
landbúnaðarráðherra: "Ráðstefna
um loðdýrarækt, haldin á Sauðár-
króki 5. júní 1997, skorar á land-
búnaðarráðherra að beita sér fyrir
eftirfarandi:
1. Efla rannsóknir og tilraunir
varðandi fóðurmál með aðsetur á
Hvanneyri.
2. Tryggja rekstrammhverfi
loðdýrabúa hvað varðar lán til fjár-
festinga, lífdýrakaupa og
afurðalána.
3. Jafna mismun á rekstramm-
hverfi fóðurstöðva."
Tillagan var samþykkt sam-
hljóða.
húðinni má sjá stórar sem smáar
blæðingar. Mörg svín drepast.
Eitt helsta vandamálið í
Evrópu í dag er þó að einkenni
verða sífellt vægari í svínunum og
getur þess vegna verið erfitt að
greina sjúkdóminn. Greinar-
höfundur varð einmitt vitni að
þessu þegar hann sótti námskeið
um smitsjúkdóma í Þýskalandi
fyrir nokkrum ámm, þar sem
nokkur svín voru sýkt með svína-
pestarveimnni. Aberandi einkenni
komu aðeins fram í fáum svínum
en vom fremur óljós í öðmm.
Svínapest er alvarlegur smit-
sjúkdómur og flokkast undir til-
kynningarskylda sjúkdóma í
lögum nr. 25/1993 um dýra-
sjúkdóma og vamir gegn þeim.
Smitvarnir
Alltaf er nokkur hætta á að
svínapest eða aðrir álíka sjúkdóm-
ar geti borist til landsins og er
réttast og best að hafa allan vara á
í þessu sambandi. Nú er sá tími er
ferðamenn koma til landsins og ís-
lendingar sækja út, en smit berst
einkum með dýmm, fersku,
söltuðu eða frosnu kjöti og kjöt-
vömm, ferðamönnum, ökutækjum
og dýrasæði.
Fyrirbyggjandi aðgerðir gegn
smiti:
1) Heimsækið ekki svínabú í
þeim löndum þar sem svínapest
geysar.
2) Farið ekki inn á svínabú, né
hleypið öðmm inn, fyrr en a.m.k.
48 klst. eftir að komið er heim frá
útlandi.
3) Ef ferðalangar hafa verið
innan um búfé erlendis verður að
gæta varúðar vegna smits sem
getur borist á höndum, skóm og
fötum. Farið aldrei inn í svínahús
nema eftir fata- og skóskipti, þvott
og sótthreinsun.
4) Takið aldrei inn ósoðin
matvæli erlendis frá. Svínapest
getur borist með fersku og söltuðu
kjöti og kjötvömm og reyndar
lifað í þeim í marga mánuði og
jafnvel ár. Ef svínum em gefnar
ósoðnar matarleifar er það mjög
ömgg aðferð til þess að smita þau
ef smit er til staðar í matvælunum.
5) Forvitnir ferðamenn geta
skyndilega birst - kannski inni á
svínabúi. Em þeir með matvæli
með sér erlendis frá?
6) Ekki flytja inn notaðar
innréttingar, áhöld eða tæki.
7) Verið mjög vakandi yfir
ólöglegum innflutningi á sæði og
dýmm.
8) Viðhafið góðar smitvamir á
öllum svínabúum.
Parftu að auglýsa?
Smáauglýsing í Bændablaðlnu
borgar slg. Fyrsta blað eftir
sumarleyfl kemur út 2. sept.
Þekkir þú
vandamalið ?
Steypuskemmdir og sprungur í
fóðurganginum
Þú getur notaö ALFA PLAST á öll gólf í
fjósinu og í mjólkurhúsið
♦Slitsterkt ♦Auðþrifið ♦Síruþolið
♦ Leitið upplýsinga hjá ALFA LAVAL AGRI
þjónustufulltrúunum
A Alfa Laval Agri
G L 0 B U 5
VELAVERf
Lágmúla 7, 108 Reykjavík
Sími: 588 2600, fax: 588 2601
Bændagisting Áék
á bænum Elliðahvammi v/Elliðavatn. Fimm km frá Reykjavík. Sími 567 4656 Fax 567 4005 Opið allt árið. Hríngdu og fáðu sendan myndabækling.
Heyskapur í fifirum
varnarhúlfum
Þegar sækja þarf heyskap eða
fara til heykaupa í annað vamar-
hólf en það, sem menn búa í er
skylt samkvæmt lögum, að fá leyfi
yfirdýralæknis fyrir flutningnum.
Öruggast er að heyja aðeins
lönd sem friðuð hafa verið fyrir
búfjárbeit í 1 ár að minnsta kosti
og ekki verið borinn á húsdýra-
áburður. Alltaf skal hafa í huga þá
smithættu sem kann að vera til
staðar, hvort sem sótt er á meira
sýkt eða minna sýkt svæði en eigið
svæði. Menn geta borið smitefni
milli staða með heyi(heymaurar),
tækjum og vélum. Skipting
landsins um áratuga skeið í vamar-
hólf hefur með tímanum skapað
mismunandi ástand hvað tekur til
smitsjúkdóma.Vandi er að sótt-
hreinsa.
Þar sem riða hefur nýlega
komið í ljós er veruleg hætta á
riðusmiti. Reynslan sýnir að hún
getur einnig verið til staðar, þótt
nokkuð sé liðið frá því að skipt var
um fé og sótthreinsað. Garnaveiki
er dæmi um sjúkdóm, sem berst
milli staða með heyi og lífrænum
efnum. Salmonellasýklar lifa
mánuðum saman í jarðvegi. Ýmsir
sýklar sem mynda dvalargró geta
lifað mörg ár í jörð. Fleiri smit-
sjúkdómar geta borist með heyi
milli staða, þótt ekki verði taldir
hér.
Heppilegast er að fá lánuð öll
tæki á bænum þar sem heyjað er.
Það er ekki alltaf hægt. Hættulítið
er að fara með dráttarvélar á milli,
en þó er rétt að þvo af þeim sjáan-
leg óhreinindi.
Ef ekki er unnt að fá lánuð
heyskapartæki skal sótthreinsa vel
og láta trúverðugan mann staðfesta
skriflega hvenær og hvernig það
var gert./Sigurður Sigurðarson,
dýralæknir.
Notaðar vélar frá Búvélum ehf
Dráttarvélar Verð án vsk.
Fiat 8090, 4x4, 80 hö, árg. 91, með tækjum. kr. 1.700.000
MF 390, 80 hö, afturdrifin, árg. 91 kr. 1.350.000
Case 485L, 50 hö, afturdrifin, árg. 85 kr. 450.000
Zetor 7711,71 hö, afturdrifin, árg. 88 kr. 600.000
Zetor 7011,50 hö, afturdrifin, árg. 85 kr. 300.000
Notaðar heyvinnuvélar Krone sláttuvél með knosara, árg. 94 kr. 190.000
Krone sláttuvél með knosara, árg. 93 kr. 175.000
Stautmann heyhlv. 36m3, árg. 89, 2 hásingar kr. 590.000
Claas rúllubindivél, árg. 87 kr. 550.000
Ýmislegt fleira á skrá, leitið upplýsinga
Síðumúla 27 108 Reykjavík Sími 568 7050 Fax 581 3420 búvélar ehf E-mall: ths«centrum.ls