Bændablaðið - 15.07.1997, Blaðsíða 16

Bændablaðið - 15.07.1997, Blaðsíða 16
16 Bœndablaðið Þriðjudagur 15. júlí 1997 VesHendingar á framfara- braut á Kaldármelum Fjórðungsmót Vestlendinga var haldið á Kaldármelum 26.-29. júní s.l. Alls voru sýnd þar 67 kyn- bótahross, 14 stóðhestar og 53 hryssur. Framganga hrossanna gaf greinilega til kynna að Vestlend- ingar ætla sér ekki minni hlut í kynbótastarfinu en ræktunarmenn annarra landshluta. Það er greini- legt að átak þeirra við að ná í góða kynbótahesta er farið að skila sér með miklum myndarbrag. Vest- lendingar hafa í mörg ár notið mikils stuðnings og velvildar búnaðarsambanda á svæðinu og það er líka lykill að þessum góða árangri. Þó segja megi að hrossin sem sýnd voru hafi ekki verið ýkja mörg þá eru það fyrst og síðast gæðin sem skipta máli en ekki magnið og mætti það vera öllum til eftirbreytni. aðaleinkunn 8,22 og í þriðja sæti varð Líf frá Kirkjuskóg undan Stíganda frá Sauðárkróki og Gustu frá Kvennabrekku með 7,75 fyrir byggingu og 8,51 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8,13. Fimm vetra hryssumar guldu þess að vera ekki Hestar Guðmundur Birkir Þorkelsson Bœndablaðsmynd: Skúli Skógarbœndur í réttu umhverfi á stofnfundinum. Fjögur hross í heiðursverðlaun Tveir stóðhestar voru sýndir með afkvæmum og fengu báðir heiðursverðlaun. Ofar stóð Stíg- andi frá Sauðárkróki með 129 stig fyrir 52 dæmd afkvæmi og næstur honum Kolfinnur frá Kjarnholtum með 126 stig fyrir 57 dæmd af- kvæmi. Afkvæmahópar beggja þessara hesta vöktu athygli á sýningunni. Tvær hryssur fengu einnig heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og þær komu báðar frá sama bænum, Sveinatungu í Norðurárdal. Fúga stóð efst með 124 stig fyrir 6 af- kvæmi og Maddonna næst með 122 stig fyrir 6 afkvæmi. Sannar- lega glæsilegur árangur hjá þeim feðgum Þorvaldi Jósepssyni, sem nú er búsettur í Borgamesi, og Jósep Valgarð Þorvaldssyni en hann býr á Víðivöllum fremri í Fljótsdal austur. 12 hryssur fengu 1. verðlaun fyrir afkvæmi. Stóðhestamir f sex vetra flokki stóðu fæstir undir þeim dómum sem þeir náðu á mótinu enda vom þar oft háar einkunnir gefnar. Efst- ur varð Þröstur frá Innri-Skelja- brekku undan Kveik frá Miðsitju og Glóu frá Innri-Skeljabrekku með 8,05 fyrir byggingu og 8,47 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8,26 og í öðm sæti varð Ferill frá Haf- steinsstöðum undan Otri frá Sauð- árkróki og Litlu-Toppu frá Haf- steinsstöðum með 7,73 fyrir byggingu og 8,59 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8,16. Fimm vetra flokkurinn var jafnsterkastur. Allir hestamir fjórir vom álitlegir og efnilegir. Efstur varð Eiður frá Oddhóli undan Gáska frá Hofs- stöðum og Eiðu frá Skáney með 8,15 fyrir byggingu og 8,61 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8,38. í öðm sæti Hamur frá Þóroddsstöð- um undan Galdri og Hlökk frá Laugarvatni með 8,30 fyrir byggingu og 8,31 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8,31. Einn Qögurra vetra hestur var sýndur, Starri frá Hvítanesi undan Orra frá Þúfu og Dýrðmundu frá Hvítanesi sem fékk 7,95 fyrir byggingu og 7,86 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 7,90. Sex vetra hryssumar vom 20 og langflestar prýðisgóðar, þær bestu afbragðsgóðar. Efst stóð Sóley frá Lundum undan Stíganda frá Sauðárkróki og Stiklu frá Syðstu-Fossum Hún hlaut 8,20 fyrir byggingu og 8,41 fyrir hæfi- leika, aðaleinkunn 8,31. Önnur varð Valdís frá Erpsstöðum undan Kjarval frá Sauðárkróki og Sædísi frá Meðalfelli með 8,00 fyrir byggingu og 8,44 fyrir hæfileika, nógu jafngóðar hvað varðar bygg- ingu og hæfileika. Efst varð Snót frá Hjarðarholti undan Óríon frá Litla-Bergi og Skjónu frá Hjarðarholti með 7,85 fyrir byggingu og 8,24 fyrir hæfi- leika, aðaleinkunn 8,05. Önnur varð yaka frá Brúarreykjum undan Öðlingi frá Tunguhálsi og Eldingu frá Brúarreykjum með 8,25 fyrir byggingu og 7,77 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8,01. Efst fjögurra vetra hryssna varð Dala- dís frá Leimlæk undan Hervari frá Sauðárkróki og Þokkadís frá Neðra-Ási með 7,95 fyrir byggingu og 8,09 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8,02 og í öðm sæti varð Skipting frá Hvítanesi með 7,80 fyrir byggingu og 7,89 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 7,84. Sýning ræktunarbúa 18 ræktunarbú sýndu þarna fimm hross hvert og var það vem- lega skemmtileg sýning. Þessum hópum var raðað af kynbóta- dómumm mótsins en það er áreiðanlega ekki besta fyrirkomu- lagið og spurning hvort yfir höfuð á að vera að raða þessum ágætu hópum. Áhorfendur ættu þá að sjá um þá hlið með einhverjum ráðum. Bestu hóparnir að mati undirritaðs komu fram í þessari röð: Skáney, Hofsstaðir, Svigna- skarð, Skjólbrekka, Brimilsvellir og Sveinatunga. Ekki er nein ástæða til að hrósa framkvæmd mótsins og að- stæðum. Þar vantaði töluvert á fagmennskuna þó ekki ylli neinum vandræðum./GBÞ Trégirðinga- staurar Fúavarðir, rúnaðir beinir ^ 1,83M x 60mm Vörunúmer: 459 183X63 Verð:264 án vsk. 562 2262 Landssamtök skógareigenda stofnuð á Hallormsstað eina alla skúgar- bændur landsins Landssamtök skógareigenda voru stofnuð á Hallormsstað hinn 28. júní síðastliðinn. Að stofnuninni stóðu Félag skóg- arbænda á Fljótsdalshéraði, Félag skógarbænda við Eyja- fjörð og Félag skógarbænda á Suðurlandi. Formaður lands- samtakanna er Edda Björns- dóttir skógarbóndi á Miðhús- um á Héraði. Fyrir tveimur árum var sett á stofn þriggja manna nefnd, skipuð einum fulltrúa frá hverju félagi skógarbænda, til að vinna að stofnun landssamtaka. Fyrir ári skilaði nefndin af sér hugmyndum og drögum að lögum en það var ekki fyrr en 28. júní sl. sem lands- samtökin urðu að veruleika. Félag skógarbænda á Fljótsdalshéraði tók að sér að sjá um stofnfundinn og í tengslum við hann var gestum boðið að taka þátt í kynnisferð um Héraðið þar sem skoðaðir voru misgamlir skógar, skjólbelti og fleira. Hin nýstofnuðu Lands- samtök skógareigenda hafa, sam- kvæmt lögum sem samþykkt voru á stofnfundi, það að meginmark- miði að sameina alla skóga- rbændur landsins og bæta aðstöðu skógræktar sem atvinnugreinar í sem víðustum skilningi. Enn fremur að eiga samskipti við hlið- stæð samtök erlendis og hvetja til rannsókna og fræðslu skógar- bændum til hagsbóta. Samkvæmt lögum landssamtakanna eiga þau að vera samtök félaga skógar- bænda og einstakra skógarbænda sem rækta eða eiga skóg á bújörð- um. Þar segir einnig að skógar- bóndi teljist hver sá sem uppfyllir skilyrði 3. greinar samþykkta Bændasamtaka íslands og í at- vinnuskyni stundar skógrækt til einhverra nota, s.s. til viðarfram- leiðslu, vegna ferðaþjónustu, úti- vistar eða landgræðslu. Gunnar Sverrisson, formaður Félags skógarbænda á Suðurlandi, sagði á stofnfundinum frá vinnu þriggja manna nefndarinnar. í máli hans kom fram að nefndin hefði í upphafi sett sér tvær meginfor- sendur. Annars vegar að þessi samtök yrðu búgreinafélag innan Bændasamtaka Islands og hins vegar að allir félagar hefðu jafnan rétt á fundum samtakanna. Hann sagði einnig að þótt bændur stæðu að stofnun samtakanna væru þau ekki einungis fyrir þá heldur einnig aðra skógareigendur. Guðmundur Bjamason land- búnaðarráðherra flutti ávarp á stofnfundinum og sagði m.a. að sl. vetur hefðu þijú mál sem snertu skógrækt komist í gegn á Alþingi. í fyrsta lagi hefði verið samþykkt að veita hundruðum milljóna til aldamóta í að græða upp landið og binda lofttegundir. I öðru lagi hefði Suðurlandsskógum verið hleypt af stokkunum og í þriðja lagi væri þingsályktun um að gera heildaráætlun í skógrækt fyrir landið allt á næstu árum. Ráðherra sagðist telja víst að nytjaskógrækt væri komin til að vera og óskaði nýjum samtökum alls hins besta. Á stofnfundi Landssamtaka skógareigenda voru fleiri gestir en félagar þeirra þriggja félaga skóg- arbænda sem stóðu að stofnuninni. Þar á meðal var Ólafur Oddsson, kynningarfulltrúi Skógræktar ríkisins og verkefnisstjóri fyrir Skógrækt með Skeljungi. í máli hans kom fram að innan þess verk- efnis væru nokkur hundruð skógareigenda með mörg þúsund hektara af vaxandi skógi sem vonuðust til að þessi nýju samtök yrðu opin þeim. Ólafur færði sam- tökunum einnig veggspjald frá verkefninu ásamt hamingjuóskum. Meðal tillagna sem sam- þykktar voru á stofnfundinum var að stjóm landssamtakanna legði fram endurskoðuð lög samtakanna á fyrsta aðalfundi. Einnig var samþykkt að fela stjóminni að sækja um aðild að Bændasamtökum Islands. I stjóm Landssamtaka skógar- eigenda vom kjörin: Edda Bjöms- dóttir á Miðhúsum, Davíð Guð- mundsson á Glæsibæ og Sigurður Jónsson í Ásgerði. Að loknum stoíri- fundinum bauð Félag skógarbænda á Fljótsdalshéraði til skógarveislu í Víðivallaskógi. Þar fluttu nokkrir ávörp og óskuðu nýjum samtökum til hamingju. Jón Loftsson skógrækt- arstjóri bar samtökunum kveðju ffá samtökum skógareigenda í Skandi- navíu og flutti boð frá þeim íyrir tvo fulltrúa nýstofnaðra landssamtaka á ársfúnd norrænna skógareig- endasambanda í ágúst. Sigurður Blöndal fyirum skóg- ræktarstjóri flutú samtökum hamingjuóskir ffá Skógræktarfélagi Islands og Orri Hrafnkelsson, for- maður Skógræktarfélags Austur- lands, færði landssamtökunum tvö tré sem gróðursett vom í veislu- ijóðrinu./S Óska eftir hjólbörðum 35“x15. Uppl. í síma 456 2038 eftir kl. 21. RED STAR er gam sem er mörgum kunnugt, enda reynist það mjög vel. TYPE-1 er blátt gam fyrir rúllubindingu, 2 rúllur í pakka (7 kg), 680 metrar í hveiju kílói. Verð:1.426 án vsk. pakkinn. TYPE-2 er rústrautt gam fyrir baggabindingu, 2 rúllur í pakka (10 kg), 370 metrar í hverju kílói. Verð: 1.761 án vsk. pakkinn.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.