Bændablaðið - 15.07.1997, Síða 4

Bændablaðið - 15.07.1997, Síða 4
4 Bændablaðið Þriðjudagur 15. júlí 1997 Bændablaðiði Útgefandi: Bændasamtök íslands Bændahöll við Hagatorg, 127 Reykjavík Sími5630300 Fax á aðalskrifstofu BÍ 562 3058 Fax hjá Bændablaðinu 552 3855 Kennitala 631294-2279 Ritstjóri Áskell Þórisson (ábm.) Beinn sími ritstjóra 563 0375 GSM sími 893 6741 Heimasími ritstjóra 564 1717 Netfang ath@bi.bondi.is Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason Beinn sími auglýsingastjóra: 563 0303 Blaðstjórn: Sigurgeir Þorgeirsson, Hörður Harðarson, Haukur Halldórsson Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til ailra bænda landsins. Það er prentað í 7000 eintökum og fara 6.780 eintök (miðað við 15. júní 1997) eintök í dreifingu hjá Pósti og síma. Bændablaðinu er dreift frítt til þeirra er búa utan þéttbýlis. Prentun: ísafoldarprentsmiðja ISSN 1025-5621 Ritstjórnargrein Afkoma og gæði í mj ólkurframleiðslu Illt er til þess að vita að léleg afkoraa kúa- bænda ógni gæðum framleiðslunnar, en þetta kemur fram grein eftir Guðlaug Björgvins- son, forstjóra MS, í fréttabréfi Mjólkursam- sölunnar. Og ástæðan? Léleg afkoma bænda og atgervisflótti úr landbúnaðinum. Margt geta bændur gert til að breyta þróuninni - og margt hefur verið gert. Þannig hafa kúabændur lagt gífurlega áherslu á hagræðingu í rekstri búa sinna og margir náð umtalsverðum árangri. Guðlaugur dregur ekki dul á að úr- vinnsluiðnaðurinn þarf að endurskipuleggja rekstur sinn. Hann nefnir að fækkun afurða- stöðva á Suður- og Vesturlandi hefur þegar skilað „langþráðum arðgreiðslum". Nú er komið að öðrum landshlutum og er skemmst að minnast hug- mynda Norðlendinga um sameiningu afurðastöðva á sínu svæði. Þá nefnir Guðlaugur að „margar ólíkar leiðir þurfí að fara til að bæta afkomu bænda og leggja nýjan grunn að fagmennsku í frumframleiðslunni. „Hvetjandi verðlagningarkerfí, sem t.d. um- bunar sérstaklega fyrir framleiðslu úrvalsmjólkur, er eitt af þeim tækifærum sem sjálfsagt er að velta fyrir sér og á öllum víg- stöðvum þarf að vinna hratt því núverandi ástand býður hættunni heim. Islendingar stunda landbúnað sinn í einni hreinustu náttúru- auðlind heims og þeim gæðum þarf að skila óaðfinnanlega á borð neytandans.“ í sama fréttabréfí er viðtal við Magnús H. Sigurðsson, stjómar- formann MS og honum er líkt og Guðlaugi umhugað um að kanna möguleika á að verðlauna úrvalsmjólk. „Eg er viss um að með því að greiða meira fyrir úrvalsmjólk berst betri mjólk en áður frá bændum en við höfum fengið hingað til. Ég tel að með ábatakerfi náum við helst þeim árangri sem við stefnum að, sem er að fram- leiða heimsins bestu mjólk sem ætti að gera okkur kleift að selja afurðir okkar á mörkuðum utan Islands.“ Viðskiptaumhverfið hefur tekið gjörbreytingum á liðnum ámm og hvort sem mönnum líkar betur eða verr verða þeir í æ ríkari mæli að treysta á eigin mátt. Þessa gætir ekki einvörðungu í landbúnaði heldur í atvinnulífi landsmanna yfirleitt. Þetta þýðir meðal annars að verð mjólkur hlýtur að íylgja almennri verðlagsþróun en vart er að vænta hækkana umffam hana. Dr. Agúst Einarsson, alþingismaður, orðar þetta svo í blaðinu í dag að „mikilvægt sé að íslenskur landbúnaður skynji stöðu sína sem hluti af heild og að hagkerfið byggir æ meira á almennum reglum í stað sérreglna.“ I annan stað verða bændur að ráðast gegn kostnaðarþættinum í rekstri kúabúa. Sjálfsagt telja ýmsir að þar sé vart hægt að gera betur en staðreynd málsins er önnur - enn eru eftir óunnin lönd á þessu sviði. Síðast en ekki síst verður úrvinnsluiðnaðurinn að taka sér tak og trúlega er sameining afurðastöðva og sérhæfing í vinnslu lykilorðið. Þórarinn E. Sveinsson, mjólkursamlagsstjóri KEA á Akureyri, telur að þekki menn ekki sinn vitjunartíma sé þess ekki langt að bíða að innfluttar mjólkurafurðir ryðji íslenskum vörum úr vegi. Eftir hverju er þá beðið? Áskell Þórisson, ritstjóri Bœndablaðsins Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði Millj.lítra Ftaungreiöslur fyrir mjólká árunum 1991 til 1996. Reiknaðar greiðslur samkvæmt verðlagsgrundvelli. Áhrif ehiainnihalds ii greiíslur afurðastfiOva lyrir mjúlk í Bændablaðinu sem út kom 22. apríl sl. er opið bréf frá Sigurgeir Pálssyni Sigtúnum varð- andi áhrif efnainnihalds á greiðslur fyrir mjólk. Þar kemur fram að við ákvörðun efnainnihalds meðal- mjólkur er stuðst við þriggja ára meðaltöl varðandi efnahald mjólk- urinnar. Vegna lækkandi meðal- efnainnihalds mjólkurinnar hefur það leitt til að verðlagsárið 94/95 voru greiðslur afurðastöðva til mjólkurframleiðenda um 50 milljón kr. lægri en verið hefði ef efnainnihald hefði náð viðmiðun- armjólk og 95/96 um 30 millj. lægri. Þróun þessi sést einnig vel á meðfylgjandi línuriti sem Jón K. Baldursson hjá SAM hefur unnið. Þar má einnig sjá að frá 1991 - 1993 fengu bændur að meðaltali liðlega grundvallarverð fyrir meðalmjólk. Ekki verður fullyrt að ein reikniaðferð í þessu efni sé réttust, þó má ljóst vera að lágmark er að taka meðaltal yfir heilt ár vegna árstíðasveiflna í efnainnihaldi mjólkur og hafa verður í huga að sveiflur vegna veðurfars geta orðið verulegar milli ára, sem fleiri ára meðaltal ætti aðjafna. Augljóst er að gildandi reikni- aðferð hefur undanfarin þijú ár gefið bændum lakari greiðslur fyrir mjólk en meðaltal sem byggt væri á skemmri tíma. Þetta var þó ekki það sem búist hafði verið við. Ætla hefði mátt að með auknum greiðslum fyrir efnainnihald hefði markvissari fóðrun með aukið pró- tein í mjólkinni að leiðarljósi og kynbótastefna á sama veg átt að leiða til vaxandi prótíns í mjólk- inni. Við vaxandi efnainnihald gefur þriggja ára meðaltal bændum ætíð hærra meðalmjólkurverð en verðlagsgrundvöllur ákvarðar. Að breyta reiknireglu nú er því ekki bændum hagkvæmt nema ætla megi að efnainnihald mjólkur vaxi ekki á næstu árum. Ræktun fyrir auknu prótíni mun væntanlega skila árangri og aukin þekking á fóðrun ætti einnig að auka efnainnihald mjólkurinnar. Mjólkurvörumarkaðurinn er miðaður við efnainnihald en greiðslumarkið mælist í lítrum, og því fjölgar þeim lítrum sem bein- greiðslur greiðast á, ef efnainni- hald mjólkurinnar minnkar. Athugun á efnainnihaldi mjólkur það sem af er verðlags- árinu 1996/97 bendir til að það verði nálægt því þriggja ára meðal- tali sem gildir fyrir verðlagsárið og heildargreiðslur því nálægt gmndvallarverði á lítra. Með nákvæmri sumarfóðrun sem raunar virðist full þörf á til að ná heildargreiðslumarki verðlags- ársins má jafnvel ætla að efnainnihald mjólkur gæti orðið yfir reiknuðu meðaltali. Af lækkandi efnainnihaldi meðalmjólkur hefur leitt að ekki hefur náðst viðmiðunarverð verð- lagsgrundvallar mjólkur á síðustu árum. Takist að hækka efnainni- hald mjólkurinar á næstu árum mun gildandi regla óbreytt með sama hætti leiða til að meðalverð til bænda verður hærra en við- miðunarverð. /AT Á dögunum ajhentu forsvarsmenn RALA og Landgrœðslunnar Guðmundi Bjarnasyni, landbúnaðarráðherra, eintak af frœðslubœklingum Að lesa landið. Ölafur Arnalds tók saman efni bœklingsins og á meðjylgjandi mynd tekur Guðmundur á móti honum. Tilgangur bœklingsins er að frceða almenning um ástand landsins. Honum er œtlað að gera hverjum og einum fœrt að meta umhverfi sitt, gróðurfar, jarðvegsrof og síðast en ekki síst, hvernig landið œtti að líta út og til h vaða aðgerða hcegt er að grípa til landbóta. Bœklingurinn var unninn í beinu framhaldi af bókinni Jarðvegsrof á íslandi. Guðmundur Bjarnason sagði á kynningarfundi að jarðvegsrof vœri eitt þeirra miklu vandamála sem ráðuneyti hans þyrfti við að glíma og hann fagnaði útgáfu bœklingsins. Ráðherrann gat þess að ráðuneytið vœri nú að skoða lög sem fjalla um búfjárhald og fjallskil - en auk þess vceri aukið hrossahald vaxandi vandamál og veeri œtlunin að líta á þau mál í nánu samráði við Félag hrossabœnda og Landsamband hestamanna. Ólafur Arnalds sagði að gróðurfar á íslandi vœri alls ekki nógu gott en margt vœri hœgt að gera til að bœta ástandið. „Stórir hlutar landsins einkennast af rofsvœðum og auðnum þar sem slíkt œtti alls ekki að vera,“ sagði Ólafur.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.