Bændablaðið - 15.07.1997, Síða 12
12
Bœndablaðið
Þriðjudagur 15. júlí 1997
Um jöfnun námskostnaðar
Allt frá árinu 1972 hafa verið í
gildi lög um ráðstafanir til að jafna
námskostnað nemenda í fram-
haldsskólum. Gildandi lög um
þessi efni eru nr. 23 frá 1989 og
fjalla bæði um styrki til ein-
staklinga og stuðning við skóla-
akstur.
Tilgangur laganna kemur fram
í 1. grein þeirra:
„l.gr. Ríkissjóður veitir náms-
styrki til jöfnunar á fjárhagslegum
aðstöðumun nemenda í framhalds-
skólum að því leyti sem búseta
veldur þeim misþungum fjárhags-
byrðum eða efnaleysi torveldar
þeim nám, sbr. 5. grein“.
I 2. og 3. grein laganna kemur
fram hverjir eigi rétt á styrkjum og
hvers konar styrkir eru veittir:
„2.gr. Réttar til námsstyrkja
samkvæmt lögum þessum njóta ís-
lenskir nemendur sem stunda
reglubundið framhaldsnám hér á
landi og verða að vista sig utan
lögheimilis og íjarri fjölskyldu
sinni vegna námsins, enda sé ekki
unnt að stunda sambærilegt nám
frá lögheimili eða
öðrum dvalarstað sem
námsstyrkjanefnd met-
ur jafngildan. Eigi
skulu þeir njóta styrks
er eiga rétt til láns úr
Lánasjóði íslenskra
námsmanna eða njóta
hliðstæðrar fyrir-
greiðslu.
3.gr. Styrkir sem
nemendur njóta sam-
kvæmt lögum þessum
eru:
a) ferðastyrkir,
en þeir eru veittir nem-
endum sem verulegan
ferðakostnað bera
vegna búsetu sinnar,
b) fæðisstyrkir er samsvari
áætluðum hlut launakostnaðar í
heildarfæðiskostnaði nemenda í
skólamötuneyti,
c) húsnæðisstyrkir, en þeir
eru veittir nemendum sem ekki
eiga kost á heimavist og miðast
þeir við helming áætlaðs hús-
næðiskostnaðar,
d) sérstakir styrkir
sem námsstyrkjanefnd
er heimilt að veita efna-
litlum nemendum".
Auk þess sem hér
kemur fram um veitingu
styrkja er heimilt sam-
kvæmt 5. grein laganna:
,,a) Að veita ein-
stökum nemendum við-
bótarstyrki ef efnaleysi
torveldar þeim nám.
b) Að veita ein-
stökum nemendum
styrki þótt þeir fullnægi
ekki skilyrðum 2. grein-
ar þessara laga ef efna-
hagur er þröngur eða
aðrar gildar ástæður tor-
velda þeim nám“.
Samkvæmt upplýsingum
námsstyrkjanefndar bárust alls um
2800 styrkumsóknir vegna síðasta
skólaárs og voru veittir um 2400
styrkir. Styrkupphæðir voru eftir-
farandi fyrir tvær annir:
Ferðastyrkur: kr. 0 - 27.500
Fæöisstyrkur: kr 40.000
Húsnæöisstyrkur: kr 14.000 - 16.000
Sigurgeir
Þorgeirsson,
framkvæmdastjóri
Bœndasamtaka
íslands
Alls námu beinir styrkir um
106 millj. kr. en auk þess fóru 30
millj. kr. til að styrkja skólaakstur.
Rétt er að vekja athygli á því,
sem fram kemur í 2. grein laganna,
að nemendur eiga því aðeins rétt á
styrk, að þeir geti ekki stundað
námið, eða sambærilegt nám frá
heimili sínu. Enn fremur er það
svo, að þar sem skólaakstur er í
boði koma engir styrkir til greina,
nema í þeim tilvikum að langt sé
að fara í veg fyrir skólabfl, þá hafa
verið greiddir ferðastyrkir. Miðað
hefur verið við 3 km vegalengd í
þessu sambandi.
Aðeins í fáum tilvikum hafa
verið greiddir sérstakir styrkir
samkvæmt ákvæðum 5. greinar til
efnalítilla nemenda. Kemur þar
fyrst og fremst til, hversu ráð-
stöfunarfé úthlutunamefndar er
takmarkað. Þessi möguleiki er þó
til staðar og á hann er sjálfsagt að
láta reyna í þeim tilfellum að
styrkurinn geti jafnvel ráðið úr-
slitum um möguleika til að stunda
nám.
Bændasamtökin hafa beitt sér
og munu áfram beita sér fyrir
aukinni fjárveitingu til þessa mála-
flokks og hvetja bændur og náms-
fólk í sveitum til að kynna sér rétt
sinn og möguleika í þessu sam-
bandi.
EndurskoOur
bruitabótamats
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, hefur
ákveðið að skipa nefnd til að
endurskoða gildandi ákvæði
um tilhögun brunabótamats.
Að sögn Ara Teitssonar er full
þörf á því þar sem lögum um þessi
efni var breytt eftir að sú reglu-
gerð sem nú er unnið eftir var sett.
Agreiningur er um hvort rétt sé
staðið að framkvæmd á endurmati
fasteigna einkum til sveita en
framkvæmd matsins hefur verið
með þeim hætti að mikill kostnað-
arauki hefur fylgt hjá bændum.
Því eru bændur hvattir til að
heimila ekki endurmat eigna sinna
fyrr en nefnd ráðherra hefur lokið
störfum.
Margvíslegar rannsóknir hjá jarðræktardeild Rala
MarkmiQ kynbóta er að
skapa fleiri valkosti
Nú er unnið á vegum RALA að
ræktun og kynbótum á
beringspunkti frá Alaska.
Þegar hefur verið valið ís-
lenskt yrki af honum, sem
nefnist Tumi, og er til prófunar
í tilraunastöð stofnunarinnar á
Korpu. Áslaug Helgadóttir,
sérfræðingur í jarðrækt hjá
RALA, segir að fyrstu vís-
bendingar gefi góð fyrirheit
um árangur kynbótanna og
bendi til þess að íslenska
yrkið sé þolnara en það sem
kom frá Alaska.
Ræktun Tuma er þó aðeins eitt
dæmi um verkefni RALA í kyn-
bótum og ræktun nytjajurta fyrir
landbúnaðinn. Annað verkefni,
sem Guðni Þorvaldsson vinnur að,
er samanburður á háliðagrasi af
ýmsum stöðum á landinu. Grasið
var tekið á 100 bæjum úr túnum
sem öll hafa náð 30 ára aldri eða
meira, en það er ákveðin stað-
festing á þoli. Ætlunin er að velja
saman álitlegar plöntur til fram-
haldsræktunar og nota þær sem
grunn að nýju yrki. Háliðagras
hefur lítið verið notað á seinni
árum en það hefur þó þann kost að
spretta snemma.
Vallarfoxgras talió
best til fóðrunar
mjólkurkúa
Besta grasið til fóðrunar há-
mjólka kúa er þó talið vallarfox-
gras. Vandinn við ræktun þess
hefur fyrst og fremst verið sá að
það hefur gjaman vikið úr túnum
fyrir öðrum grastegundum þegar
þau eldast. Unnið er að tilraunum
og kynbótum til lausnar á þeim
vanda. Komið er fram nýtt yrki af
vallarfoxgrasi sem á ættir að rekja
til nyrsta hluta Skandinavíu auk
Islands og er valið í samvinnu
þessara landa. Að sögn Aslaugar
Helgadóttur lofa fyrstu niðurstöð-
ur tilrauna góðu og benda til þess
að nýja yrkið taki þeim eldri fram.
Auk eigin kynbóta em erlend yrki
af ýmsum grastegundum prófuð
við íslenskar aðstæður, bæði á
Korpu og á nokkmm öðmm stöð-
um. Hólmgeir Bjömsson, sérfræð-
ingur í jarðrækt hjá RALA, kveðst
vongóður um að fram séu komin
ný og harðger yrki af tegundum
sem ekki em ræktaðar hérlendis
en gætu sums staðar komið í stað
vallarfoxgrass þar sem sáðskipti
em stunduð. Af öðmm tilraunum
má nefna að mikið er unnið að
rannsóknum og kynbótum á
smára, sem þykir hentugur til
fóðmnar mjólkurkúa, hvítsmári til
beitar og rauðsmári til sláttar.
Óþarfi að örvænta
um kornið
Mörgu öðm en því, sem hér
hefur verið nefnt, er sinnt í til-
raunastöð RALA á Korpu. Má
þar nefna kynbætur á byggi sem
er uppistaðan í komrækt bænda
hér á landi. Em þær unnar undir
stjóm Jónatans Hermannssonar,
tilraunastjóra, og miðast einkum
við að auka hæfni komsins til
þess að nýta allan þann hita sem
gefst auk þess að efla stöngla
þess til að það verjist haustvind-
um betur. Jónatan segir að þótt
vorið hafi verið kalt sé óþarfí að
örvænta um vöxt komsins nú í
sumar. Einkum vanti vætu, en
verði um hlýindi að ræða um og
eftir mitt sumar muni það skila sér
í vexti komsins.
Talsvert kal á liðnu
vori
Talsvert var um kal í túnum á
liðnu vori. Kalið kom víða fram
og er það ákveðið vandamál í ís-
lenskum landbúnaði því að þau ár
em færri sem þess verður lítið eða
ekkert vart. Auk eiginlegra kal-
rannsókna, sem einkum em gerðar
á tilraunastöð stofnunarinnar á
Möðmvöllum, eru gerðar ýmsar
rannsóknir og kynbætur jurta sem
eiga að stuðla að því að draga úr
hættunni á kali. Hafa þær einkum
beinst að vali og kynbótum gras-
tegunda til að þola íslenska vetur-
inn. Aslaug Helgadóttir segir
markmiðið með kynbótunum
einkum vera það að skapa bænd-
um ákveðna valkosti við ræktun-
arstörf og nýta grasið eftir kostum
landsins. Eftir því sem völ er á
fleiri tegundum sem hægt er að
rækta með árangri hér á landi
gefist kostur á meiri fjölbreytni í
ræktuninni. Bændur geti því í
meira mæli tekið mið af mismun-
andi jarðvegi, þegar þeir velja
jurtir til ræktunar, og jafnframt
því hvemig fóður þeir þurfa handa
búfé sínu.
Endurræktun
er besta vörnin
Áslaug segir að ræktunar-
menning bænda sé að breytast til
batnaðar. Áður hafi menn ræktað
tún til langs tíma en á seinni árum
hafi endurræktun og skiptiræktun
aukist til muna. Tilkoma kom-
ræktarinnar mun breyta afstöðu
margra bænda til ræktunar og hafa
mikil áhrif á ræktunarmenningu.
Einnig hafi vaxandi notkun græn-
fóðurs í landbúnaði aukið áhuga
bænda á að endurrækta nytjalönd
sín. „Með aukinni fjölbreytni
ræktunarplantna gefst bændum
betri kostur á að miða ræktun við
þarfir búpenings og einnig er auð-
veldara að taka tillit til þess jarð-
vegs þar sem ræktunin fer fram.
Þá er einnig unnið að rannsóknum
á samspili veðurfars og plantna til
að unnt sé að miða kynbætur við
veðurfarslegar aðstæður." Áslaug
segir að í þessu felist mikil vöm
gegn gróðurskemmdum af völd-
um kulda og harðinda. Harðgerari
plöntur hafi mikið að segja, en
breytt ræktunarmenning skili þó
bestum árangri því að ung tún
standi mun betur að vígi gagnvart
kali en þau eldri. Endurræktunin
sjálf sé því besta vömin.
Pe'tur Helgason, stjórnarformaður RALA, Jón Viðar Jónmundsson, ráðunautur, Þórólfur Sveinsson,
varaformaður Bœndasamtaka íslands, Jónatan Hermannsson, tilraunastjóri á Korpu, Hólmgeir Björnsson og
Áslaug Helgadóttir, sérfrœðingar íjarðrœkt hjá RALA. Myndin er tekin við tilraunareiti í tilraunastöðinni á Korpu
að lokinni heimsókn stjórnar RALA þangað.