Bændablaðið - 15.07.1997, Side 22
22
Bœndablaðið
Þriðjudagur 15. júlí 1997
Frá Framleiðsluráði
Fyrsta reynsla sænskra
og finnskra bænda af ESB
í ræðu sem finnskur hagfræð-
ingur flutti hjá norsku hag-
þjónustunni fyrir skömmu er
að finna upplýsingar um áhrif
ESB aðildar á landbúnað í
þessum tveimur löndum. Það
ber þó að hafa í huga að staða
landbúnaðar í þessum tveimur
löndum var nokkuð ólík fyrir
inngöngu þeirra í ESB.
Stuðningur (mældur með
aðferðum OECD) var mun
minni í Svíþjóð en í Finnlandi
(PSE 51% á móti 67% árið
1994). Áhrif á verð afurða til
bænda voru þannig mun meiri
í Finnlandi.
Milli áranna 1993 og 1995
lækkaði verð á mjólk í Finnlandi
um 25%, nautakjöti um 33%,
svínakjöti um 51% og eggjum um
68%. I Svíþjóð hækkaði hins vegar
verð á mjólk og um 3%, um 6% á
eggjum en lækkaði um 10% á
svínakjöti og 11 % á nautakjöti.
Tekjutap ftnnskra bænda vegna
þessara verðlækkana var bætt með
umfangsmiklu stuðningsfyrir-
komulagi sem að hluta til var fjár-
magnað af fmnska ríkinu og hins
vegar af ESB. Framleiðslan hefur
því ekki breyst mikið, sem hann
skýrir einnig að hluta til með því
að bændur hyggist "bíða og sjá til".
Hvað þróun landbúnaðar í
Finnlandi eftir árið 2000 áhrærii
sér hann ýmis teikn á lofti en
stækkun búa samhliða mikilli
fækkun þeiira telur hann fyrir-
sjáanlega. A móti koma þó
"stofnanalegar" og fjárhagslegar
ástæður sem vinna gegn mögu-
leikum fmnskra bænda til að
stækka bú sín. Fjármagnsþörfm til
að stækka búin þannig að þau
Umsjón: Erna Bjarnadóttir
verði af svipaðri stærð og gerist
t.d. í Danmörku sé veruleg. Árið
1995 voru finnsk kúabú að meðal-
tali með 14 kýr á móti 47 í Dan-
mörku og spáð er að meðalbústærð
þar árið 2005 verði 100 kýr.
Til að styrkja stoðir finnsks
landbúnaðar nefnir hann að til
þurfi að koma aukin sérhæfing og
áhersla á þær afurðir þar sem Finn-
ar eru helst samkeppnishæfir við
aðrar þjóðir (s.s. malt bygg). Þá
nefnir hann hrein matvæli og um-
hverfisvænar framleiðsluaðferðir
og að leggja þurfi áherslu á há-
gæða afurðir. Síðast en ekki síst
þurfi svo að koma til vel skipulögð
markaðssetning á þessum afurðum
innan Finnlands og ESB.
Kannanir sýna að finnskir
bændur eru fremur svartsýnir á
framtíðina með þá vitneskju að
stuðningur muni áfram fara lækk-
andi, aðfangaverð kunni að fara
hækkandi og framtíð landbúnaðar-
stefnunnar sé óráðin eftir árið
2000.
OECD undirstrikar nauðsyn á merkingu matvæla
/ skýrslu OECD er jjallað um gceði og hollustu matvœla m.a. í Ijósi notkunar vaxtarhormóna, erfðabreyttra dýra og plantna og uppruna matvœla.
Vísindalega þekkingu skortir oft á áhrifum á neytendur (m.a. af kúariðu) og umhverfið. Því er áhersla lögð á nauðsyn rannsókna, ráðgjafar og miðlun
upplýsinga. I Ijósi þessa er einnig sagt að gefa þurfi meiri gaum að upplýsingagjöf til neytenda hvað snertir efnainnihald matvœla, framleiðsluaðferðir og
uppruna.________________________________________________________________________________________________________________________________
Áhrif verkfalls Dagsbrúnar
á sölu mjúlkurafurða
Samtök afurðastöðva í
mjólkuriðnaði hafa unnið úttekt á
áhrifum mjólkurverkfalls.
Verkfallsáhrifm eru fyrst og
fremst samdráttur í sölu ferskra
mjólkurafurða, metin sem ígildi
0,7 millj. lítra mjólkur á tímabilinu
maí '96 til aprfi '97. Við þann út-
reikning eru notaðir nýir stuðlar
um samsetningu mjólkur sem
framkvæmdanefnd búvörusamn- mat á sölu mjólkurafurða.
inga hefur samþykkt til nota við í júní hefti MS-Frétta kemur
Raunsala Raunsala með Verkfallsáhril metin
nýjum stuðlum (með nýjum stuðlum)
Fita 98,2 millj.ltr. 99,4 99,7 millj.ltr
Prótein 101,2 millj.ltr 101,8 102,6 millj.ltr
Fx0,25 + Px0,75 100,5 mlllj.ltr 101,2 101,9 millj.ltr
fram að sölusamdráttur á MS
svæðinu í maí nemi a.m.k. 1 -
1,5%, mestur í nýmjólk eða um
5,4% m.v. sama tíma í fyrra. Ljóst
þykir því að langtímaáhrif verk-
fallsins verði umtalsverð. Með
nýrri reglugerð um greiðslumark
mjólkur á lögbýlum (nr. 411/1997)
hefur heildargreiðslumark mjólkur
verðlagsárið 1997-1998 verið
ákveðið 102 milljónir lítra.
Kornskurðarvél
Stór baggapressa
G. SKAPTASON
s. 552 8500 og 893 4334
Rakstrarvél
Diskasláttuvél
lOII^I I IQJ
Z279 Rúllubindivél