Bændablaðið - 18.01.2000, Page 22
22
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur lH.janúar 2000
Eiríkur rauði er lengst t.v. á myndinni, Björk liggur umkringd hópi aðdáenda og kvígan, sú eina sem fædd er á
Grænlandi, vill gjarnan vera með líka.
íslenski kúastofninn
ii Grænlandi
Guðni Þorvaldsson, RALA
Þann 24. ágúst 1998 lagði
flutningaskipið Arina Arctic frá
bryggju í Sundahöfn áleiðis til
Grænlands. Auk hefðbundins
farms voru tveir nautgripir með í
för, kýrin Björk og nautkálfurinn
Eiríkur rauði, bæði frá bænum
Helluvaði á Rangárvöllum. Ferð-
inni var heitið til Julianeháb á
Suður-Grænlandi. Engar kýr hafa
verið á Grænlandi í um 25 ár
þannig að þama var nýtt landnám
að heíjast. Gott var í sjó á leiðinni
og ferðin sóttist því mjög vel.
Þegar komið var til Julianeháb um
sólarhring á undan áætlun voru
gripimir færðir í minni bát
(íslenskan bát frá Sóma) og siglt
suður í svonefnt Vatnahverfl.
Síðustu kílómetramir vom svo
famir í kerrn sem dregin var af
dráttarvél um grýttan og seinfarinn
veg.
Gripimir vom við góða heilsu
þegar komið var á áfangastað,
bænum Timerliit, en þar búa tveir
bræður félagsbúi ásamt konum
sínum og foreldmm. Þetta er
sauðfjárbú, en einnig em þama
nokkur íslensk hross.
Kýrin var með kálfi þegar hún
fór frá Islandi og bar svo í lok
september og eignaðist kvígu. Hún
bar öðm sinni nú eftir áramótin og
átti þá einnig kvígu. Kvígan sem
fæddist skömmu eftir komuna til
Grænlands ber svo væntanlega
fyrsta kálfi í vor. Stofninn hefur
sem sé tvöfaldast og líklega verður
önnur kvígan seld bónda á gamla
biskupssetrinu að Görðum í
Einarsfirði.
Björk mjólkaði vel á síðasta ári
þrátt fyrir litla kjamfóðurgjöf. Ur
mjólkinni vinna þau m.a. skyr og
smjör. Önnur hjónin lærðu þá list á
bænum Næfurholti á Rangárvöll-
um, en þau dvöldu hér á landi í
vikutíma til að kynna sér
kúabúskap áður en gripimir fóru
út. Þetta framtak bændanna í
Timerliit hefur vakið athygli á
Grænlandi og fengu þeir fyrir það
nýsköpunarverðlaun grænlensku
bændasamtakanna á síðasta ári.
Það verður gaman að fylgjast með
framgangi þessa litla kúastofns
næstu árin.
>ns\dramte'ðs\a
' úr PVC-U^
Áratugareynsla
hérlendis
Lífræn framleiðsla
Vottun
Irfrænna afuröa
Athugið: Tún hefur
fengið nýttaðsetur,
póstfang, símanúmer,
fax og netfang
Viöurkenndur fagaöili
Meölimur í IFOAM
VOTTUNARSTOFAN
TÚN
Laugavegi 7 • Pósthólf 251
121 Reykjavík
Sími: 511 1330
Fax: 511 1331
Netfang: tun@mmedia.is
Sláturfélag Suðurlands selur innfluttan tilbúinn gæðaáburð frá Norsk Hydro, stærsta
áburðarframleiðanda heims. Þungmálmainnihald áburðarins er með því lægsta sem nú
þekkist í áburði, sem tryggir hreinleika afurða. í boði eru tvær tegundir, Hydro 7 og 9 sem
báðar reyndust vel að mati bænda sem notuðu áburðinn sl. sumar. Áburðurinn er afhentur
í 500 kg stórsekkjum frá Grundartanga og Þorlákshöfn, tilbúinn til afgreiðslu í apríl n.k.
Tryggðu góða sprettu með góðum áburði, túnin græða á þvL
Verð áburðarins miðast við staðgreiðslu. Einnig boðið upp á lánsviðskipti, greiðslu með
afurðum og raðgreiðslusamninga. Vextir reiknast frá lokum þess mánaðar sem gengið er frá
kaupum áburðarins. Sömu vextir reiknast og á afurðareikningum SS, nú 9% ársvextir.
Tegund N PzOs K2O Ca S Mg B Verð kr./tonn án vsk. í jan. 2000 Verð kr./tonn án vsk. í feb. 2000
Hydro 7 2I 8 I2 1.8 2,7 I.2 0,02 18.334 19.617
Hydro 9 27 6 6 I.2 2,5 18.197 19.471
Takmarkað magn
Nánari upplýsingar og móttaka pantana hjá SS, Fosshálsi I, Reykjavík
i síma 575 6000, fax 575 6090 og netfangi birna@ss.is