Bændablaðið - 03.05.2000, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 3. maí 2000
BÆNDABLAÐIÐ
9
Mð auka vQxt lamba í
skammdeginu mefi lýsingu?
Á Fjárræktarbúi Rala á Hesti var
ákveðið á sl. hausti að gera athug-
un á því, hvaða áhrif það kynni að
hafa á vöxt lamba, sem ætluð voru
til slátrunar síðari hluta vetrar, að
fóðra þau, annars vegar í birtu með
lýsingu og hinsvegar við nátturu-
lega dagsbitu. I þessu skyni var 66
lömbum, sem af ýmsum orsökum
þroskuðust ekki eðlilega yfir sum-
arið, skipt í tvo jafna hópa, m.t.t.
kyns og þunga á fæti þann 22.
nóvember sl. I hvorum hóp voru
13 ógeltir lambhrútar og 20 gimbr-
ar. Báðir hópamir voru fóðraðir í
unurinn 2.04 kg. Sambærilegar
tölur fyrir fallþunga gimbranna
voru 18.55 kg og 17.74 kg og
lögðu þvf gimbrarnar í ljósinu sig
með 0.81 kg þyngra falli en þær í
dimmunni. I heildina reyndist
fallþungamunurinn 1,3 kg ljósa-
flokknum í vil. Þegar kjöthlutfallið
er skoðað kemur hinsvegar í ljós,
að lömbin í dimmunni hafa um-
talsvert hærri kjötprósentu en þau í
ljósinu og nemur munurinn á
hrútum 1.79 % og gimbrum 3.00
% og á flokkunum í heild 2.54 %.
Þessi munur kemur ekki á óvart og
Áhrif birtu á lambavöxt í skammdegi
sömu húsum, en króin, sem
ljósalömbin voru í, var girt af með
svörtu plasti og fjórum
ljósastæðum með flúorperum, er
loguðu allan sólarhringinn, komið
fyrir í loftinu og þess jafnframt
gætt að ekkert ljós bærist til lamb-
anna í hinum hópnum.
Lömbin í báðum hópum voru
fóðruð á töðu eingöngu, þeirri
bestu, sem búið átti, og voru að
jafnaði 0,70 FE í kg. Töðuna fengu
lömbin að vild, en sama magn
gefið í báðum flokkum. Til
jafnaðar nam dagsgjöfin um 1.2 kg
fram að áramótum og frá þeim
tíma til miðs febrúar 1.3 kg og
síðasta mánuðinn 1.5 kg, en
lömbunum var slátrað 14. mars.
Töðuleyfar reyndust um 10 % -12
% og jukust með aukinni gjöf og
ekki kom fram neinn flokkamunur
á áti.
Á meðfylgjandi línuriti er
sýndur lífþungi lambanna eftir
vigtardögum og kynjum frá haust-
vigtun 27. september og til 13.
mars, degi fyrir slátrun. Lömbin
voru tekin á hús 19. október og
fóðruð öll saman til 22. nóvember,
er þeim var skipt í flokka eins og
áður segir. Eins og línuritið sýnir
kemur fram gríðarmikill munur á
vexti lambanna. Þannig þyngdust
hrútlömbin í ljósinu um 18.4 kg til
jafnaðar á tilraunaskeiðinu (22.
nóvember til 13. mars) en þeir,
sem voru í náttúrulegri birtu um
10.8 kg eða 7.6 kg minna. Gimbrar
í ljósaflokknum þyngdust um 14.9
kg en hinar um 9.6 kg og nemur
flokkamunurinn því 5.3 kg. I
heildina þyngdust ljósalömbin um
6.1 kg meira en þau, sem bjuggu
við nátturúlegt ljósmagn.
Hrútlömbin í ljósaflokknum
lögðu sig til jafnaðar með 19.42 kg
falli en þau í dimmunni með 17.38
kg falli og nemur því fallþungam-
stafar af mismunandi kviðfylli
lambanna í flokkunum, þótt þau
hefðu verið vigtuð á sama tíma,
þ.e.a.s. um 3-4 klst eftir morg-
ungjöf. Lömbin í ljósaflokknum
voru öllum tímum að sjá kviðmeiri
og þar sem ekki kom fram munur á
áti milli flokka, bendir allt til þess
að sólarhringsbirtan hafi haft þau
áhrif, að þau hafi etið töðuna
hægar og dreift sólarhringsátinu á
lengri tíma og jafnframt að
fóðurnýting hafi verið betri.
I gæðamati kom enginn
vaxtarlagsmunur fram milli flokka
og í heildina flokkuðust föllin
þannig:
E 13,8%, IJ 38,5%, R 43,1%
og P 4,6%. Á hinn bóginn kom
fram umtalsverður flokkamunur í
mælingu á fituþykkt á síðu og fitu-
flokkuninni ljósalömbunum í vil,
þar sem sem þau mældust með
þynnra fitulag (8.53 mm á móti
9.23 mm að jöfnum fallþunga) og
fleiri föll fóru í lægri fituflokkana.
I báðum flokkum voru gimbrar til
muna feitari á síðuna en hrútar,
(10,6 mm á móti 7,3) og fór meiri
hluti þeirra í fituflokka 3 og 3+. í
heildina kom fituflokkunin þannig
út: Ff.l 3,1%, Ff.2 36,9%, Ff.3
32,3%, Ff.3+ 26,2% og Ff.5 1,5%.
Niðurstöður þessarar at-
hugunnar benda eindregið í þá átt
að auka megi vöxt lamba í skamm-
deginu með litlum tilkostnaði. Þær
sýna einnig, að þörf er á að gera
skipulega tilraun til að kanna áhrif
mismunandi lýsingartíma og
ljósmagns á lambavöxtinn og jafn-
framt kanna áhrif þessara þátta á
hormónastarfsemi lambanna.
Stefán Sch. Thorsteinsson og
Sigvaldi Jónsson
Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins.
Góðar
otaða
vélar á
raunhæfu
verði!!!!
Case IH 48SL
52 hestaf/a, 2x4
árgerð 1987
Verð kr. 450.000-á„ vsfc.
F»at 82-94
80 hestafla, 4x4
með Alö 640 émoksturstcelcjuni
. argerð 1994. Staða
v'nnustundamælis 2.800
hrðkr- 158S.000invsk
Fiat 85-90
85 hestaf/a, 4x4
með Alö 540 ámoksturstæk/um
. Argerð 1992. Staða ^
v'nnustundamæíis 3 833
1300.000-anvsk
Fiat 88-94
„ 85 hestaf/a 4x4
vmnustundamælis 2 750
LVerðkr- 1 645-000-a.......
Zetor 6340T
80 hestaf/a, 4x4
meðT640ám°k«‘%*kjun,
. Argerð 1994. Staða '
wnnustundamaalis 2 265
LVerd kr- 1-150.000-énvsk
Zetor 7340
, 80 hestaf/a 4x4
með Alö 620 ámosfcsturstækjum
Argerð 1997. staða
nustundamaslis 2.020
Verðkr 1 ■580.000-ánvjij
Zetor 7340,
. 80 hestaf/a 4x4
vnnustundamæ/is 3 350
Verðkr 1280.000 ánvsk
Zetor 7341
80 hestaf/a, 4x4
með Alð 620 ámoksturstækium
Árgerð 1999. staðT
„ , V,™s'undam*lis 650
Lerðkr- 1-950.000-én vsk
70..,
með Alð 620
Zetor 6340
hestaf/a, <+x4
^rgerð 1995. Staða
vnnustundamælis 2 314
Verðkr 1.230.000-ár
VELAVERf
Reykjavík sími 588-2600
Akureyri sími 461-4007
www.velaver.is
Lægsta veröið - Besta ástandiö
SESSSÖBE
—■■■■■!■—m