Bændablaðið - 03.05.2000, Síða 12
12
BÆNDABLAÐIÐ
Miðvikudagur 3. maí 2000
Þingsályktunartillaga um úttekt á
aðstöðu fil hestamennsku
Jónas Hallgrímsson varaþing-
maður hefur lagt fram þings-
ályktunartillögu þess efnis að
skipuð verði nefnd sem geri
úttekt á aðstöðu til hesta-
mennsku á landsbyggðinni og
leggi fram tillögur um stuðning
ríkissjóðs við uppbyggingu
liennar. Meðflutningsmenn til-
lögunnar eru Jón Kristjánsson,
Árni Johnsen, ísólfur Gylfi
Pálmason og Einar Már Sig-
urðarson.
I greinargerðinni kemur fram
að samhliða miklu átaki um að
auka kynningu og sölu á íslenska
hestinum hafi fjöldi nútímalegra
reiðhalla risið, einkum á suðvest-
urhorninu og á Norðvesturlandi,
og er samningurinn um hest-
amiðstöðina í Skagafirði nefndur
þar sem dæmi. Hins vegar virðast
landssvæði fjarri höfuðborg-
arsvæðinu, frá Eyjafirði norður
og austur um land allt til Hellu,
eiga erfiðara uppdráttar vegna
fjarlægðar frá aðal komustað er-
lendra ferðamanna auk aðstöðul-
eysis. Því telja flutningsmenn
tímabært að spyma við fótum af
byggðaástæðum og leita úrbóta
fyrir svæði fjærst markaðnum.
Eðlilegt sé að móta stuðning
rfkisvaldsins við uppbyggingu í
greininni og nýta eigi hesta-
mennskuna sem sóknarfæri fyrir
dreifðar byggðir landsins.
Loftþétt SÚRKORNSÍLÓ
með tæmingarsnigli
V 7 \ / j 7
r / A l
Válaval -
Varmahlfð HF
Sími: 453 8888 Fax: 453 8828
Smá-
—\v auglýsinga
síminn er
^ 563 0300
Aðalfundur Félags hrossabænda:
Hestamenn verOa að
sianda betur saman
Aðalfundur Félags hrossabænda
var haldinn í BændahöIIinni 13.
apríl sl. Á fundinum voru auk
hefðbundinni aðalfundastarfa
rædd ýmis hagsmunamál hross-
aræktarinnar og bar þar hæst
ályktun þar sem lagt var til að
samið yrði við hagsmunaaðila
um sameiginlegt skrifstofuhald
og rekstur markaðsfulltrúa.
Kristinn Guðnason, formaður
Félags hrossabænda segir brýnt að
auka samstarf þeirra sem koma
nálægt hestamennsku, eins og átak
ríkisstjórnarinnar hefur að
markmiði. „Draumurinn er að
koma hestamennskunni í eitt
deildaskipt félag. Menn sjá það nú
betur en nokkru sinni fyrr að við
verðum að standa saman eins vel
og við getum. Þannig náum við
árangri í alþjóðlegri samkeppni
við önnur hestakyni og einnig í
samkeppninni við annað sport hér
á landi.“
Á aðalfundinum var einnig
ályktað um samdrátt í útflutningi.
„Við höfum lent í áföllum í Þýska-
landi, einkum exem-málið. Svo
hafa komið upp tolla- og skattamái
og þau verðum við að koma á
hreint hjá okkur.“
Kristinn nefndi einnig að betur
gangi að afsetja hross sem eru eng-
um að gagni og tekist hafi að fá
nægilega markaði fyrir hrossakjöt.
Er svo komið nú að biðlistar eru
nánast uppurnir. „Við hvetjum
menn eindregið til að vera ekki
með óarðbær hross. Það gerir ekk-
ert annað en að skemma fyrir og
þó að það fáist lágt verð fyrir þau
tapa menn ennþá meira á því að
láta þau lifa,“ segir Kristinn að
lokum.
Ein breyting varð á stjóm
félagsins. Helga Thoroddsen á
Þingeyrum kom inn í stjórnina í
stað Skjaldar Stefánssonar. Aðrir í
stjórninni eru auk Kristins Ólafur
Einarsson á Torfastöðum, Ingimar
Ingimarsson í Ytra-Skörðugili og
Ármann Ólafsson í Litla-Garði.
Kristinn Guðnason ,talar á aðal-
fundi Félags hrossabænda.
Sláturfélag Suðurlands selur innfluttan tilbúinn gæðaáburð frá Norsk Hydro, stærsta
áburðarframleiðanda heims. Þungmálmainnihald áburðarins er með því lægsta sem nú
þekkist í áburði, sem tryggir hreinleika afurða. í boði eru tvær tegundir, Hydro 7 og 9 sem
báðar reyndust vel að mati bænda sem notuðu áburðinn sl. sumar. Áburðurinn er afhentur
í 500 kg stórsekkjum frá Grundartanga og Þorlákshöfn, tilbúinn til afgreiðslu í apríl n.k.
Tryggðu góða sprettu með góðum áburði, túnin græða á því.
Verð áburðarins miðast við staðgreiðslu. Einnig boðið upp á lánsviðskipti, greiðslu með
afurðum og raðgreiðslusamninga.Vextir reiknast frá lokum þess mánaðar sem gengið er frá
kaupum áburðarins. Sömu vextir reiknast og á afurðareikningum SS, nú 9% ársvextir.
Tegund N PzOs KaO Ca S Mg B Verö kr./tonn án vsk. 1 apr. 2000 Verð kr./tonn án vsk. i maí. 2000
Hydro 7 21 8 12 1,8 2,7 1,2 0,02 20.167 20.626
Hydro 9 27 6 6 1,2 2,5 20.017 20.472
Takmarkað magn
Nánari upplýsingar og móttaka pantana hjá SS, Fosshálsi I, Reykjavík
í síma 575 6000, fax 575 6090 og netfangi birna@ss.is
HYDRO