Bændablaðið - 03.05.2000, Qupperneq 16
16
BÆNDABLAÐIÐ
Miðvikudagur 3. maí 2000
Jörð til sölu
Jörðin Jórunnarstaðir í Eyjafjarðarsveit er til sölu.
Á jörðinni er íbúðarhús byggt 1950, alls 219 m2 á tveimur
hæðum, fjós 44 básar auk lausagöngu, kálfahús 82 m2,
hlöður 3100 m3 og vélageymslur 195 m2.
Ræktun um 46 ha.
Tilboð óskast í jörðina án framleiðsluréttar, bústofns og
véla. Einnig yrðu skoðuð tilboð í jörðina með bústofni og
greiðslumarki í mjólk sem eru 100.000 lítrar.
Tilboðum skal skila til Búnaðarsambands Eyjafjarðar,
Óseyri 2, 603 Akureyri fyrir 10. maí þar eru einnig veittar
frekari upplýsingar í síma 462-4477 á skrifstofutíma.
Jörð til sölu
Jörðin Ytri-Bægisá í Glæsibæjarhreppi er til sölu.
Á jörðinni er íbúðarhús 171 m2 ásamt bílskúr 42 m2 byggt
1979, fjós byggt 1971 20 básar, fjárhús byggð 1971 fyrir
130 kindur, hesthús byggt 1950 fyrir 6 hross, hlöður
byggðar 1971 og 1987 samtals 2223 m3 og vélageymsla
byggð 1978 184 m2.
Ræktun er um 34 ha.
Greiðslumark jarðarinnar eru 99.214 lítrar í mjólk og 140,8
ærgildi í sauðfé.
Tilboð í jörðina ásamt bústofni og vélum skulu hafa
borist Búnaðarsambandi Eyjafjarðar Óseyri 2 603
Akureyri fyrir 15. maí 2000 en þar eru nánari
upplýsingar veittar í síma 462-4477 á skrifstofutíma.
Jörð í Rangárvallasýslu.
Til sölu er jörðin Ormskot í Vestur -Eyjafjallahreppi.
Um er að ræða nálega 80 ha.jörð. Bústofn og vélar geta
fylgt. Veiðréttur í Holtsósi.Jörðin er í einni fegurstu og
veðursælustu sveit landsins með stórbrotnu útsýni.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni.
Fannberg ehf.
Þrúðvangi 18,Hellu,sími 487-5028
Jörðin Steinsstaðir II er til
sölu ef viðunandi tilboð fæst.
Á jörðinni er 107 þús. lítra greiðslumark. Fjós fyrir 30 kýr og
geldneytaaðstaða, hlöður ca 700 m3 ræktun 30 ha.
íbúðarhús í endurbyggingu og nokkurfrágángsvinna eftir.
Stærð ca 150 m2.
Hægt er að gera tilboð í alla eignina eða einstaka hluta
hennar.
Upplýsingar veittar hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
Óseyri 2, í síma 462.4477 eða í tölvupósti aeh@bondi.is
Frestur til að skila inn tilboðum er til 20 maí n.k.
Fjósatunga Hálshreppi
Til sölu erjörðin Fjósatunga Hálshreppi S-Þing. Ájörðinni
er rekið sauðfjárbú með 484 ærgildi í kvóta. Fjárhús fyrir
340 fjár og hesthús fyrir 10 hross. Hlaða er 1700 rúmmetrar
með heydreifikerfi og matara og aðfærslubandi við.
Öll tæki til þurrheysverkunar. Heimarafstöð 3 fasa sér fyrir
um 95% af rafmagni til heimilisnota. Ræktað land 36 ha.
íbúðarhús á 3 hæðum 80 fm að grunnfleti.
Frekari upplýsingar í síma 462 6295 eftir kl 20 á kvöldin
eða hjá Stefáni Skaftasyni í síma 464 2490.
Jörð til sölu
Jörðjn Kot í Svarfaðardal, ásamt bústofni og vélum er til
sölu. Á jörðinni er 218 m2 íbúðarhús, fjós fyrir 22 kýr ásamt
1530 m3 hlöðu. Tún 23 ha. Framleiðsiurettur í mjólk eru
tæpir 60 þúsund lítrar og í kindakjöti um 90 ærgildi. Bústofn
14 kýr, 9 geldneyti og 68 kindur.
Tilboð í jörðina ásamt bústofni og vélum, eða einstaka
hluta, skulu berast til Búnaðarsambands Eyjafjarðar
fyrir 15. maí n.k. Nánari upplýsingar veittar á
skrifstofutíma í síma 462-4477 eða netfang
gps@bondi.is
Þær kunnu vel við sig í mjaltabásnum í Fremstafelli. F.v. Eyrún Torf-
adóttir, Halla Björg Albertsdóttir, Sigrún Aðalgeirsdóttir og Þórunn Torf-
adóttir.
LandbúnaOarkynning í
grunnskólanum ii Húsavík
Grímur Vilhjálmsson bóndi á Rauðá ásamt Steinunni Jónsdóttur og
Þórunni Torfadóttur.
Kynning á landbúnaði stendur
yfir í 4.bekk Borgarhólsskóla á
Húsavík í apríl og maí, en
námsefnið er fléttað inn í
samfélagsfræðikennsluna.
Á dögunum fóru nemendur í
rútuferð á nokkra bæi þar sem þeir
fengu að sjá búfénað og ýmislegt
er tengist landbúnaði. Farið var í
fjós að Fremstafelli í Ljósavatns-
hreppi þar sem er nýlegur mjalt-
abás með fullkomnum mjalt-
abúnaði og einnig var farið í
heimsókn að bænum Rauðá þar
sem mikið er af geitum.
Nýfæddir kiðlingar vöktu
mikla hrifningu og allir vildu
halda á þeim og klappa.
Pylsuveisla var á ferðaþjónust-
unni að Fosshóli og ferðin endaði
á hestabýlinu Saltvík þar sem
boðið var á hestbak í reiðskálan-
um hjá Vilhjálmi Pálssyni og
Védísi Bjamadóttur.
Kynning þessi á landbúnaði
kemur inn á mörg svið atvinnu-
greinarinnar og hafa krakkamir
áður heimsótt mjólkursamlagið
sem þeim fannst mjög gaman af
að skoða.
I skólanum sjálfum fer fram
ýmisleg verkefnavinna og tengist
þemað list-og verkgreinum þannig
að í handavinnutímum er farið í
ullarvinnu. Skólinn hefur komið
sér upp ullarkömbum og snældum
til þess að geta leyft nemendum að
kynnast gömlum vinnubrögðum
og er það vinsælt námsefni. Þá
smíða þau kindur úr tré í
smíðatímum og syngja um dýrin í
tónlistinni auk þess að vinna við
vísna og ljóðagerð um húsdýrin.
Skriflegt verkefnahefti „Að
lesa, reikna og skrifa um sveitina"
er unnið í kennslustundum, en þar
er reynt að tengja grunngreinarnar
við landbúnaðarþemað. Byggist
það á texta um daglegt líf í sveit
og verkefnum um húsdýr og
gróður. /AV
Einka Fenaur
Forrit fyrir hrossaræktendur
DanMink/Fox
fyrir loðdýrabændur
Fjárvís
Afurða- og ættbókarforrit fyrir
sauðfjárbændur
AqroSoft
skýrsluhalds- og afurðaforrit fyrir
svínabændur
Búbót
Sérhannað bókhaldsforrit fyrir
bændur
--------------------1
Gagnleg forrit fyrir I
framsækna I
bændur I
___________________I
Oháð miðlun
Minnum á að við erum eina
landbúnaðartækjamiðlun landsins, sem er óháð
umboðum og öðrum söluaðilum.
Bændur!
Er ekki einmitt núna rétti tíminn til að skrá notuðu
tækin sem þið hafið ekki lengur þörf fyrir,
gangfær eða biluð. (oft vantar vélahluti).
Upplýsingar í síma 451 2774
Agrimach 2000
Agrimach 2000 er margmiðlunardiskur (CD-ROM) sem inniheldur upplýsingar
(stærðir, mál, afköst, myndir og myndbönd) um yfir 40 þús. vélar á markaði í
Evrópu.
Þarft þú að fjárfesta í vél? Af hvetju ekki bera þær saman fyrst með Agrimach
2000.
Með Agrimach 2000 getur þú:
• Skoðað vélamar, séð stærðir og mál.
• Kannað eldsneytiseyðslu og aflþörf.
• Borið saman vélar áður en þú fjárfestir.
• Lesið úrdrátt úr prófunarskýrslum.
• Leitað að vélum sem henta þér.
Diskurinn er á ensku.
Verð aðeins kr. 3.000 m/vsk.
Búnaðarsamband Suðurlands - Austurvegi 1 - 800
Seifoss
sími4821611 - http://www.bssi.is
Lágmarkskröfur til tölvubúnaðar eru;
• 486-örgjörvi
• geisladrif
• Windows 3.10 eða hærra
• 8 MB vinnsluminni
• 30 MB laust diskpláss.
Fyrírhesta I
ag hestamenn I
Áva Ihileiðinni
og ferdar virði
MRbúðin
Lynghálsi 3
Simi: 5401125 «Fax: 5401120
VlLTU
GÆS
' TÚNIÐ?
Abyrgir og traustir
skotveiðimenn óska eftir að
komast í samband við
traustan og heiðarlegan
landareiganda sem getur
boðið uppá góða gœsa og
eða rjiípuveiði.
Um er að rœða einstaklinga
með mikla og góða reynslu
í skotveiði sem gceta
hófsemi og hafa
veiðisiðferði að leiðarljósi.
Erum tilbúnir til að borga
fyrir góða veiði og eða
veiðire'ttinn.
Áhugasamir hafi samband
í S:851-1450
eða S.-898-8668
eftir kl. 18:00.