Bændablaðið - 03.05.2000, Qupperneq 19
Miðvikudagur 3. maí 2000
BÆNDABLAÐIÐ
19
Nýtt skagfirskt máltæki:
kornræklarinnar hefjast
þegar Míl fer að renna
úr hreskivúlinni"....!!!
Meðan skagfirskir kornbændur
bíða eftir vorinu huga þeir að
haustuppskerunni og þeirri
vinnu sem þá er í vændum. Nýtt
skagfirskt máltæki segir:
„vandamál kornræktarinnar
hefjast þegar kornið fer að
renna úr þreskivélinni“. Tveir
möguleikar eru þá í boði,
þurrka kornið eða súrsa það í
loftþéttum umbúðum. Þurrkun
er orkufrek og takmarkandi við
afköst þreskingar og ef kornið er
mjög blautt er þurrkun
óraunhæf. Því þarf að súrsa það
korn sem ekki er hægt það
þurrka.
En hvaða lausnir eru í sjónmáli
við meðhöndlun á súru komi? Það
er í sjálfu sér í lagi að geyma kom
í tunnum og stórsekkjum þegar
magnið er lítið. Annað er upp á
teningnum þegar uppskeran er
orðin nokkrir tugir tonna og
komræktin þannig orðin stór hluti
af fóðuröflun búsins. Svo mikið
magn kallar á önnur vinnubrögð
við geymslu og gjafir.
I samvinnu við Vélaval í
Varmahlíð hefur verið fundið
sænskt fyrirtæki sem framleiðir
innisfló fyrir blautt kom. Sflóin
eru úr léttri grind með þykkum
loftþéttum dúk inní og er hægt að
fá í stærðum frá ll-120m3. Með
sflóunum kemur snigill til losunar
sem er útbúinn með loftþéttu loki
til að hvergi leki loft inn þegar
ekki er verið að taka úr sflóinu.
Pokinn er laus inn í grindinni og
sígur niður eftir því sem tæmist úr
sflóinu og hindrar þannig að loft
dragist inn í pokann. Sflóin hafa
verið í notkun í nokkur ár í
Svíþjóð og em viðurkennd af
þarlendum prófunaraðilum. Þarna
er e.t.v. um áhugaverða nýjung að
ræða fyrir íslenska kombændur.
O, nei, það fara ekki fleiri á bak.... Á myndinni má sjá ungan og
upprennandi sauðfjárbónda, Jón Snorra Þorsteinsson, Bjarnarnesi
brosleitan á svip en hvað hrossin heita vitum við ekki.
Bú-2000:
Undirbúningnr gengur vel
Undirbúningur fyrir landbún-
aðarsýninguna Bú-2000 geng-
ur mjög vel að sögn Sig-
urrósar Ragnarsdóttur hjá
Sýningum ehf.
Sigurrós segir að allt sýnin-
garrými í Laugardalshöll sér að
fyllast. M.a. séu básar sem eru
stærri en 20 m2 upppantaðir.
„Það stefnir í mjög góða
þátttöku. Bæði verður mjög
breiður hópur sýnenda og svo
hafa margir lýst yfir áhuga á að
koma á sýninguna, hvort sem
þeir búa í sveit eða borg,“ segir
hún og bætir við að sýnendur
verði líklega um 70 talsins.
Hún segir að sýnendur komi
úr ýmsum áttum. Bæði verða
þarna fyrirtæki í vélasölu, fóðri
og áburði, búgreinafélög og
menntastofnanir í landbúnaði,
bankar og tryggingarfélög svo
eitthvað sé nefnt. „Það verður
ýmislegt um að vera á sýnin-
gunni og margvíslegar
uppákomur munu eiga sér stað.
Það mun verða þess virði að
koma á þessa sýningu og ég
hlakka mikið til. Sýningin
verður mjög skemmtileg," segir
Sigurrós.
Sigurrós bætti því við að
sýningin verður í samvinnu við
Menningarborg Reykjavíkur
2000 og landsmót hestamanna
og munu verða sameiginlegar
uppákomur í tengslum við það.
Mikil ásókn í námskeið í
hundatamningum:
Kennarinn annar ekki lengur
eflirspurn ettir kennsln
Mikil ásókn hefur verið í
námskeið í hundatamningum
sem endurmenntunardeild
Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri hyggst gangast
fyrir. Staðan er nú orðin
þannig að mun færri komast að
en vilja og kennarinn, Gunnar
Einarsson á Daðastöðum,
annar orðið ekki eftirspurn í
þessa kennslu.
Gunnar segir áhugann hafa
smátt og smátt verið að aukast.
„Menn eru að sjá sífellt betur að
það er ekki nokkur leið að smala
kindum án þess að eiga þokk-
alegan hund. Það er að fækka í
sveitunum og þeir sem eftir sitja
eru kannski ekki eins fljótir að
hlaupa og áður. Að auki fréttist af
fólki sem hefur náð góðum
árangri í að temja hunda og vill
því eignast hund sem kemur að
gagni við smalamennskuna.“
segir Gunnar.
Hann tekur þó fram að það
þurfi meira en þrjá daga til að
temja hund. „Ég reyni að sýna
fólki fram á það að ef það sinnir
þessu vel og gefur þessu tíma nær
það árangir tiltölulega fljótt. Ef
fólk er með ungan hund er hægt
að koma honum vel af stað í
tamningunni á þessum þremur
dögum en eftir það verður fólk að
halda áfram. Það er of mikið um
það að fólk hætti tamningu að
loknu námskeiðinu hjá mér og
geri ekkert meira með þetta.
Staðreyndin er hins vegar sú að
það tekur álíka langan tíma að
temja hvolp og að temja hest og
það er vinnan sem unnin er eftir
námskeiðið sem gerir hundinn að
góðum fjárhundi.“
Námskeiðin sem Gunnar hef-
ur haldið í samvinnu við endur-
menntunardeild Landbúnaðarhá-
skólans á Hvanneyri standa yftr í
þrjá daga og á þeim kennir hann
undirstöðuatriði í hundatamning-
um. Þau eru haldin á vorin og
haustin og eru yfirleitt sjö þátt-
takendur á hveiju námskeiði.
Námskeið voru haldin á Hvann-
eyri og í Rangárvallasýslu í aprfl
og voru öll fullbókuð. Stefnt er að
því aðeinhver námskeið verði í
sumar og svo fleiri í haust.
Áhugasamir sem viljafá
námskeið heim í héruð eru hvattir
til að hafa samband tímanlega við
Landbúnaðarháskólann því
námskeiðin krefjast nokkurs
undirbúnings.
Stálgrindarhús
Bjóðum á hagstæðu verði stálgrindarhús frá Finnlandi.
Húsin henta m.a. vel sem hlöður, gripahús, vélageymslur,
reiðhallir og iðnaðarhúsnæði. Húsin fást í breiddum frá 6,0
m til 30,0 m. Lengdir og vegghæðir eftir óskum kaupenda.
Umboð/sala:
Weckman
H. Hauksson hf.
Suðurlandsbraut 48
Sími: 588-1130. Fax.
588-1131.
Heimasími: 567-1880
Verðdæmi: (gengi í apríl 2000)
Stærð: 11,2 x 20,4 = 228 m2. Verð frá kr. 1.550.000 með VSK.
Stærð: 14,2 x 20,4 = 290 m2. Verð frá kr. 1.880.000 með VSK.
Stærð: 16,3 x 29,0 = 472 m2. Verð frá kr. 2.970.000 með VSK.
Stærð: 20,3 x 40,4 = 820 m2. Verð frá kr. 5.200.000 með VSK.
Ath. að ofangreind hús eru aðeins tekin sem dæmi.
Aðrar stærðir fáanlegar.