Bændablaðið - 16.05.2000, Side 11
Þríðjudagur 16. rnai' 2000
BÆNDABLAÐIÐ
11
Þingsályktunartillaga:
AOIfigunar-
stufiningur við
lífrænan landbúnað
Þuríður Backman, Jón Bjarna-
son og Kolbrún Halldórsdóttir
alþingismenn hafa lagt fram
þingsályktunartillögu á Alþingi
um aðlögunarstuðning við líf-
rænan Iandbúnað. Þar er skor-
að á ríkisstjórnina að beita sér
fyrir aðgerðum til að veita
bændum sérstakan aðlögunar-
stuðning við lífrænan land-
búnað sem er sambærilegur við
þann sem veittur er annars
staðar á Norðurlöndum.
I greinargerðinni er rifjuð upp
þingsályktun sem samþykkt var
fyrir tæpum tveimur árum þar sem
skorað var á ríkisstjómina að
undirbúa viðeigandi breytingar á
landbúnaðarlögum til þess að unnt
væri að veita bændum stuðning
við aðlögun að lífrænum
búskaparháttum. Árangurinn var
m.a. að í samningi milli
Bændasamtakanna og ríkisins um
verkefni samkvæmt búnaðarlög-
um sé heimilað að veita stuðning
til lífrænnar ræktunnar 1999-2003
sem svarar 25 þús. kr. á hektara
lands og 250 kr. á fm. í gróðurhúsi
í formi eingreiðslna. Þá veiti
ÁFORM sauðfjárbændum stuðn-
ing til lífrænnar dilkakjötfram-
leiðslu. Að mati flutningsmanna
er þessi stuðningur ekki sambæri-
legur þeim stuðningi sem bændur
sem eru að laga búskap sinn að
lífrænni ræktun njóta annars
staðar á Norðurlöndum en þar eru
greiddir styrkir um nokkurra ára
skeið. Eðlilegt væri að reikna með
5-10 ára aðlögunartíma hér á landi
og ættu greiðslurnar að miðast við
það.
Flutningsmenn benda á að
Búnaðarþing hafi oft ályktað um
lífrænan búskap og telji að stefna
beri að því að vaxandi hluti
landbúnaðarframleiðslunnar verði
vottaður lífrænt. Svipaðar skoð-
anir komi fram í skýrslu nefndar
um útflutning dilkakjöts frá því í
nóvember sl. Einnig er bent á að
markaður fyrir lífrænt vottaðar
vörur aukist stöðugt og að lífrænn
landbúnaður sé vaxtarbroddur ný-
sköpunar sem hafi mjög jákvæða
ímynd.
Tiboosverð
b 2990.000-
JOHN DEERE 631 ámoksturstœkl kr. 685.000-
Allt verð er tllgrelnt án virðisaukaskatts.
Taktu af skarið og þú gætir fljótlega setið undir stýri á glænýjum JOHN DEERE traktor og
látið fara vel um þig, ekki síður ef hann er fullbúinn með nýjum JOHN DEERE
ámoksturstækjum. Berðu saman tæknilegu kosti JOHN DEERE við það sem keppinautarnir
bjóða og þú kemst fljótt að því ^ð enginn traktor jafnast á yið JOHN DEERE.
P.S. Við bjóðum hagstætt uppítökuverð fyrir núverandi traktor þinn r sama hvaða litur er á houm.
REVKJAVÍK ■ AKUREYRI
.REYKJÁVÍK: Armulá 11 - Sími 568-1500 AKUREYRI:
gítpi 46,1-1070
Láttu drauminn rætast:
Fjárfestu í John Deere traktor
EINSTAKT TILBOB
Á ÖIIUM J0HN DEERE TRAKTORUM í TAKMARKAOAN TÍMAI
Er ekki óþarfi að þrauka eitt árið enn á gamla traktornum - þegar þetta er í
boði - kannski er hann ekkert gamall en bara orðinn þreyttur.
Er nokkurt vit í því að eyða fjármunum og dýrmætum tíma í dýrar viðgerðir -
biianir koma alltaf á versta tíma.
Láttu þig ekki lengur dreyma um hvernig lífð væri með JOHN DEERE traktor,
gerðu eitthvað í málinu strax.
Verðdæmi:
JOHN DEERE 6210 SE 90hö
Beringspuntur
Notkun f uupgræítsli og tónrakt
Beringspuntur (Deschampsia
beringensis) er mjög harðgerð
grastegund, upprunnin í Norður-
Ameríku. Hann er náskyldur snar-
rótarpunti en hávaxnari og gulari á
að líta og myndar ekki þúfur.
Beringspuntur hefur verið notaður
til uppgræðslu hér á landi í aldar-
fjórðung og hefur reynst mjög vel
við erfiðar aðstæður. Hann verður
hávaxinn þegar næring er næg, en
er ekki áburðarfrekur. Sinu-
myndun getur verið rnikil og flýtir
þannig fyrir gróðurframvindu þar
sem hann er notaður til upp-
græðslu. Hann er einnig þurrk- og
vetrarþolinn, en þolir illa mikla
beit á fyrsta ári. Hann vex allt upp
í 800 m y.s.
Rannsóknastofnun landbúnað-
arins og Bændaskólinn á Hvann-
eyri hafa gert umfangsmiklar rann-
sóknir á Beringspunti.
Notkunarsvið: Beringspuntur
hentar vel til uppgræðslu örfoka
lands, og á landi með allnokkru
jarðvegsrofi. Hann er oft notaður í
sáningu upp að rofabörðum til að
hefta sandskrið á börðin. Hann lifir
einnig vel í sendnum eða malar-
kenndum jarðvegi.
Sáning: Æskilegt er að herfa
eða fella fræið niður 1-2 cm.
Sáðtími: Um leið og frost fer
úr jörðu. Haustsáning hefur einnig
skilað góðum árangri á Norð-
austurlandi og í nokkurri hæð yfir
sjávarmáli á Suðurlandi.
Sáðmagn: 25-50 kg/ha af
húðuðu fræi sé honum sáð
eingöngu en í sáðblöndum, t.d.
með melfræi, er 10-20 kg/ha af
húðuðu fræi hentugur skammtur.
Til túnræktar eru 50 kg/ha af
húðuðu fræi æskileg.
Sáðblöndur: Best er að sá
Beringspunti eingöngu en honum
er oft sáð með melgresi á Norð-
austurlandi og skilar sér vel
þannig. Um túnrækt, sjá síðar.
Áburðargjöf: 250 kg af áburði
(26-14) við sáningu.
Eftirmeðferð: Brýnt er að
bera á lífrænan eða tilbúinn áburð
árið eftir sáningu a.m.k. 200 kg/ha,
en síðan ætti þess ekki að þurfa.
Ráðlegt er þó að fylgjast með
framvindunni næstu 2-4 árin og
bera á ef þurfa þykir.
Fróðleiksmolar
Fræþroski: Fræþroski er yfir-
leitt góður á láglendi. Frætekju má
heQa í ágúst og þurrka þarf fræið
strax eftir uppskeru.
Náttúruverndarsjónarmið:
Beringspuntur er nokkuð hávaxinn
og áberandi og ber að hafa það í
huga við staðarval. Hann á auðvelt
með að sá sér og er því varasamur
nálægt lítt grónum vemdarsvæðum.
Túnrœkt
Beringspuntur hefur yfirleitt reynst
mjög vel á kalsvæðum. Til dæmis
hefur hann reynst afar vel í túnrækt
á Grænlandi þar sem kal í túnum er
algengt. Reynsla bænda á Suð-
urlandi sýnir að hann þolir þurrka
mun betur en önnur túngrös. Hann
sprettur snemma og hefur álíka
fóðurgildi og vallarfoxgras ef
slegið er snemma. Þar sem hann
„haustar" sig snemma fæst aðeins
einn sláttur á ári og lítil haustbeit.
Beringspuntur verkast vel í rúllum
og er þá afar eftirsótt vara á
heymarkaði fyrir reiðhross en
hefur ekki þótt étast vel sem full-
þurrkað hey. Til túnræktar hefur
reynst vel að sá honum einum sér
og einnig með vallarfox- og
vallarsveifgrasi, þar sem hann
tekur við þegar þær kelur. Ekki er
ráðlegt að sá honum með byggi.
Landgræðsla ríkisins býður
bændum á kalsvæðum húðað
beringspuntsfræ til túnræktar vorið
2000 fyrir 450 kr/kg. Tekið er á
móti pöntunum og nánari upp-
lýsingar veittar í síma 488-3000.
Frærækt
Beringspuntur gefur af sér
mikið fræ á 2. og 3. ári og er Land-
græðslan reiðubúin til að kaupa
fræ af bændum samkvæmt nánara
samkomulagi. Hálmurinn eftir fræ-
töku hefur reynst gott fóður fyrir
hross.
Magnús H. Jóhannsson og
Sveitin Runólfsson
Plastristar
margar tegundir og
styrkleikar fyrir nautgripi,
kindur og svín
Vélaval -
Varmahlíð HF
Sími: 453 8888 Fax: 453 8828