Bændablaðið - 16.01.2001, Qupperneq 2
2
BÆNDABLAÐIÐ
Þríðjudagur lú.janúar 2001
Bændasamtökin um
stækkun álvers
Norðuráls
Innheimta skal
umhvenfisgjald
af stúriðju
í lok nóvember óskaði Skipu-
lagsstofnun eftir umsögn
Bændasamtaka Islands um til-
lögu að matsáætlun vegna fyrir-
hugaðrar stækkunar álvers
Norðuráls hf. á Grundartanga í
allt að 300 þús. tonna ársfram-
leiðslu.
í svari Bændasamtakanna
kemur fram að þau hafa ekki for-
sendur til að gagnrýna þá áætlun
sem fyrir liggur um mat á um-
hverfisáhrifum, „ekki verður
annað séð en til standi að meta allt
það er mestu varðar og stækkun
álversins kann að hafa áhrif á.
Samtökin vilja þó nefna nokkra
þætti, sem þau leggja sérstaka
áherslu á, að verði gerð góð skil
við matið,“ segir Sigurgeir Þor-
geirsson í bréfi til Skipulagsstofn-
unar og hann nefnir í upphafi los-
un gróðurhúsalofttegunda og að
hún muni stóraukast ef áformin
verða að veruleika.
„Nauðsynlegt er að menn geri
sér grein fyrir með hvaða hætti er
raunhæft að mæta þeirri aukningu,
þannig að við getum lagt okkur
fram í baráttu heimsins á þessu
sviði. Rétt er að minna á í því
sambandi að búnaðarþing hefur
markað þá stefnu að innheimta
skuli „umhverfisgjald" af stóriðju,
sem renna skuli óskipt til land-
græðslu- og skógræktar.
Taka þarf fullt tillit til mögu-
legrar röskunar á búskaparaðstöðu
í nágrenni verksmiðjunnar, þ.m.t.
möguleika til ferðaþjónustu og
byggingar sumarbústaða svo og
gæðaímyndar afurða, sem fram-
leiddar eru á svæðinu. Náið
- samráð verði haft við heimamenn
í þessu sambandi.
Meta þarf eins og kostur er
áhrif á gróðurfar og dýralíf í ná-
grenninu, ekki síst með tilliti til
hlunnindanytja og hvers kyns
ræktunarmöguleika.
íbúar á Hvalfjarðarströnd hafa
lýst áhyggjum yfir því ef leggja
þarf enn eina háspennulínu eftir
hreppnum og krafist þess að hún
verði lögð í jörð, ef til kemur.
Ohjákvæmilegt er að umhverfis-
matið taki mið af þessum sjónar-
miðurn," segir framkvæmdastjóri
BÍ.
Læhhun þungaskatts
ætti líka að ná til
smæm díselbifreiöa
Stjórn Bændasamtaka íslands
ræddi fyrir skömmu urn frumvarp
vegna fjáröflunar til vegagerðar. í
greinargerð með frumvarpinu er
með réttu vfsað til mikillar hækk-
unar olíuverðs á sl. ári sem leitt
hefur til mikils kostnaðarauka
fyrir fyrirtæki sem gera út dísel-
bifreiðar. „Það er álit stjómar
Bændasamtaka Islands, að lækkun
þungaskattsins nú eigi einnig að
ná til smærri díselbifreiða, einkum
þeirra, sem notaðar eru í
atvinnurekstri,“ segir í bréfi sem
stjórn BI sendi efnahags- og
viðskiptanefnd Alþingis.
Hér má sjá hana Olgu Þórunni Gútafsdóttur, níu ára smalastúlku, sem býr á Reykhólum í Reykhólasveit. Olga var
að koma úr göngum þegar Friðgeir Snæbjörnsson smellti af henni mynd. Þess má geta að það er Staðarkirkja
sem er í bakgrunni.
Kjötframleiðendur ehf
Meginverkefnið útflutningur
hrossahjðts fil ftaliu
- Áform um að auka Hutning og ðrvinnslu hrossakjöts
Aðalfundur Kjötframleiðenda
ehf fyrir árið 1999 var haldinn
nýlega og kom þar fram að velta
félagsins á því ári nam 80,1
milljón og hagnaður af rekstri
1,6 rnillj. Félagið er í eigu Lands-
sambands kúabænda, Lands-
samtaka sauð-fjárbænda og
Félags hrossa-bænda, auk
starfsmanna.
Meginverkefni félagsins var
útflútningur hrossakjöts til Ítalíu,
sem flutt er ferskt og með flugi til
Evrópu. Þangað fóru afurðir af
2613 hrossum eða tæp 280 tonn.
Þar er þetta kjöt selt í samkeppni
við hrossakjöt víðs vegar úr heim-
inum og verður að sæta því
markaðsverði sem býðst á hverjum
tíma.
Ennfremur kom fram að starf-
semi félagsins hefur aukist nokkuð
á yfirstandandi ári. Slátrun hrossa
fer yfir 3000 stk. og útflutningur til
Ítalíu nálgast að líkindum 310
tonn.
Aform eru uppi um að auka
útflutning og úrvinnslu enn frekar.
Það mun þó ráðast af viðbrögðum
markaðsins, eins og annað sem að
þessu starfi lýtur.
Gerð var grein fyrir því að
síðustu mánuði hefði aigengt verð
til bænda verið á bilinu 8000-9000
krónur fyrir hrossið. Að frádregnu
flutningsgjaldi hefðu jreir sam-
kvæmt því fengið 6000-7000
krónur nettó án virðisaukaskatts.
Þannig væru fjarri öllurn sanni
ummæli þess efnis að ekki svaraði
kostnaði að færa hross til slátrunar
fyrir útflutningsmarkað. Auk hins
ofangreinda skilaverðs sparaðist
fyrirhöfn, fóður og beit. Sá ávinn-
ingur væri í mörgum tilfellum
miklu meiri en sjálft innleggs-
verðið.
Þá er rétt að geta þess að þessi
útflutningur léttir mjög á þrýstingi
á innanlandsmarkaði. Verkþekk-
ing á slátrun/vinnslu til útflutnings
hefur vaxið verulega, sem vonandi
■nýtist fleiri kjötgreinum til
hagsbóta samtímis því að störfum
hefur fjölgað nokkuð.
Formaður hrossabænda Krist-
inn Guðnason lýsti ánægju með
þann árangur sem náðst hefur og
hvatti lil frekari umsvifa.
Stjórn Kjötframleiðenda skipa
nú þeir Guðmundur Lárusson,
Aðalsteinn Jónsson og Kristinn
Guðnason. Framkvæmdastjóri er
Hreiðar Karlsson. Að síðustu skal
þess getið, að frá 1. janúar 2001
verður innleggsverð til bænda kr.
56 pr. kg fyrir hross I, en kr. 34 pr.
kg fyrir Hross II.
Mæðup fústurvísanna prúfaðar
gagnvart kúariðu
„Ákveðið hefur verið, þrátt fyrir
að kúariða berist ekki með
fósturvísum, að prófa mæður
fósturvísanna fyrir þessum
sjúkdónfi," sagði Snorri Sigurðs-
sonar, Iramkvæmdastjóri LK og
umsjónarmaður innflutningsins,
„en þetta er fyrst og fremst gert
til að tryggja enn frekar alla
sjúkdómaskrá foreldragripanna.
• Eins og öllum er orðið kunnugt
verður ekki kastað til höndunum
við þessa samanburðartilraun.
Þrátt fyrir að þær aðferðir sem
við notum vjð innflutninginn á
erfðaefninu séu þær öruggustu í
Evrópu og vitað sé að kúariða
berist ekki með fósturvísum,
ætlum við að ganga cnn lengra
með því að taka sýni úr ÖlÍum
norsku kúnum þegar þeim verður
slátrað og senda í greiningu. í
leyfisveitingunni var ekki gerð
krafa um þetta, en við töldum rétt
að gánga þetta skref til viðbótar”.
Nú hafa gengið fréttir í
Evrópu um þá stefnu sem við
höfum varðandi innflutning á
eifðaefni, hvað segir þú um það?
„Við hljótum að vera ánægð
með þá athygli sem þessi stefna
vekur en hún staðfestir enn og
aftur að sú leið sefn við völdum
til að flytja inn erfðaefni er
einfaldlega sú öruggasta sem
þekkist í heiminum í dag. Það er
því eðlilegt að þær þjóðir scm
flutt hafa erfðaefni milli Ianda
með lifandi dýrum horfi nú
öfundaraugum hingað”, sagði
Snorri að lokum.
Bændablaðið kemur út hálísmánaðarlega. Því er dreift til
allra bænda landsins og fjölmargra annarra er tengjast
landbúnaði. Alls fóru 6.495 eintök í dreifingu hjá
íslandspósti í lok nóvember. Bændablaðinu er dreift frítt
til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst
. áskrifgndiJr að blgðjnp., , ....
Argangurinn kostar
kr. 3.800 en sjötugir og eldri greiða kr. 1.800.
Sími: 563 0300 - Fax: 552 3855 - Kt: 631294-2279 -
Ritstjóri: Áskell Þórisson (ábm.) - Beinn sími ritstjóra:
563 0375 - Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason - Beinn
. . . sími auglýsingastjóra:563.Q303.r.,.
Blaðamaður: Hallgrímur Indriðason. - Blaðstjórn:
Sigurgeir Þorgeirsson, Hörður Harðarson, Þórólfur
Sveinsson. - Netfang: bbl@bondi.is -
Umbrot: Þrentsnið - Rrentun: ísafoldarprentsmiöja -
Nr. 126-ISSN 1025-5621
ÍSMttH
níli
Netið í Þing
Bóndi í Suður-Þingeyjarsýslu
hringdi í Bbl. í síðustu viku.
Hann sat þá við tölvu sína og
stundi þungan en þrátt fyrir
margítrekaðar tilraunir tókst
honum ekki að komast inn á
netið en hann hafði hugsað sér
að borga nokkra reikninga.
Bóndinn sagði Bbl. að þetta
væri ekkert einsdæmi - oft tæki
það mjög langan tima að ná
sambandi og hitt væri ekki
óþekkt að það tækist alls ekki.
Bbl hefur rætt við nokkra
bændur og virðist ástandið vera
best hjá þeim sem eiga þess
kost að fá ISDN tengingu. Ljóst
má vera að enn skortir mikið á
að bændur landsins búi við
nógu gott ástand hvað
nettengingu varðar.
Nýtt um hrossarækt á
bondi.is
Búið er að hressa upp á heim-
asíður hrossaræktarinnar á
bondi.is en þar er nú að finna
m.a. allar upplýsingar sem birst
hafa í ritunum Hrossaræktin I og
II. Útgáfu þeirra á hefðbundnu
pappírsformi hefur verið hætt
enda of lítill áhugi fyrir að kaupa
þessi rit til að gefa þau út með
óbreyttu sniði. Það má segja að
tölvuvæðing hrossaræktar á und-
anförnum árum hafi leitt þetta af
sér, allar upplýsingar eru
aðgengilegar um netið um leið og
þær verða til. Sömu sögu verður
að öllum líkindum hægt að segja
um allan þann pappír sem er á
ferðinni í skýrsluhaldi hjá okkur -
hann mun hverfa að miklu leyti
þegar rafræn skráning í World-
Feng fer af stað fyrir alvöru
hérlendis. Auðvitað eru þó alltaf
einhverjir sem ekki hafa aðgang
að tölvu og interneti en þá
verðum við í sameiningu að
aðstoða þá við að nálgast
upplýsingar og prenta út það sem
þeir leita eftir. AS
Vefsíða um stóðhesta
og ræktunarstarf
Hrossaræktarsamband
Vesturlands hefur opnað vefsíðu
með upplýsingum um
stóðhestana sína og annað sem
máli skiptir í ræktunarstarfinu.
Slóðin: http://www.hrossvest.is
Aðstandendur síðunnar segja
að hún komi fljótt upp og gefi
ýmsar upplýsingar.
Af hrossaskýrslum
Mikil bylting á sér nú stað í
gagnamálum hrossaræktarinnar
þar sem verið er að taka í notkun
nýtt alþjóðlegt skráningarkerfi fyrir
íslensk hross. Allt sl. ár hefur
staðið yfir forritunarvinna við að
skapa hið nýja umhverfi en einnig
gríðarleg vinna við að færa öll
gögn úr mörgum áttum úr gamla
umhverfinu yfir í hina netvæddu
upprunaættbók íslenska hestsins
- WorldFengur. Eins og búast má
við þegar ráðist er í slík verkefni
standast tímaáætlanir ekki alltaf
og það varð raunin hvað varðar
vinnslu skýrsluhalds í hrossarækt
sem þessa dagana er að berast
hrossaræktendum. Vegna seink-
unar á útsendingu gilda aðrir ein-
dagar á skýrsluskilum vegna
gæðaskýrsluhalds í þetta sinn.
Allar skýrslur sem skila skal fyrir
árið 2000 þurfa því nú að hafa
borist til Bændasamtaka íslands
fyrir 1. mars 2001. Þetta á við um
stóðhestaskýrslur, fangvottorð,
fang- og folaldaskýrslur og vott-
orð um einstaklingsmerkingu.
AS