Bændablaðið - 16.01.2001, Page 10
10
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur ló.janúar 2001
Breiöamerkurjök'ull
Skaftafellsfjöli
ínaitindur
öræfajðkuil
eiöarársaidur
Óbyggðanefnd kynnir kröfur fjármálaráðherra
um þjóðlendur í sveitarfélaginu Hornafirði:
„Kemiir okkiir gjör-
samlega i opna skjflldu"
- segir Albert Eymundsson bæjarsQöri Hornafjarðar
Óbyggðanefnd hefur kynnt
kröfur fjármálaráðherra fyrir hönd
ríkisins um þjóðlendur í Austur-
Skaftafellssýslu. Mörkin sjást á
kortinu hér til hliðar. Þessar kröfur
hafa vakið mikla athygli og áttu
menn ekki von á að ríkið gerði til-
kall til svo stórs landssvæðis.
„Þetta kom okkur alveg í opna
skjöldu og við erum undrandi á
þeirri línu sem er dregin. Fyrirfram
höfðum við kannski búist að ríkið
gerði kröfu um Lónsöræfin sem
þjóðlendur en menn reiknuðu
aldrei með neinu þessu líkt,“ sagði
Albert Eymundsson bæjarstjóri
París 13.-21. februar 2001
Bændaferð á SIMA landbunaðarsýninguna
með Ingvari Helgasyni hf.
Fjórar nætur
í heimsborginni París
Eiffelturninn, Sigurboginn og fleiri
íhueaverðir staðir ásamt skemmtilegri
Heimsókn í Fendt
verksmiðjurnar þar sem flestum
teeundum Fendt dráttarvéla verður
O
reynsluekið.
Heimsækjum einnig VÍCOH
verksmiðjurnar þar sem sérstök
dagskrá verður í boði fyrir konurnar
í hópnum.
Innifalið:
Flug með flugvallarskatti til Ftankfurt og
heim frá PaflS. Akstur ailan tímann. Gisting með
orgunverði í 8 nætur. SeX kvöldverðir og fjó
hádegisverðir. Verð á mann í tvíbýli 78.900,-
Einnie heimsókn til
ingvar
Heigason hf,
Sararkötda 2
Simi 525 8000
véladeild
www.ih.is
Pantanir
og allar nánari upplýsingar hjá tcrðaskrifstohinni Urval Úrsýn
í suna S8S 4000 eða hja sölumönnum véladeildar Ingvar Helgasonar hf.
Hornafjarðar í samtali við Bænda-
blaðið. „Hér er mjög lítið land og
engin afrétt, a.m.k. hefur það orð
ekki verið notað, því að jökullinn
afmarkar landssvæði hér í
sýslunni. Þetta gildir þó ekki um
Lónsöræfi sem eru einangruð
vegna landfræðilegra aðstæðna.
Hér hefur umræðan alltaf snúist
um það að allt þetta land sé í
einkaeign og það hefur ekki komið
upp mikið af deilumálum hér hvað
það varðar.“
Albert bendir m.a. á að land-
eigendur hafi verið skikkaðir til að
smala þessi lönd vegna þess að
þeir annaðhvort eigi þau eða hafi
yfirráð yfir þeim. „Þess vegna
kemur okkur mjög á óvart hvað
línan er dregin langt frá jökli.“
Að mati Alberts eru aðstæður í
Austur-Skaftafellssýslu aðrar en í
Árnessýslu þar sem ríkið hefur
einnig sett fram sínar kröfur. „Þar
eiga sveitarfélögin eða ráða yfir al-
menningum eða afréttarlöndum.
Hér hefur sveitarfélagið nánast
enga beina hagsmuni miðað við
þessa línu. Við munum hins vegar
aðstoða fólk þegar það býr sig
undir að svara þessum kröfum. Eg
tek það hins vegar fram að líklega
verður nýtingarréttur á þandinu
óbreyttur þó að það verði að þjóð-
lendum en hins vegar er spuming
með tilvik eins og Staðarfeils-
jörðina sem telur sig éiga Lóns-
öræfin og hefur byggt þar upp
ferðaþjónustu."
Sveitarfélagið Hornafjörður og
Búnaðarsamband Austur-Skaft-
fellinga boðuðu til opins fundar á
miðvikudaginn var um þessi mál.
Þar héldu erindi lögmennimir sem
unnu að þessum málum í
Ámessýslu og Páll Lýðsson sagn-
fræðingur og bóndi í Litlu-Sand-
vík. „Eg hef hlerað að það hafi
verið allt annað andrúmsloft eftir
fundinn en fyrir hann enda var
markmiðið með honum að fara
yfir málið á þann hátt að menn
væru betur í stakk búnir eftir fund-
inn til að vinna í því. Erindin voru
mjög góð fyrir þá sem ekki þekktu
málið nógu vel. Það sóttu um 100
manns fundinn þannig að hann er
með þeim fjölmennari sem hefur
verið haldinn á þessu svæði.“
Næsta skref hjá bæjarstjóminni
er að afla gagna um hverjir eigi
þessi lönd svo að hægt sé að nota
þau þegar svara á þessum kröfum
3. maí nk. „Þá er spumingin
hvemig Óbyggðanefndin úrskurð-
ar í þessum málum,“ segir Albert
að iokum.
Njji verOlagsgrund-
völlurinn kynntur
kúabændum
Hinn 1. janúar sl. tók gildi nýr
verðlagsgrundvöllur kúabús. Um
þessar mundir standa Landssam-
band kúabænda og viðkomandi
félög kúabænda fyrir kynningar-
fundum um nýja gmndvöllinn.
Lyrstu fundirnir vom á Suðurlandi
og komu um 140 manns á þá. I
þessari viku verða fundir í Skaga-
firði og Austur-Húnavatnssýslu.
Kúabændur eru hvattir til að sækja
fundina sem eftir em.
VÉLAVAL-Varmahlið w
Simi 453 8888 Fax 453 8828
Veffang www.velaval.is
Netfang velaval@velaval.is