Bændablaðið - 16.01.2001, Qupperneq 13
Þriðjudagur ló.janúar 2001
BÆNDABLAÐIÐ
13
3
Nýjung í áburðarkaupum
Mikil söluaukning hefur orðið hjá Áburðarverksmiðjunni miðað við
sama tíma í fyrra. Fjölkornaáburðinum Fjölgræði og Fjölmóða hefur
verið afar vel tekið. Þegar er Ijóst að mikill fjöldi bænda hyggst kaupa
nýja áburðinn ásamt einkorna áburði og þannig lækka verulega
kostnað sinn við áburðarkaup.
Á tímum þegar sjúkdómar og mengun herja á landbúnað á meginlandi
Evrópu leggja íslenskir bændur allt kapp á að tryggja hollustu og
hreinleika íslenskra afurða. Það hafa þeir m.a. gert með því að nota
hreinan og vistvænan áburð Áburðarverksmiðjunnar.
Neytendur þurfa því ekki að óttast um heilbrigði sitt við neyslu
íslenskra landbúnaðarafurða. íslenskir bændur eiga hrós skilið.
Kaupir fjölkorna áburð til helminga við einkorna
„Þegar örla fer á grænum gróðri og vora tekur eru oft þungatakmarkanir á vegum. Þá er það mikill skaði að
géta ekki nálgast áburðinn. Það er því gott að fá hann snemma heim. Væntanlega verður það á næstu vikum
en venjulega ber maður á fyrripartinn í maí. Árið sem er að líða hefur verið gott hvað varðar veðurfar en maður
getur ekki treyst á það. Með góðum áburði get ég hins vegar verið viss um góða uppskeru," segir Sigurgeir
Pálsson, bóndi á Sigtúnum í austanverðri Eyjafjarðarsveit.
Sigurgeir, sem er 44 ára gamall, hefur stundað
búskap í tvo áratugi. Búið rekur hann með konu
sinni, Jórunni Agnarsdóttur. Þau eru með vel á
fjórða tug kúa en í mjólk hafa þau framleiðslurétt
upp á 175 þúsund lítra. Þá stunda þau umtals-
verða nautakjötsframleiðslu.
Berið saman verð og gæði!
Ný verðskrá 29. janúar nk.
Hagstætt verð
Sigurgeir hefur þegar gengið frá áburðar-
kaupum við Áburðarverksmiðjuna í Gufu-
nesi. Hann gerir ráð fyrir að þurfa allt að
40 tonn af áburði til að bera á tún sín sem
eru alls um 75 hektarar. Sigurgeir ætlar að
kaupa nýja fjölkorna áburðinn til helminga
á móts við einkorna áburð enda sé hann
verulega ódýrari.
„Það eru blikur á lofti og áburðarverð gæti
hækkað á næstu mánuðum. Því er alla vega
spáð varðandi innfluttan áburð. Með því
að kaupa áburð frá Áburðarverksmiðjunni
núna er ég að tryggja mér áburð á góðu
verði."
„Áburðurinn er hreinn og vistvænn og hefur
verið þróaður að íslenskum aðstæðum en
sumpart vitum við ekki hvað við erum að
kaupa þegar um erlendan áburð er að
ræða."
Eykur gæði afurðanna
„Bændur ættu að vera sér meðvitaðir um
að ef þeir kaupa ekki áburð frá
Áburðarverksmiðjunni þá eru þeir í raun
að grafa undan sinni eigin framleiðslu.
Ef bændum finnst í lagi að kaupa innflutt-
an áburð þá vænti ég þess að neytendur
muni í auknum mæli kalla á innflutning
á landbúnaðarvörum. Bændur verja
markaðinn best með því að kaupa sjálfir
innlendan áburð."
Eins og aðrir bændur í nútímabúskap
lætur Sigurgeir efnagreina heyið hjá sér
árlega með tilliti til næringar- og stein-
efnainnihalds. Þá leitar hann reglulega
til ráðunauta varðandi áburðarnotkun.
„Allflestir bændur hér í Eyjafirðinum nota
áburðinn frá Áburðarverksmiðjunni í
Gufunesi enda hefur hann reynst vel. Rétt
notkun kemur fram í afurðunum og þá
er ég ekki einungis að tala um mjólkur-
magnið heldur líka gæðin, til dæmis hvað
varðar efnainnihald mjólkurinnar," segir
Sigurgeir.
Áburðarverksmiðjan hf.
Gufunesi - 128 Reykjavík - Slmi 580 3200 - Fax 580 3209 - www.aburdur.is
- Farsœl þjónusta við bœndur / 45 ár.