Bændablaðið - 16.04.2002, Blaðsíða 6

Bændablaðið - 16.04.2002, Blaðsíða 6
6 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 16. apríl 2002 Bændablaðið er málgagn íslenskra bænda Þróun matvælaverðs Að undanfomu hefur nokkuð verið fjallað um þróun matvælaverðs hérlendis í samanburði við verðþróun í nágrannalöndunum. Umræðan hefur síðan verið tengd stuðningi við íslenskan landbúnað og hann talinn einhver sá mesti sem fyrirfinnst. OECD gerir árlega samanburð á stuðningi þjóða við eigin landbúnað mælt í PSE gildum. Sá samanburður sýnir að stuðningur við íslenskan landbúnað er mikill og aðeins fáar þjóðir m.a. Sviss, Japan og Noregur eru með hlutfallslega hærri stuðning. Þetta þarf ekki að koma á óvart. Lífskjör og framfærslukostnaður allur er hér sambærilegur við ofangreind lönd og þar við bætist að norðlæg lega landsins og gisin byggð eykur kostnað við landbúnaðarframleiðslu. Jafnt bændur sem neytendur gera miklar kröfur til öryggis búvaranna og er skemmst að minnast viðbragða við írskum nautalundum sem hér voru boðnar til sölu um næstliðin jól. Hafa verður í huga í þessu sambandi að öll gæði kosta. Varðandi þróun matvælaverðs á Norðurlöndunum er ekki allt sem sýnist og sé grannt skoðað svo sem gert er hér í blaðinu kemur i ljós að sé tekið tillit til verðlagsþróunar hafa landbúnaðarafurðir hérlendis lækkað að raunverði um nálægt 14% frá 1990-2000 og því í raun lækkað mun meira en búvörur í Danmörku og Noregi. Sambærileg niðurstaða fæst ef borin er saman verðþróun innlendra búvara og helstu þátta neysluvísitölunnar síðustu 24 mánuði sem einnig er gert hér í blaðinu. Þar kemur í ljós að margir helstu þættir neysluvísitölunnar hafa hækkað mun meira en búvörur og sérstaka athygli vekur yfír 40% hækkun trygginga og 25% hækkun greiddrar húsaleigu. Hlutfallslega lítil hækkun búvöruverðs er sérlega athyglisverð í því ljósi að fram hefur komið hjá Samkeppnistofnun að álagning matvara fer hækkandi og á sama tima er búvaran æ meira unnin með 1 L r»*n Ai UHIVj IU1IU1 IVV/HUIUUI . Allt her hví nrS «ama hrnnni Rnnrlin fapr <sífpllt minna af endanlegu útsöluverði búvaranna í sinn hlut. Þetta er ekki séríslenskt fyrirbrigði heldur eitt helsta vandamál bænda um allan heim eins og greint er frá hér í blaðinu. Eigi að síður er ljóst að íslenska bóndanum verður hvorki kennt um óhagstæða verðþróun hérlendis né hættu á að stigið sé að rauðu línuna. Hljóta ekki bæði bændur og forsvarsmenn þjóðfélagsin að spyrja hve lant sé hægt að ganga í þessa átt. Gæðin kosta, sporin hræða og þjóðin hvorki vill né getur neytt íslenska bóndann út í þær framleiðsluaðferðir sem eru orsakavaldar díoxinmengunar, kúariðu og fleiri áfalla sem rýrt hafa traust á þeirri alþjóðavæðingu landbúnaðar og forgangsröðun við mótun landbúnaðarstefnu sem boðuð var í lok síðustu aldar. Steingrímur staðfesti stóra sannleik Steingrímur J. Sigfússon skrifaöi langa grein í síðasta Bændablað, og er greinilega sár og beygður. Hann staðfesti margt af því sem ég hef sagt og enn skal ég ítreka þau orð mín að ég er þeirrar skoðunar að útflutningsuppbætur þær sem ríkið greiddi í áratugi voru skomar af alltof snöggt. Eg hefði ekki viljað vera sá land- búnaðarráðherra sem það gerði, ekki síst í ljósi þess að enn keyra Evrópubændur á útflutnings- bótum. Landbúnaðurinn, og ekki síst sauðfjárræktin, þurfti á því að halda að fá lengri aðlögunartíma. Mesti og nánast eini spamaður á fjárlögum ríkisins á síðasta áratug eru lækkuð fjárframlög til land- búnaðarins. Steingrímur J. Sigfússon er fúrðu viðkvæmur stjómmálamaður, en stríðnir menn em oft þannig að þeir þola lítinn andblástur. Steingrímur flytur 450 ræður úr ræðustól Alþingis hvem vetur og tekur það fulla vinnuviku verkamanns. Maðurinn er ágætur ræðumaður, en ég giska á að helmingurinn af þessurn 450 ræðurn snúist um að gagnrýna aðra og gera lítið úr verkunt þeirra. Auðvitað má finna margar perlur í þessu niasi þingmannsins, en smátt og smátt hætta allir að heyra unt hvað málæðið snýst. Eg met Stein- grím mikils sem mann og veit að hann er einlægur stuðningsmaður íslenskra bænda og landbúnaðar, og þar erum við jafnan ágætir samherjar. Ég ætla heldur ekki að gera lítið úr þeim störfum sem hann vann í ágætri ríkisstjóm sem ég studdi frá 1988-91, en samt er það skoðun mín að blóðöxi hafi verið beitt með alkunnum afleiðingum þegar útflutnings- bætumar vom felldar niður. Til fróðleiks vom út- flutningsbætur á verðlagi hvers árs kr. 894,942 þús. verðlagsárið 1988/1989, kr. 960,712 þús. verð- lagsárið 1989/1990 og kr. 860,490 þús. verðlagsárið 1990/1991, þar sent langstærstur hluti fór til að bæta verð á útfluttum sauðfjáraf- urðurn. Talnaglöeeir menn eeta svo reiknað út hverjar þessar upp- hæðir væm í dag miðað við verð- lagsbreytingar. En þessi tími er hins vegar að baki og þýðir hvorki fyrir mig né aðra að rífast um löngu teknar ákvarðanir - en það hlýtur að mega ntinna á þessar breytingar. Steingrímur leggst hins vegar í sinni vondu vöm í að reyna að sá efasemdum um mín störf og mína framgöngu í landbúnaðannálum. Mín verk em auðvitað umdeild einsog annarra, en ég þori vel í rökræður unt störf mín og bið hvem þann sem þessa grein les að íhuga í rólegheitum nokkur atriði sem ég hef beitt mér fyrir í landbúnaðannálum. 1. Ég hef talað af bjartsýni og trú um bœndur og landbúnaðinn þrátt fyrir að staða bœnda sé mis- jöfn. Menn segja mér að þetta ásamt mörgu öðru geri það að verkum að nú sé meiri samstaða og skilningur í landinu i garð bœnda. Ég er fyrsti landbúnaðar- ráðherrann um langa hríð sem hef ekki þurft að standa í vörn og eilífum deilum í fjölmiðlum til að verja bænditr. Þetta er ný staða - og égfagna henni. 2. Ég hef með ágœtum árangri getað eflt hliðarbúgreinar, s.s. ís- lenska hestinn og að bœndurnir grœði landið skógi, og hefur Guðni Agústsson landbúnaðarráðherra svarar Steingrími J. Sigfússyni, formanni Vinstri-Grænna. stuðningur rikisins í þessi verkefni vaxið verulega. 3. Ég hef lagt mikla áherslu á að ejla skólana á Hvanneyri, Hólum og Reykjum og í dag er að- sókn i hámarki. Fegurri sveitir vitna um nýjan og markvissan metnað til aó bœta umhverftð i sveitum. Bœndurnir eru mikilvœgir i ferðaþjónustu og reka í vaxandi mœli ferðaþjónustu i örum vexti. 4. Nýr sauðfjársamningur var gerður árið 2000 og stuðningur tryggður til ársins 2007. Samningurinn gefur fœri á nýjum metnaði í sauðjjárrœktinni og hefur þegar skilað umtalsverðum peningum til bœnda. Engir þekkja í dag þennan samning betur en sveitungar og sýslungar Steingrims, þannig að liœg eru heimatökin að spyrja um viðhorf N-Þingeyinga. 5. Garðyrkjan hefur fengió samning sem á að skila garðyrkju- bœndum aukinni sölu á hollustu- vöru og friði um atvinnugreinina. Langtímasamningur er um stuðning til ársins 2010. 6. Mikill kraftur hefur verió í kúabændum á síðustu árum. miklar framkvœmdir í fjós- byggingum og framfarir örar i kúastofninum. 7. Svína- og alifuglarœkt í miklum uppgangi og loðdýra- bœndur sœkja i sig veðrið. Hér lýk ég minni upptalningu í bili. Mér hefúr liðið vel í starfi landbúnaðarráðherra og vonandi kunna einhveijir að sjá að ég hef orðið að liði og hátíðarræðumar í stíl Jóhannesar eftirhermu náð nokkmm árangri. En þá dettur mér í hug að Jóhannes hermir ekki eftir Stein- grími, það er nefnilega hápunktur stjómmálamannsins að komast á það stig að einhveijir hafi gaman af að herma eftir þingmanninum. Ég fúllvissa Steingrím um að Jóhannes hefúr ekki skaðað okkur Halldór Blöndal, nema síður sé. Að lokum þetta; mér þykir erfiðast að þurfa að standa í átökum við bænduma og mér finnst því miður að dálítill hópur þeirra fari nokkm offari bæði meðal sauð- fjárbænda og kúabænda. Öll átök innan starfsgreina valda skaða á markaði. Þess vegna er nú mikil- vægast að menn slíðri sverð sín og allir fari undir árar og rói í takt. Bændur og landbúnaðurinn eiga góðan byr hjá þjóðinni. Mjólkur- iðnaðurinn hefur aukið sölu um milljónir litra með ýmsum fram- leiðslunýjungum, s.s. skyr.is. Sauðfjárþændur þurfa nú að efla sín markaðsmál, og i því ætla ég að vinna með þeim. Ég þakka Steingrími fyrir grein hans og ber ekki kala til hans, öðm nær. Eg öfunda hann þó ekki af öllum þessum ræðum þar sem hann iðulega semur við sjálfan sig um hin flóknustu mál. Vinstri-Grænir em ekki minir höfúðandstæðingar í pólitík, mér þykir heldur vænt um þetta fólk og það verður ekki sagt að þingmenn Vinstri-Grænna hafi beitt sér gegn mínum störfum í þinginu sem land- búnaðarráðherra, heldur oft verið samherjar mínir i leit að nýjum sóknarfæmm. Hins vegar dettur ntér ekki í hug að Vinstri-Grænir verði kosnir til ábvreðar eða tbrystu. Hokkurinn er hetðbundinn stjómarandstöðuflokkur, eins og Kvennalistinn var. Þessari gerð af stjómmálamönnum líður best i stjórnarandstöðu. Ég á t.d. mjög gott samstarf við formann BSRB og hans fólk um ýmis málefni. Enn fremur hefur ASl og forystumenn þeirra samtaka komið á ný að mál- efnum landbúnaðarins með þátt- töku í nefndastarfi og tillögugerð. Ég held ótrauður áfram að tala fyrir málstað bænda og landbún- aðarins og legg mín verk í dóm kjósenda eftir rúmt ár. Framsóknarflokkurinn hefur komið miklu í verk í stjóm landsins sl. sjö ár. Lífskjör á Islandi hafa batnað verulega og at- vinnuleysið er að mestu horfið. í landinu ríkir bjartsýni og trú á framtíðina. Verkefnin eru ærin og verða það um alla framtíð. í apríl 2002, Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.