Bændablaðið - 16.04.2002, Page 14

Bændablaðið - 16.04.2002, Page 14
14 / r i j 'i t * t1 oprp 7M2 BÆNOABLAÐIÐ Þridjudagur 16. april 2002 Landssamband kúabænda Fundur um málefni nautakjötsframleiðslunnar Fimmtudaginn 18. apríl verður haldin ráðstefna í Rúgbrauðs- gerðinni um málefni nautakjöts- framleiðslunnar. Bændur, ráðunautar og aðrir áhugasamir um nautakjötsframleiðslu eru hvattir til að mæta. Nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar er að finna hér á síðum blaðsins. Mjólkurframleiðslan Eins og fram hefur komið hefúr sala á mjólkurafurðum gengið vel á þessu verðlagsári og Ijóst að iðnaðurinn mun greiða fyrir a.m.k. 3 milljónir lítra umfram greiðslumark. I lok mars var innvigtun mjólkur nokkuð minni en á sama tíma í fyrra, þrátt fyrir að greiðslumarkið liafi verið aukið urn eina milljón lítra síðasta haust. Af þessu má vera ljóst að ef ekki er hugað mjög vel að framleiðslunni í sumar getur orðið erfitt að ná inn því magni af mjólk sem að er stefnt. Brýnt er í þessu sambandi að huga vel að áburðargjöf, sem og vor- og sumarbeit og er bændum bent á að gera áætlanir um þetta í samráði við ráðunautana. Minnt er enn á að nú í sumár verður C- greiðsluálag á innvegna mjólk í júlí og ágúst. Kvótasala Verð á greiðsluntarki hefur lækkað talsvert frá fyrra ári, en þó tæpast eins mikiö og aðstæður bjóða upp á. Full ástæða er til að hvetja bændur og aðra sem koma að greiðslumarksviðskiptum, til að skoða vandlega á hvaða verði er skynsamlegt að kaupa greiðslumark við núverandi framleiðsluaðstæður. Árshátíó kúabænda Minnt er á að árshátíðin verður haldin föstudagskvöldið 26. april nk. Miðapantanir fara fram i síma 563 0300 og hótelherbergi er hægt að panta hjá Hótel Sögu í síma 525 9932. Árshátíðin er auglýst annarsstaðar í blaðinu. Síðasti skráningarfrestur er föstudagurinn 19. apríl nk. Sala NLK ehf í Hrísey I vikunni var gengiö frá sölu á öllum eigum NLK ehf. í Hrísey til fyrirtækisins Hríseyjamauta ehf., en seldur var allur bústofn, vélar og tæki, ásamt véla- skemmu. Eins og frant hefur komið hér á síðum blaðsins var bústofninn auglýstur til sölu fyrr í vetur og bárust mörg tilboð í hann, en hinsvegar var ákveðið að taka tilboði Hríseyjarnauta ehf., þar sem það reyndist hagkvæmast. Öllurn þeim sem sendu inn tilboð er þakkað fyrir sýndan áhuga. MR FÓÐUR Fóöur- afgreiðsla MR 540 1111 AHRIF FOflRUNAR A PRO- IÐNINNIHAUI i MJÚLK Ef skoðaðar eru tölur um samsetningu innveginnar mjólkur á landsvísu síðustu 15 ár sést að próteinhlutfall hefur lækkað jafnt og þétt úr 3,44 í 3,26. Árstíða- sveiflur eru þó miklar, en prótein- hlutfall er hæst á haustin, í september og október, og fer síðan lækkandi fram í maí er það fer að hækka aftur. Þessi lækkun prótein- hlutfalls er andstæð þróun markaðarins, en sala próteinríkra mjólkurafurða hefur aukist veru- lega á kostnað fituríkra afurða. Ymsar ástæður hafa verið nefhdar fyrir framangreindri þróun. T.d. hafa orðið róttækar breytingar á heyskapartækni þar sem rúlluhey (80%) er orðin uppstaðan í heyskap í stað súgþurrkaðs þurr- heys áður. Þá sýna skýrslur að kynbótastarfið hefur hækkað nyt á kostnað próteinhlutfalls í mjólk. Þessari þróun hefur þó verið snúið við núna með hinum öfluga nauta- árgangi frá 1994. I ljósi þessara upplýsinga var ákveðið að rannsaka og skilgreina þá þætti sem hafa hvað mest áhrif á efnainnihald mjólkur við íslenskar aðstæður. Meginviðfangsefni verkefnisins eru: a. Söfnun upplýsinga hjá bændum; b. Erfðafræðilegar rann- sóknir, þ.e. samanburður dætra- hópa m.t.t. mjólkurefna; c. Fóður- og lífeðlisfræðilegar rannsóknir, þ.m.t. tilraunir með mjólkurkýrnar á Stóra Ármóti og rannsókn á vinnslueigin- leikum mjólkur. í nóventber árið 2000 hófst fyrsta fóðrunartilraunin i þessu verkefni á Stóra Ármóti þar sem rannsökuð voru áhrif fóðrunar á efnainnihald mjólkur. í því til- raunaskipulagi sem notað var voru prófaðar 7 mismunandi fóðursam- setningar og komu 21 kýr til upp- gjörs. Valdar voru fóðursam- setningar sem þóttu líklegar til að valda útslagi í efnasamsetningu mjólkur. Þar var lagður til grund- vallar próteinstyrkur, gerð og niðurbrot próteina, gerð kolvetna í fóðrinu og orkustyrkleiki. Hlutfalli þurrefnis í kjamfóðri á móti þurr- efni í gróffóðri var haldið fostu allan tilraunatímann, 44:56 fyrir fullorðnar kýr og 42:58 fyrir kvígur að fyrsta kálfi. Fjórar gerðir gróffóðurs voru notaðar í tilrauninni. Um var að ræða vallarfoxgras sent var slegið á tveimur mismunandi tímum og rúllað og pakkað við tvö mismunandi þurrkstig. Blandaðar vom fjórar mismunandi kjam- fóðurblöndur. I þær var notað fiskimjöl, bygg og maís ásamt nauðsynlegum steinefnum og melassa til bragðbætingar og til að auðvelda kögglun. I gmnn- skipulaginu em borin saman tvö stig orkufóðmnar og tvö stig próteinfóðmnar. Orkustigin vom annars vegar full fóðmn fyrir viðhaldi og mjólk og hins vegar 10% undir þörfum. Próteinstigin vom annars vegar full fóðmn á AAT fyrir viðhaldi og mjólk og hins vegar 15% undir þörfúm. Bæði prótein- og orkustyrkur í fóðri höfðu marktæk áhrif á nythæð. Munur í próteinstyrk i fóðri, um 15%, hafði afgerandi áhrif á próteinhlutfall í ntjólk og var útslagið 0,13 prósentustig. Munur í orkustyrk sem var til kominn vegna sláttutímaáhrifa á meltanleika og orkugildi heyja nægði ekki til að hafa marktæk áhrif á próteinhlutfall í mjólk. Samanburður á maís og byggi sýnir tölfræðilega marktækan mun á prótein-fitu hlutfalli maísnum í vil (0,82 á móti 0,79). Þetta stafar af því að maísfóðrunin leiðir til hærra próteinhlutfalls og lægra fituhlutfalls í rnjólk. Niðurstöður þessarar tilraunar sýna að prótein- styrkur í fóðri fyrir mjólkurkýr getur haft umtalsverð áhrif á próteinhlutfall í mjólk og þar af leiðandi verðmæti hennar bæði fyrir bóndann og afurðastöðina. í vetur er rannsóknum haldið áfram. Helsti munurinn á upp- setningu í ár frá því í fyrra er að nú eru mun fleiri þættir rannsakaðir. Auk áframhaldandi rannsókna á áhrifum prótein- og orkustyrk fóðurs á efnainnihald í mjólk eru könnuð áhrif mismunandi kjam- fóðurhlutfalls því nú er orku- munurinn einnig fenginn með mis- mikilli kjamfóðurgjöf. Þá er nú verið að rannsaka gerðir mjólkur- próteinanna og gefa þær rann- sóknir mjög áhugaverðar niður- stöður, m.a. kernur i ljós að íslenska kynið er með hátt hlutfall próteinarfgerða sem em taldar tengjast afurðasenti og hagstæðum vinnslueiginleikum mjólkur. Það má því segja að þessar rannsóknir séu gott og nauðsynlegt innlegg í umræðuna um innflutning fóstur- vísa. Grétar Hrafn Harðarson tilraunastjóri Stóra Ármóti. Samþykkt búnaðar- þings um byggðamúl Á búnaðarþingi var samþykkt ályktun um byggðamál. Ályktunin var svohljóðandi: Ytri skilyrði hafa á undan- fomum ámm verið landsbyggðinni óhagstæð. 1 stjómarsáttmála nú- verandi ríkisstjómarflokka kemur fram eindreginn vilji til úrbóta. Þá virðast allir stjómmálaflokkar hafa úrbætur í byggðamálum á stefnu- skrá sinni. Þrátt fyrir þetta dregst atvinna saman á landsbyggðinni, fólki fækkar og byggðin gisnar. Búnaðarþing 2002 vill þessu til áréttingar benda á eftirtalin atriði sem koma þarf í framkvæmd til jöfnunar lífskjara í landinu. Lagasetning og byggóaþróun: * Við lagasetningu á Alþingi og aðra meiri háttar ákvarðanatöku stjómvalda fari ætíð frarn sérstakt mat á áhrifum ákvörðunarinnar á byggðaþróun. Nýsköpun og þróunarverkefni: * Byggðastofnun fái stóraukið árlegt ráðstöfunarfé sem tryggt verði til næstu ára. Vemlega auknu fjármagni verði varið til nýsköpunar og þróunarverkefna og stofnunin þannig efld til aukinnar þátttöku í aðgerðum til eflingar lands- byggðinni. * Samvinna stofnana sem vinna að atvinnuráðgjöf á lands- byggðinni verði aukin og efld tengsl þeirra sem að ráðgjöfinni starfa. Aukin völd sveitarstjórna: * Áfram verði unnið að stækkun sveitarfélaga, þeim tryggðir tekjustofnar og sveitar- stjómarstigið þannig eflt og því fengin aukin völd og ábyrgð. Fiskveiðar og byggóaþróun: * Fiskveiðiheimildir færist í auknum mæli til sveitarfélaga sem fái þar með tímabundinn ráð- stöfunarrétt á þessum heimildum innan sinnar byggðar. Jafnframt er ítrekuð ályktun Búnaðarþings frá 1999 um að útræðisréttur strand- jarða verði virtur á ný og staðfestur í fiskveiðilögum. Samgöngur: * Hraðað verði uppbyggingu og endurbótum á vegakerfinu. Tryggja verður góðar samgöngur innan hvers atvinnusvæðis, svo og heilsárstengingu við aðalvegakerfi landsins. * Lækka verður flutnings- kostnað milli Reykjavíkursvæðis og landsbyggðar þannig að verð vöm og þjónustu og möguleikar framleiðslufyrirtækja verði sam- bærilegir um land allt. Ríkissjóður noti ekki þennan kostnað sem tekjustofn, svo sem í formi virðisaukaskatts. * Leitað verði leiða til lækkunar flugfargjalda og eflingar flugsam- gangna innanlands. * Hugað verði sérstaklega að skipulagi og möguleikum skipa- flutninga varðandi þungaflutninga milli fjarlægra landshluta. Skattamál: * Leitað verði leiða til að beita skattkerfinu þannig að það hvetji einstaklinga og fyrirtæki til aðseturs í dreifbýlinu. Menntun: * Möguleikar á hvers konar ljamámi verði efldir og þá hugað að öllum aldurshópum. Jafna þarf enn frekar námskostnað við fram- haldsskóla með hækkun dreifbýlis- styrkja. Starfsnám verði ekki undanskilið dreifbýlisstyrkjum. * Lánasjóði íslenskra náms- manna verði gert kleift að lækka endurgreiðsluhlutfall lána hjá því fólki sem hefur störf að námi loknu utan Stór - Reykjavíkur- svæðisins. Orkuntái: * Upphitunarkostnaður hús- næðis verði jafnaður enn frekar eins og stefnt hefur verið að. í því sambandi verði sérstaklega hugað að raforkuverði. * Hraðað verði þrífosun á raf- línum á landsbyggðinni, ekki síst með þarfir tæknibúnaðar atvinnu- rekstrar í huga. Fjarskipti: * Unnið verði markvisst eftir þegar gerðri áætlun um úrbætur á gagnaflutningskerfi Landssímans, þannig að möguleikar og kostnað- ur varðandi gagnaflutninga verði með sambærilegum hætti um allt land. Samféiagsþjónusta: * Tryggja þarf sem jafnast að- gengi allra landsmanna að samfé- lagsþjónustu.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.