Bændablaðið - 16.04.2002, Side 15
Þriðjudagun 16. april 2002
BÆNDABLAÐIÐi
15
FóSurgangiir í miðju
Hjónin Kjartan Jónsson og
Kristín Kristjánsdóttir búa á
bænum Dunki í Hörðudal. Þau
hafa búið á Dunki í rétt rösk 20
ár. Kristín er Reykvíkingur en
Kjartan er frá Hraðastöðum í
Mosfellssveit. í fjárhúsunum í
Dunki eru rúmlega 600 fjár.
Athygli vekur að þau hjón
hafa gert ýmislegt til að létta sér
störfin í fjárhúsinu, sem er
gamalt, en fyrir tveimur árum
settu þau upp búnað sem
auðveldar þeim gjafir til muna.
í stað hefðbundinna garða er nú
“fóðurgangur“ í miðju húsi. Sitt
hvoru megin við hann eru
heimasmíðaðar jötugrindur,
sem hanga á lömum í
þaksperrunum en ganga saman
að neðan eftir því sem
kindurnar éta af heyinu. Ofan á
heyið eru lagðar slæðigrindur
þegar búið er að gefa. I loftinu
er hlaupaköttur og með honum
eru rúllur fluttar inn á
fóðurganginn. Þær eru skornar í
sundur í miðju - og nú er
fullorðnu fé gefið á þriggja daga
fresti. Líkamlegt erfiði minnkaði
til muna og einn maður á
auðvelt með að sinna gjöf.
Sautján tófur og
tveir minkar í vetur
Hér má sjá Pál Benediktsson bónda
og refaskyttu á Hákonarstööum á
Jökuldal, en Páll er iöinn við aö veiða
tófur. I vetur er hann búinn að vinna
17 tófur og 2 minka. Annar minkurinn
kom á æti upp við skothús sem Páll
útbjó, en veiðimenn segja að ekki sé
algengt að minkur láti blekkjast af æti
sem lagt hefur verið út. Hinn mink-
urinn náðist á mun þekktari stað,
nefnilega í hænsnahúsinu þar sem
hann hafði drepið fjórar hænur.
Minkurinn hræddi eftirlifandi hænur
svo rækilega að góður mánuður leið
þar til sú fyrsta hóf varp að nýju.
Leikhæna bjargaði málum
Meðan hænurnar voru að jafna sig
þurftu heimamenn að reiða sig á
“leikhænu" sem ekki var heima þegar
minkurinn gerði usla i húsinu.
Og hvað er leikhæna? Að
sjálfsögðu er það hæna sem leikur í
leikritum. Umrædd hæna hafði tekiö
þátt i leikritinu Gauragangi sem
leikfélag Menntaskólans á Egils-
stööum setti upp í Valaskjálf.
Bændablaðsmynd/Sólrún.
BÆNDUR!
Ódýr vöktunarkerfi í gripahús.
Hitalampar og mottur fyrir
fyrirburöi.
Kjötsagir, hakkavélar, vakúmvélar,
og kjöthnífar.
Gripamerki
NORDPOST /SKJALDA PÓSTVERSLUN
Arnarberg ehf sími 555 - 4631 & 568 -1515
Dugguvogi 6-104 Reykjavík
Nýtt púströr til hliðar upp
með húsi.
Aukið vökvaflæði og
þrýstingur - meira afl.
Nýjar Perkins vélar -
53-116 hestöfl.
Aukið tog -
stoppar aldrei.
Einstakur vendigír með
stiglausum átaksstilli.
4WD - raunverulegt
fjórhjóladrif - ekki
þríhjóladrif!
Gírkassi - Fleiri gírar
miðað við vinnuhraða -
meiri afköst.
Innifalið í staðalbúnaði er
m. a. nýtt að/frá stýri, ný
miðstöð, rafstart á PTO,
250% stærri verkfæra-
kassi og fleira og fleira.
ENGIN VENJULEG HÖNNUN - ENGIN VENJULEG FRAMLEIÐSLA
ENGINN VENJULEGUR TRAKTOR
_
—