Bændablaðið - 16.04.2002, Page 19

Bændablaðið - 16.04.2002, Page 19
Þriðjudagur 16. apríl 2002 BÆNDABLAÐIÐ 19 Breytingar á lögum um vatnsveitur: Opnað fypir breytt rekstrarform í frumvarpi til laga um breytingu á lögum um vatns- veitur sveitarfélaga, sem samið var i félagsmálaráðuneytinu og er nú til meðferðar á Alþingi, er gert ráð fyrir þeim möguleika annars vegar að sveitarfélagi verði veitt fullt vald til að ákveða rekstrarform vatnsveitu sem það rekur. Hins vegar er lagt til að eiganda vatnsveitu verði heimilað að áskilja sér arð- greiðslur sem numið geti allt að 7% af eigin fé vatnsveitunnar. í nefndaráliti minnihluta fé- lagsmálanefndar sem Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, skrifar undir segir m.a. „Minnihlutinn er algerlega andvígur því að taka nokkur skref í átt til mögulegrar einkavæðingar eða slíkrar þjónustu- starfsemi. Reynslan af slíkri einkavæðingu á veitustarfsemi er slæm erlendis." Opna fyrir einkavœóingu Steingrímur Jóhann sagði í samtali við Bændablaðið að það sé alveg ljóst að þama sé verið að opna þann möguleika að einka- væða vatnsveitumar. I þeim lögum sem þama er verið að breyta segi að sveitarstjómimar eigi að fara með málefni vatnsveitnanna. Líka sem stjómir. „Það sem er verið að opna fyrir er að hægt sé að hafa þama venju- lega stjóm eins og í hlutafélagi. Við höfúm mjög illan bifur á því ef sameinuð fyrirtæki, þar sem vatnsveitur eru með, eins og orðið er hjá mörgum sveitarfélögum, þar sem búið er að sameina rafmagns- veitu, kaldavatnsveitu og hitaveitu í orkufyrirtæki, ætla að fara að gera slík fyrirtæki að hlutafélagi. Síðan á kannski selja fyrirtækið eins og Vestmannaeyingar hafa gert. Að vísu á ekki að breyta því ákvæði í 4. gr. laganna að sveitar- félög skuli eiga vatnsveitur. Meirihlutinn i félagsmálanefnd vísar til þess. En við, reynslunni ríkari, treystum engu í þessum efnum. Þess vegna hyggst ég flytja breytingartillögu, sem neglir þetta ákvæði enn betur. Sömuleiðis að ef veitur em sameinaðar í eitt hlutafélag þá skuli undanskilja vatnsveituna," sagði Steingrímur J. Sigfússon. POULSEN EHF pjónusta vifi bændur Poulsen er gamalgróið fjöl- skyldufyrirtæki, stofnað 1910. Á sl. ári keyptu fyrrverandi eigendur Bilanausts, Reynir Matthíasson, Ragnar Matthíasson og Qölskyldur þeirra Poulsen og fluttu starfsemina í eigin húsnæði í Skeifunni 2 í Reykjavík. Fyrir- tækið hefur m.a. þjónustað iðnaðarfyrirtæki og sjávarút- veginn i áraraðir, en það hefúr m.a. selt rafmótora, NSK kúlu- legur, Fennerreimar af öllum stærðum, keðjur, keðjuhjól, verk- færi og Lincoln smurkerfi svo eitthvað sé nefnt. Eftir að nú- verandi eigendur tóku við rekstrinum er Poulsen farið að selja heita potta (nuddpotta) og alla fylgihluti fyrir sumarhúsa- eigendur, bændur og aðra áhugasama. Þá er fyrirtækið með innréttingar og fylgihluti fyrir baðherbergi. Nú hefúr verið ákveðið að auka við þjónustuna og veita bændum landsins sérstaka þjónustu. Seldar verða Lister fjárklippur ásamt kömbum og hnífum, Fisher drykkjarker af ýmsum stærðum og varahlutir, plast- og álsauðfjármerki, merki- sprey og krítar, kálfafotur og túttur, heyvinnuvéladekk og tindar og hnífar í heyvinnuvélar. Búið er að gera góðan samning við Sparex í Englandi varðandi varahlutaþjónustu ásamt ýmsum aukahlutum og unnið er að því að ganga frá fleiri viðskipta- samböndum. Agnar Hjartar hefúr verið ráðinn til Poulsen til að fylgja þessari þjónustu eftir. Síminn hjá Poulsen efh er 530 5900 og faxið er 530-5910. Heimasíða fyrirtækisins er www.poulsen.is Fréttatilkynning KJarnagluggar Dalvegur 28 • 200 Kópavogi • Simi 564 4714 • Fax 564 4713 BÆNDUR, BÆNDUR Þurfið þið að byggja eða breyta? Höfum nýlokið breytingum á einu stærsta og glæsilegasta fjósi landsins, á Bakka í Öxnadal. Þarft þú að byggja eða breyta, hafðu þá samband í síma 461-5226 eða 861-6626. SKG Verktakar ehf. Skessugili 17 -102 603 Akureyri. Loftknúinn áburðardreifari Howard jarðtætarar og pinnatætarar Elho áburðardreifarar, einnar og tveggja skífu 1000 lítra tankur, 12 mtr. vinnslubreidd. Froðumerkibúnaður. Rétti dreifarinn fyrir fjölkornaáburð. DeLaval mykjudælur 700-900-1200 lítra áburðartrektir. Ryðfrír dreifibúnaður, lág hleðsluhæð. Kögglasigti og kapalstýring. Vinnslubreiddir: 80, 90 og 100 tommur. Abbey haugsugur og dælutankar Josve hnífaherfi 5000-9000 lítra, Flotdekk. Vinnslubreidd 3 mtr. Skádælur og brunndælur P * Akureyti SMt A ír.k ' ^ f 1

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.