Bændablaðið - 16.04.2002, Page 20
20
BÆNDABLAÐIÐ
Þríðjudagur 16. apríl 2002
Jón Kornelíus Magnússon,
kjötmeistari hjá Nóatúni:
Sala ii lambap
eykst þegar boðið er
Sú staðreynd blasir við að sala á
lambakjöti hefur dregist umtals-
vert saman hin síðari ár. Þannig
varð 5,7% samdráttur í sölu
kindakjöts milli áranna 2000 og
2001. Sala á svínakjöti hefur
hins vegar aukist Jafnt og þétt
síðastliðin 20 ár. Arið 1982 var
neysla á mann hér á landi af
svínakjöti 4,35 kg á ári. I fyrra
var hún komin í 18,26 kg á mann
á ári. Neysla á kjúklingakjöti
var 1982 4,3 kg en í fyrra var
hún komin upp í 13,0 kg á mann.
Neysla á kindakjöti var 46,7 kg á
mann árið 1982 en var komin
niður í 23,8 kg árið 2001.
Margar kenningar eru uppi um
ástæður þessara miklu breytinga.
Jón Komelíus Magnússon, kjöt-
meistari hjá Nóatúni, segir að
ástæðumar séu eflaust nokkrar.
Hann segir Islendinga ferðast
mikið um heiminn og þá sjái fólk
breyttar matarvenjur, þar sem
neysla hvíta kjötsins er mun meiri
en rauða kjötsins. Önnur skýring
á aukinni sölu á svina- og ali-
fuglakjöti er að það hefur lækkað
umtalsvert í verði.
Nýtt kjöt
„Og svo skiptir miklu máli að
hvíta kjötið er alltaf nýslátrað
þegar það kemur á markaðinn, en
sauðfé er slátrað á haustin og
kjötið geymt frosið allt árið. Þetta
er þó aðeins að breytast. Okkur í
Nóatúni hefur tekist að fá bændur
til að dreifa slátmninni frá réttum
og fram undir jól. Og nokkrir em
komnir með nýslátrað lambakjöt
eftir áramótin. Þá höfum við hér
unnið rnikið úr lambakjöti og það
hefúr likað vel og selst grimmt yfir
grilltímann. Við höfum tekið alla
vöðva úr lærinu, snyrt þá til og
hanterað með ýmsu móti. Sömu-
leiðis höfum við tekið bestu bitana
úr ffampartinum og hanterað þá til
fýrir grill. Þetta hefur gengið vel
en sala á heilum hryggjum og
læmm hefur dregist saman. Senni-
legasta ástæðan fyrir því er of hátt
verð, þótt það sé ekki of hátt
miðað við hvað ffamleiðendur
þurfa að fá fyrir það,“ segir Jón
Komelíus.
Hann segist taka eftir því að
sala á lambakjöti aukist þegar
boðið er upp á kjöt af nýslátruðu.
„Það er alveg ljóst að nýslátrað
lambakjöt er að vinna á í sölu og
þess vegna væri það rétt stefna hjá
bændum að reyna að dreifa
slátmninni yfir allt árið. Nýtt kjöt
er mun betra en frosið kjöt og
miklu skemmtilegra að vinna með
það,“ segir Jón Komelíus kjöt-
meistari.
Lambsjarmur er nokkuö sem sauðfjárbændur eiga alla jafnan ekki von á að heyra þegar komið er í fjárhús á
páskadagsmorgni. Það var eigi að síður raunin í Miðhúsum þegar Móra, ein af eldri kindunum á bænum hafði þá
um nóttina borið tveimur mógolsóttum gimbrum. Alllangt er þangað til sauðburður hefst fyrir alvöru, eða einn til
einn og hálfur mánuður, en lömbin hafa ásamt farfuglunum ætíð verið fyrsti vorboði sveitafólks. Guðbjörg Júlia
Magnúsdóttir 8 ára á nágrannabænum Felli heldur á mógolsóttu gimbrunum. Bændablaðið/Guðfinnur
Flnnbogason.
Olíur og ryðvarnarefni
Ifáfva/Sfoe
Traktors olínr
Smurfeítí
Fro$t%ur
CAumí
Tectnl
Undirsagflsefni
Holrúmsefni
Bætkfní
Fátð sendan bækllng
ORKA SNORRI 6 GUÐMUNDSSON
Sími 535-SðOO fax !
www.orka.is
Þ
GIS
Alhliða verkfæri
PROÐUCT
Fáið sendan bækling
Loftverkfæri
W'