Bændablaðið - 03.09.2002, Page 8
8
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 3. september 2002
Guðni Agústsson
landbúnaðarráðherra:
Endupskoða þarf
Nokkur stórmál sem snerta bændur
koma til kasta Alþingis á komandi vetri, svo
sem ný landgræðslulög, jarða- og ábúðarlög
og jafnvel nýr mjólkursamningur. En það
hafa líka tvö stórmál verið í gangi í sumar.
Annars vegar skýrslan um salmonellu og
campylobakter sem vart hefur orðið víða á
Suðurlandi, og minnkandi sala á lambakjöti.
Guðni Agústsson landbúnaðarráðherra var
fenginn til að ræða þessi mál og fleiri við
tíðindamann Bændablaðsins.
Ráðherra var fyrst spurður um
minnkandi lambakjötssölu í ár og hvaða ráð
hann sæi fyrir sauðfjárbændur í þeim
efnum.
Sauðfjárbœndur í vanda
„Það er augljóst að sauðfjárbændur
standa frammi fyrir vanda vegna minnkandi
sölu á lambakjöti. Þó er minnkunin milli ára
minni en áætlað var, eða um 3%. í mínum
huga er það alveg ljóst að sauðfjárbændur
og afurðastöðvar verða að taka mjög vel á í
þessu máli ef ekki á að fara illa. Auðvitað
var það mikið áfall fyrir bændur þegar Goði
féll. Menn eru ekki enn búnir að rétta úr
kútnum eftir það áfall og minnkandi
lambakjötsneyslu sem fylgdi í kjölfarið.
Ég hef velt því fyrir mér hvort
útflutningsskyldan eigi sinn þátt í því að
afurðastöðvar séu værukærar við sölu á
lambakjöti hvað sumarslátrunina varðar. Ég
velti því fyrir mér hvort lambakjötið sé að
verða einhver afgangsstærð og útflutnings-
skyldan sé notuð sem útfall af markaði. Þess
vegna minni ég sláturleyfishafana á að
útflutningsskyldan er sú sama og í ágúst í
fyrra, en vissulega geta afurðastöðvamar
flutt út allt það kjöt sem þær viija. Það er
útúrsnúningur að ekki sé hægt að fara með
kjötið út, en þá er verðið mun lægra en á
innanlandsmarkaði. Hlutur bænda er því
þeim mun stærri sem útflutningsskyldan er
minni.
Endurskoða verður sölumálin
Við þessar aðstæður finnst mér liggja
ljóst fyrir að endurskoða verði sölumálin frá
grunni ef ekki á að missa lambakjöts-
neysiuna niður úr öllu valdi. Menn verða að
setjast niður, fara yfir málið og setja sér ný
markmið. I skýrslu sem Landssamband
sauðfjárbænda lét gera í vor kemur fram að
mikill áhugi er fyrir neyslu á lambakjöti í
landinu og raunar mun meiri en menn höfðu
haldið fram, því yfir 60% landsmanna vill
eiga lambakjöt í frystikistum sínum. í ljósi
þessa finnst mér að menn eigi að taka sig
saman í andlitinu og knýja á sölumálin með
nýjum hætti. Það verður að segjast eins og
er að margt í sölumennskunni nú er úr takti
við það sem á að sjást í verslunum."
-Getur það verið að meira seljist af
hvíta kjötinu en lamhakjöti vegna þess að
smá, verða að ganga til liðs við
einstaklingana og sveitarfélögin og
ríkisvaldið verða að gera sameiginlegt átak í
þessum málum sem eru mjög íjölþætt. Við
verðum að gera okkur grein fyrir því að
þessi plága, salmonellan, lifir hér og er
komin til að vera. Mannfólkið hefur borið
hana með sér inn í landið og það virðist afar
erfitt að útrýma henni. Það er svo margt sem
þarf að vera í lagi, en er það ekki. Þar má
nefna rotþrær, skolpfrárennsli og vatnsból.
Gleymum heldur ekki fuglinum sem liggur í
frárennslisskolpinu og flýgur svo inn á lönd
bænda og mengar vatnsból dýranna. Þannig
verður til hringrás. Vissulega er verið að
vinna í frárennslismálum um allt land og
frágangi á þeim á að vera lokið árið 2005.
En skýrslan segir okkur að ríki og sveitar-
kjúklingum og svínum er
slátrað reglulega allt árið
um kring, en lambakjöt
fœst ekki ferskt nemafáa
mánuði á árinu og er auk
þess dýrara ?
„Það er enginn vafi á
því að þetta atriði á hér
hlut að máli og því hafa
kjúklinga- og svínabændur
fylgt eftir með mjög
öflugri markaðssetningu.
Það þarf að leggja mun
meiri áherslu á sölu á
fersku lambakjöti og þess
vegna er sumarslátrunin
skref í rétta átt. Og
varðandi hollustuna þá er
fátt hollara en gott
lambakjöt, og ef einhverjir
mega ekki eða vilja ekki
borða fítuna þá er bara að
skera hana burtu. Eitt
langar mig að nefna
varðandi sölu á
lambakjöti. Það hefur
orðið mikil breyting á
verslun í landinu og það
snýr ekki síst að stóru
verslanakeðjunum. Þær
krefja kjötframleiðendur
um eins mikinn afslátt og
þær mögulega geta. Þar er
mikill munur á milli
kjöttegunda og þess vegna
er lambakjöt ef til vill að
víkja úr hillum þessara
verslana. Ég heyri fólk
kvarta yfir því á
höfuðborgarsvæðinu að
það fái ekki lambakjöt að
vild. Því sé fyrst og fremst
haldið frosnu í pokum upp
á gamla móðinn. Þess
vegna segi ég að bændur
og afurðastöðvarnar verði
að endurskoða sölumálin í samráði við
verslanirnar. Ef menn taka sig ekki á í
sölumennskunni þá fer illa og hallar undan
fæti áfram. Átak í sölunni getur ef til vill
snúið þróuninni við."
Stóra félagslega vandamálið
-Hún var œði dökk skýrslan um
útbreiðslu salmonellu og campylobakter á
Suðurlandi sem birt var á dögunum. Búast
má við að ástandið sé víðar slœmt á
landinu. Hvað er til ráða að þínum dómi,
því Ijóst má vera að það kostar óhemju
mikið fé að kippa þessum málum ífullkomið
lag?
„Þetta mál er hið stóra félagslega
verkefni í landinu um þessar mundir.
Sveitarfélög, hvort heldur þau eru stór eða
félög verða að fara yfir málin og sjá hvort
hægt sé að hraða þeim.
Varðandi rotþrærnar þá eru það ekki
bara sveitabæimir sem nota þær. Menn
mega ekki gleyma mikilli ijölgun sumar-
bústaða um allt land. Og til þess að rotþróa-
málin séu í lagi verður að halda þeim vel
við, þær þurfa að vera af réttri stærð og það
þarf að tæma þær reglulega. Sveitarfélögin
verða greinilega að taka framkvæmdina að
sér. Ég veit að það er fullur vilji hjá sveitar-
stjómarmönnum að koma þessum málum í
viðunandi horf, en þetta er gríðarlega dýrt
verkefni þó ríkið greiði 20% af kostnaðinum
við að koma frárennslismálunum í lag."
Mjólkurkvótinn of dýr
Frumvarp að nýjum landgrœðslulögum
var lagtfram á Alþingi ífyrra og fékk
umfjöllun þingsins en var ekki afgreitt.
Verður það lagt aftur fram á Alþingi í
vetur?
„Ég mun leggja það aftur fram í vetur
og jafnframt skoða hvort gerðar verða
einhverjar breytingar á frumvarpinu, en það
mætti nokkurri andstöðu á síðasta þingi. Ég
legg mikla áherslu á að frumvarpið verði
afgreitt í vetur. Landgræðslulögin eru orðin
gömul og það er nauðsynlegt að lagfæra þau
og skerpa."
-Áttu von á því að mjólkursamningurinn
verði endurskoðaður?
„Forystumenn kúabænda hafa skrifað
mér bréf og óskað eftir viðræðum um
endurskoðun gildandi mjólkursamnings
enda þótt þrjú ár séu eftir af samnings-
tímanum. Það hefur orðið mikil þróun í
kúabúskapnum frá því að samningurinn var
gerður. Þegar kemur fram á seinni hluta
samningstímans hægir á því ferli nema
menn viti hvað framundan er. Þess vegna
skil ég bænduma vel að vilja ræða fram-
tíðina. Hins vegar eru í gangi viðræður um
WTO samninginn sem áætlað er að ljúki
árið 2005 og hvort sem okkur líkar það vel
eða illa þá verða okkar samningar að
standast þá. "
-Hvað sérð þú fyrir þér í þessum
málum?
„Það er auðvitað mest um vert fyrir
hverja grein að sjá langt fram í tímann. Við
verðum að velta því fyrir okkur hvort það
sem við erum að gera standist alþjóða-
samninga. Hvort stuðningur ríkisins standist
WTO samninginn o.fl. Mesti ágallinn í
mjólkurframleiðslunni, að mínum dómi, er
hvað kvótinn hefur verið seldur dýrt.
Hagsmunir afurðastöðva og sveitarfélaga
vega þar að vísu þungt, þannig að verðið er
búið til af öðrum aðilum en bændum. Ég
vildi sjá breytingar sem lækkuðu kvóta-
verðið. Ég hef áhyggjur af framtíðinni hjá
skuldugri ungri bændastétt og það er enginn
vafí að viðskipti með kvóta hafa orðið til
þess að margir ungir bændur eru skuldsettir.
Einnig hefur verið mikil uppbygging í
greininni. Bændur hafa verið að endumýja
fjós eða byggja ný og taka upp nýja mjalta-
tækni. Síðustu ár eru einhver mesti
framfaratími í mjólkurframleiðslu sem
dæmi eru um. Þess vegna er það eðlilegt að
menn vilji sjá nýjan mjólkursamning. Ég tek
undir það og hef þegar nefnt það í
ríkisstjórn hvort það komi ekki til greina.
Yfir þetta mál verður sest á næstunni."
Niðursveiflan í laxinum
-Fjölmargir bœndur hafa umtalsverðar
tekjur aflaxveiði. Undanfarin árhefur
laxagengd minnkað mjögfrá því sem áður
var og í ár gekk laxinn víðast hvar svo seint
að þess eru ekki dœmi áður. Nánast engar
rannsóknir hafa farið fram á því hvað er að
gerast íþessum málum. Hefur þú hug á að
bœta þar úr?
„Niðursveiflan sem verið hefur í
laxveiðiánum undanfarin ár er vissulega
áhyggjuefni því það eru miklar tekjur sem
þjóðarbúið hefur af laxveiðinni. Hins vegar
má ekki gleyma því að það hafa áður orðið
sveiflur í laxagengd og mér sýnist sumarið í
heild ætla að koma ágætlega út. Ég get tekið
undir það að menn vita of lítið um hvað
þama er að gerast, sérstaklega hvað varðar
vist laxins í hafinu. Sumir segja að
einhverjar breytingar hafi átt sér stað í
hafinu. Aðrir nefna minkinn og mávinn sem
liggja í seiðunum, og fleiri kenningar eru á
lofti. Ég hef fullan hug á að leita allra leiða
til að setja rannsóknir í gang þar sem leitað
yrði orsaka þessarar niðursveiflu. Hér er að
mínum dómi um stórt og brýnt verkefni að
ræða."
Svona í lokin, áttu von á því að ný
jarða- og ábúðarlög verði sett í vetur?
„Fmmvörp um ný jarða- og ábúðarlög
hafa lengi verið í vinnslu hér í ráðuneytinu.
Ég geri mér vonir um að geta iagt þau
frumvörp fram á Alþingi strax í haust,"
sagði Guðni Ágústsson.