Bændablaðið - 03.09.2002, Qupperneq 13

Bændablaðið - 03.09.2002, Qupperneq 13
Þriðjudagur 3. september 2002 BÆNDABLAÐIÐ 13 Nýr áfangi í tiáskúla- deild LBH I vetur verður nýr áfangi kenndur í háskóladeild LBH. Áfanginn heitir Byggð og bú- skapur og er honum ætlað að kynna í mjög víðu samhengi þá atvinnuhætti sem tengjast námsframboði Landbúnaðarhá- skólans á Hvanneyri. Nemendur allra brauta fá tækifæri til að kynnast ofurlítið viðfangsefnum hinna námsbrautanna, svo og nemendum sem þar ætla að stunda nám. Kennsla í þessum áfanga er með nokkuð óhefðbundnu sniði. Margir kennarar koma að kennslunni og mikil áhersla er lögð á skoðunarferðir, bæði á Hvanneyri og um Borgarfjarðar- hérað. Fyrirlestrar og aðalaðsetur verður í Ársal á efstu hæð Nýja skóla. Kennt er í lotu fyrstu 3 vikur haustannar. Áfanginn er próflaus en námsárangur metinn í ljósi verkefna og dagbókar hvers nemanda. Ábyrgðarmenn áfangans eru Sveinn Hallgrímsson og Ámi B. Bragason, en aðrir kennarar eru: Auður Sveinsdóttir, Ásdís Helga Bjarnadóttir, Bjami Guð- mundsson, Friðrik Aspelund, Helena Guttormsdóttir, Ragn- hildur Sigurðardóttir, Susanne Greef, Sverrir Heiðar Júlíusson, Stefán Gíslason og Þorsteinn Guðmundsson. FjórhjóJ Fjórhjól Polaris Sportsman 500 HÖ 4x4 árg.2001 og 1998 Polaris Sportsman 335 4x4 árg.1999 Góð hjól á góðu verði með vsk. Sími: 690 3726 FÆ\ dmma Amerísk gæða framleidsla 30-450 lítrar Umboðs- menn um land allt RAFVORUR ARMULI 5 • RVK • SIMI 568 6411 Olga í lofti yfir Hamarsheiði Svona var himinninn yfir Hamarsheiði, skammt norðan Mývatns, hinn 21. ágúst. Guðmundur Hafsteinsson, veðurfræðingur, sagði Bændablaðinu að þessi ský væru oftast nefnd skúraský en svipuð orð, eins og skúraflóki, skúraklakkur eða þrumuklakkur sæjust einnig. Aiþjóðlegt heiti (á latínu) er cumulonimbus, skammstafað CB. Skýin eru merki um mikla ólgu í andrúmsloftinu, þar sem hlýtt loft við yfirborð jarðar streymir af miklum krafti upp í köld háloftin. Efsti hluti skýsins, svonefndur steðji, virðist trefjóttur og er gerður úr fskristöllum. Hann hefur líklega náð upp í rúmlega 9 km hæð, en þar var frostið nálægt 50 stigum þennan dag. Ofarlega í skýinu má greina svonefnda keppi en þeir eru merki um sterka lóðrétta strauma í skýinu og oft vísbending um þrumuveður. í veðurathugun frá Grimsstöðum var reyndar getið um þrumuveður kl. 18 þennan dag. A' DeLaval Harmony Plus Nýr mjaltakross, hannaður fyrir kýmar þtnar! A júgrum flestra kúa er meira bil milli framspena en aftari og þeir ofar á júgrinu. Við hönnun Harmony Plus mjaltakrossins var lögun hans miðuð við þessa júgurbyggingu. Harmony Plus er léttur tengikross gerður úr nútímalegum efnum sem ásamt þessari einstöku lögun léttir miklu álagi af spenum við mjaltir. Spenagúmmíið fylgir spenanum eins og tunga kálfsins. Vegna lögunar Harmony spenagúmmía er loftleki með spenunum mjög lítill, en við hönnun þeirra var leitast við að líkja eftir sogi kálfsins og sambandi hans við kúna. Línuritið hér til hliðar sýnir skiptingu spena milli mismunandi kúastofna. Á því sést greinilega að fjarlægð milli fremri og aftari spena er mjög breytileg. Harmony Plus hefur þá eiginleika sem þarf til að mæta þessum mun. VÉIAVERf Reykjavfk: Lagmúli 7 Sími 588 2600 Akureyri: Dalsbraut 1e Sími 461 4007 www.velaver.is r

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.