Skátafélagið Einherjar 20 ára - 29.02.1948, Side 18
Stöðugur vöxtur var í félaginu um þetta leyti, og hinn
21. apríl var stofnaður nýr flokkur, og var Áskell Kjerulf
skipaður flokksforingi hans, en flokkurinn hlaut nafnið
„Þrestir.“
Um veturinn var mikið rætt um skálabygginguna í Tungu-
dal og var gengið frá teikningum og áætlun um kostnað við
hygginguna. Á hvitasunnudag hófst svo vinnan við bygging-
una, og sóttist verkið vel, enda var unnið af fullum krafti
við húsbygginguna allt sumarið. Margir urðu til þess að rétta
félaginu hjálparhönd við hygginguna, m.a. gaf Elías Halldórs-
son félaginu áhaldaskúr, Jóhann Bárðarson gerði teikningar
af húsinu, án endurgjalds og lánaði einnig helming af and-
virði efnisins í nokkur ár. Tveir „Gamlir lsfirðingar,“ sem
ekki vildu láta nafns síns getið, sendu félaginu peningagjafir.
Sendi annar félaginu 500 kr., en hinn 100 kr., og voru það
miklir peningar á þeim tíma. Ennfremur gáfu tveir smið-
irnir, þeir Marzelíus Bernharðsson og Guðmundur Sigurðsson,
vinnu sína við húsið, en þeir unnu við að reisa grindina.
1 gjörðabók félagsins segir svo:
„Hinn 9 júní var liúsið höggvið til og grindin reist. Kl. 9,15
að morgni var fyrsti naglinn rekinn, en kl. 6,50 var fáni dreg-
inn að hún, ísl. fáninn á miðju húsi, en merki Hjarta og Arna
á burstunum.“ Síðan var klæðningurinn borinn upp eftir og
haldið áfram við smiðina, og var húsið komið undir þak 29.
júní, en hinn 22. sept. var öll vinna við liúsið að utan búin.
1 júlí var farið i Reykjanesför, og tóku 17 Einherjar þátt
í þeirri för.
Fjölmennasta Jamhoree, sem haldið hefur verið, var liald-
ið í Arrowe Park í Norður-Englandi þetta sumar, og tóku þátt
í því 32 islenzkir skátar. Einn Einherji, Kjartan Ólafsson,
tók þátt í þessu móti. Farið var héðan með skipi til Leith
í Skotlandi, þaðan til Birkenliead í Englandi, þar sem mótið
fór fram, en það stóð yfir í hálfan mánuð
Eftir að mótinu var slitið, fór flokkurinn til borgarinnar
16
AFMÆLISRIT EINHERJA