Skátafélagið Einherjar 20 ára - 29.02.1948, Side 47
skátasveitina, en fyrir ylfingasveitina Sigurður J. Þórólfs og
Magnús Baldvinsson.
Næsti fundur R. S. var haldinn þann 14. desember. Var þar
í'ætt um bréf frá brezka hernum, þar sem hann fer fram á að
fá afnot af Valhöll, ef á þurfi að lialda, en til þess kom aldrei.
1 desember fór Þórarinn Jónsson til Reykjavíkur, til að
taka þar þátt í foringjanámskeiði B.l.S. og veitti félagið
honum styrk til fararinnar.
1942
Reglulegt starf hófst strax í byrjun janúar, og var Sigurður
J. Þórólfs ylfingaforingi, en Hafsteinn 0. Hannesson sveitar-
foringi skáta. Stofnaðir voru tveir nýir flokkar, með eintóm-
um nýliðum. Þórarinn Jónsson var foringi annars flokksins,
Vala, en Gísli B. Kristjánsson foringi Arna, en hann byrjaði
nokkru seinna. Fyrstu 7 nýliðarnir voru vigðir í Valhöll 1.
marz. Hefst nú nýtt tímabil í sögu félagsins, nýtt tímabil með
nýjum mönnum. Störfuðu þessir tveir flokkar vel, sem eftir
var vetrar. Héldu þeir reglulega fundi, en einnig var talsvert
um ýmiskonar hjálparstarfsemi.
Aðalfundur félagsins var haldinn í Greninu 29. marz og
voru mættir á honum 12 skátar. Ágúst Leós. var kosinn
gjaldkeri, Haraldur Ölafsson ritari og Kristján Guðmundsson
Grenis- og skálavörður.
Á foringjaráðsfundi i april var samþykkt að selja hluta
félagsins af Dagheimilinu á þeim forsemdum, að „þar eð hús-
ið hefur aldrei verið fullsmíðað eins og til stóð, hefur það ekki
komið að þehn notum, sem tilætlað var.“
Félagið fékk nú leigt kj allaraherbergi í Túngötu 9 og var
unnið mikið við innréttingu og lagfæringu þess um sumarið og
gekk sú vinna mjög greiðlega, og var herbergið tilbúið til
fundahalda um haustið.
Um haustið hófst vetrarstarfsemin í byrj un október og voru
AFMÆLISRIT EINHERJA
45