Skátafélagið Einherjar 20 ára - 29.02.1948, Síða 70
uin, hvernig ætti að hagnýta það á sem beztan hátt. Nýja
fimleikahúsið var tekið í notkun í ársbyrjun 1947, og þá
byrjaði fyrir alvöru taugastríðið um það, hvort við fengjum
Imsið eða ekki. Það var að allra áliti mjög heppilegt til fé-
lagsheimilis, og liöfðu því mörg önnur félög augastað á því.
Ég ætla ekki að rekja þetta frekar, en þessu lauk svo, að
bæj arstj órnin samþykkti einróma að selja okkur húsið fyrir
40 þúsund krónur, og var það óneitanlega meiri peningur,
en við höfðum reiknað með í upphafi, en sá kostur fylgdi, að
við áttum húsið einir og kvaðalaust. Hinn 5. apríl var svo
kaupsamningurinn undirritaður. Við afhentum bæjarsjóði
skuldabréf fyrir 10 þús. kr. (sem okkur var gefið kvittað á
20 ára afmælinu), en borguðum út 30 þús. kr., þar af áttum
við í hússjóði um 13 þúsund lu\, hitt fengum við lánað.
Og þá vorum við loksins orðnir eigendur að því húsi, er við
höfðum horft vonaraugum á s.l. 3 ár, og félagið hafði verið
stofnað í 1928. Húsnefndin, þeir Magnús Baldvinsson, Gunnar
Jónsson, Hafsteinn O. Hannesson, Jón Páll Halldórsson og
Magnús Konráðsson (um haustið komu þeir Júlíus Helgason
og Árni Matthíasson í nefndina i stað tveggja síðasttöldu, er
fóru úr bænum) sagði fyrir verkum um breytingar þær og
endurbætur, er gera þurfti. Húsnefndin tók öll ráð viðvíkjandi
húsinu í sínar hendur, enda sjálfsagt að elztu skátarnir réðu
mestu, því að það var þeirra að afla hússins, og ganga i
ábyrgðir og slíkt. — En allir félagsmenn höfðu mikinn áhuga
fyrir þvi að koma húsinu sem fyrst í það horf, er hentaði
okkur bezt, og eru ótaldar vinnustundirnar þar. Engar teikn-
ingar voru gerðar, þetta kom allt eins og af sjálfu sér, og í árs-
byrjun 1948 voru undirritaðir samningar við Oddfellowa um
afnot þeirra af húsinu næstu 5 árin (þeir hafa eitt herbergi
og svo afnot alls hússins 1 kvöld í viku yfir vetrarmánuðina).
Fjárhagui-inn varð að ráða miklu um fyrirkomulag á
rekstri hússins, og það er annað að vilja eða geta. Húsið veitir
okkur nú lesstofu, sem getur rúmað 15 skáta, eldhús og tvö
68
AFMÆLISRIT EINHERJA