Tónlistin - 01.10.1941, Side 15

Tónlistin - 01.10.1941, Side 15
TÓNLISTIN 11 Árni Thorsteinson sjötugur. Frh. af bls. 7. hrint honum af stað; en orsökin lil þess liggur í því, að hann myndar sjálfur sin eig'in upptök, markar vísi að vaknandi framþróun og leiðir í ljós nauðsyn ó þjóðlegum, íslenzk- um slil. í raun réttri er Árni Thorstein- son, ásamt Jónasi llelgasvni, faðir íslenzkrar sönglagagerðar. Hann byrjar fyrstur íslenzkra manna að semja lög, er tákna munu sögulegt upphaf íslenzkra tónlistarhók- mennta. Hann gat ekki fetað í fót- spor landa sinna, því að þeir höfðu enn enga rækt lagt við þessa grein skáldskaparins, stílfræðilegar fyrir- myndir voru alls ekki til í landinu, °a enn var ekki farið að saína is- lenzkum þjóðlögum. Því var ekki lil að dreifa, að Árni gæti sökkt sér niður i rannsóknir á eðlisháttum þjóðlaganna, því að þjóðlayasafn séra Bjarna Þorsteinssonar er ekki prentað fyrr en um 1907, sama ár og fvrsta sönglagahefti Árna. Þetta ár er því mjög þýðingarmikið í is- lenzkri tónlistarsögu, það veldur straumlivörfum í þróun tónlistar- innar á Islandi; það hirtir fagnað- arhoðskap rómantísku stefnunnar með sönglagahefti Árna og leggur drög að þjóðlegri stefnuskrá með þjóðlagasafni séra Bjarna. Önnur stefnan var fulhnótuð og hafði á sér yfirbragð óþekktra töfra, en hin stefnan var aðeins hálfkveð- in visa, fonfáleg og' frumstæð og þar að auki mjög svo óskáldleg. Það var því ekki nema eðlilegt, að fvrri stefmumi yxi mikið fylgi; allir, sem skyn báru á, flykktust undir merki hennar og drukku í sig hin nýju á- hrif. Jafnvel gömlu sálmalögin voru færð úr stellingum og klædd i róm- antískan nýtízku-húning, sem vafa- laust hæfði þeim mjög illa. Önnur tónskáld, sem nú fóru að koma fram, héldu sig á söinu brautum og hafa sýnt þeim tryggð allt til þessa dags. — Aftur á móti átti hin stefn- an fáa formælendur og var lengi litin liornauga. Menn skildu ekki hin þungbúnu stef og einrænings- legu lög og lagstúfa, sem þjóðin hafði alið með sér í gegn um alla sina þjáningasögu; en blundaði þó ekki einmitt sál þjóðarinnar i þess- um þjóðlögum? Hjá hvaða þjóð sem er, er almennt talið, að svo sé, og íslendingar eru þar vissulega engin undantekning. Engin þjóð getur um- flúið sitt eigið eðli, og að því hlýt- ur að reka, að í stað afneitun þjóð- lagsins komi virðing og ást ó þvi. Þegar svo er komið, munu hinar tvær stefnur, sem enn standa á önd- verðum meiði, taka höndum saman og sýna glæsilegan árangur í ís- lenzku tónlistarlífi. Árna Thorsteinsyni er þetla fylli- lega ljóst, og hann tekur jiátt i og gleðst yfir hverri tilaun, sem mið- ar að jiví að varðveita jiað, sem ís- lenzkt er. Það vill svo til, að jirjú sönglög, útgefin 1913, úr sjónleikn- um „Lénharður fógeli“ eftir Einar Hjörleifsson, sem allt of lilið eru sungin, benda ósjálfrált í óttina til jjjóðlagsins. 1921 komu svo út 10 karlakórslög, sem flest hafa verið tekin upp á söngskrá kóranna, en

x

Tónlistin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.