Skátinn


Skátinn - 01.02.1970, Blaðsíða 17

Skátinn - 01.02.1970, Blaðsíða 17
SPURHIHCAKEPPHI Landsmótið 1. Hver skrifaði bókina Dýrheimar. 2. Hvað heitir aðalsöguhetjan? 3. Björninn Brúni kenndi fögin. Hvað heitir hann? 4. Hver var mesti óvinur drengsius? 5. Hver var Tha. 6. Hvað var fósturmamma drengsins köll- uð? 7. Svarti pardusinn var eins sterkur og villinaut. Hvað nefndist hann í sög- unni? 8. Hvert er nafn húsmarðarins í sögunni? 9. Hvað hét slangan? 10. Fjölmennu íbúar trjánna eiga líka full- trúa í bókinni. Hvað eru þeir kallaðir? Jæja, ylfingar, sPreytið þið ykkur nú á þessum spurningum og sendið svörin til Skátans, pósthólf 176, Akureyri, fyrir 1. apríl. Þrenn verðlaun verða veitt. 1. Bókin Dýrheimar. 2. Bókin Ylfingahópur Simma. 3. Bókin Simmi ylfingur. VEIZTU — — að Landsmót skáta 1970 verður að Hreðavatni? — að dagana 26. júlí til 3. ágúst verð- ur fjölmargt um að vera þar? — að allir íslenzkir skátar ættu að fara á móti? — að margir erlendir skátar koma á mótið? — að ekkert er skenmitilegra en dvöl á landsmóti? — að unnið hefur verið að undirhúningi í marga mánuði? — að mótstjóri er Mariuó Jóhannsson frá Hafnarfirði? — að regnboginn er rammi mótsins? — að á landsmótið 1966 komu rúmlega 2000 manns? — að í dag, 22. febrúar, eru aðeins 155 dagar til setningardags? — að ef þú leggur 15 kr. fyrir daglega í 155 daga er mótsgjaldið komið og . rúmlega þó? — að mótsgjaldið er kr. 2.300,00, dag- skrá, matur og blað innifalið? SKÁTINN 17

x

Skátinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátinn
https://timarit.is/publication/929

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.