Skátinn


Skátinn - 01.02.1970, Blaðsíða 12

Skátinn - 01.02.1970, Blaðsíða 12
Indíáninn (bendir út yfir landið): Sjáið að í þessu landi býr mikill og eilífur andi. Farið þið hann að finna fáu er þarfara að sinna, þeim er í borgum búa, bragnar mega því trúa. Gangið um firnindi og fjöllin, finnið álfana og tröllni, reynið á mátt og megin, markið þið skátar veginn. Foringinn: B. P. benti okkur á sporið út í sumarið, haustið, svellkaldan veturinn sólina — og vorið. 1. skáti: Skátalífið er leikur, sem laðar alla, og lokkar æskuna uPp til fjalla. Drengur (kemur inn á sviðið): Sælir skátar. Eg sá hérna reykinn. Svo heyrði ég til ykkar. Mig langar í leikinn. Ég er leiður á bæjarþrasinu, aðgerðaleysinu og öllu masinu. En hvert er takmarkið? Hvað er ykkar mark og mið? Foringinn: Vertu velkominn þá, og svar skaltu fá. Skátareglan á takmark á tindi háum, og til þess að ná því er aðferðin, sem við fáuri.1 SKÁTALÍF, æfing í glöðum æskuleik. Takmarkið er að temja skátann, laða hann til starfs og láta liann verða góðan og göfugan mann, sem ávallt reynir að halda heitið, HEITIÐ, sem ungir vinnum við. Allir skátarnir fara með heitið í kór: Ég lofa, að gera það sem í mínu valdi stendur til þess, að gera skyldu mína við guð og ætt- jörðina, að hjálpa öðrum, að halda skáta- lögin. 12 — SKÁTINN Allir viðstaddir syngja: Orðtak allra skáta, VERTU VIÐBÚINN, sé greipt í huga þinn og greipt í huga minn. Það varðar okkar leið á lífsins gönguför til lokadags, er þrýtur fjör. Tryggvi Þorsteinsson. I ferðar- byrjun Ritstjórn „Skátans“ vill taka það fram í ferðarhyrjun, að blað þetta er gefið út af leikmönnum, sem litla eða enga reynslu hafa í blaðaútgáfu. En þar sem við teljum, að skátastarf almennt á íslandi sé í öldu- dal, datt okkur í hug að gefa þetta blað út, ef það gæti orðið að einhverju liði á hinni hröttu brekku, sem framundan er. Um efni blaðsins er ekki ætlunin að fjöl- yrða, en þökkum aftur á móti þeim fjöl- mörgu, sem hafa látið okkur í té efni, ekki sízt skrifstofu Bandalags íslenzkra skáta, sem aðstoðaði okkur á margan liátt. Þá þökkum við prófarkalesara og Prentsmiðju Björns Jónssonar, Akureyri, sem vann verk sitt fljótt og vel. Eins þökkum við öllum þeim fyrirtækjum, sem auglýstu í hlaðinu, til styrktar útgáfunni. Að lokum óskum við þess af heilum hug, að skátastarf á Islandi fari nú að leita á brattann og verði komið sem næst hápunkt- inum um Landsmót í sumar og haldist þar um langa framtíð. Með skátakveðju Ritstjóm.

x

Skátinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátinn
https://timarit.is/publication/929

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.