Skátinn - 01.02.1970, Page 19

Skátinn - 01.02.1970, Page 19
Það var 15. október 1962 að nokkrir skát- ar úr Kópavogi undir stjórn Ingólfs Ar- mannssonar, stofnuðu dróttskátasveitina Andrómedu, er varð sú fyrsta hérlendis og nokkurs konar tilraunasveit. Stofnendur voru ca. 20 skátar af báðum kynjum. Eftir að Ingólfur lét af störfum sem sveitarfor- ingi tóku þau Ásrún Davíðsdóttir og Har- aldur Friðriksson við og núverandi foringj- ar eru Guðrún Jónsdóttir og Steingrímur Hauksson. Sveitin starfar í fjórum föstum nefndum, útilífsnefnd, skemmti- og fræðslunefnd, tómstundanefnd og þjónustunefnd. Skipt er í nefndirnar á 2—3 mánaða fresti á svo- kölluðu sveitarþingi, þar sem öll sveitin kemur saman. Þar er einnig kosið í sérstak- ar nefndir fyrir einstök mikilvæg tilefni. Stolt sveitarinnar og stærsta verkið hef- ur verið bygging skála nokkurs í Þverárdal upp við Esju, en byggingu hans er nú lokið og var hann vígður síðastliðið sumar og fékk við það tækifæri nafnið „Þristur“. Einn meiJkasti atburður Andrómedu og sá sem markaði tímamót í sögu hennar, er ef- laust 5 ára afmælið, því þá var sveitin á góðri leið með að lognast út af. En rétt fyr- ir afmælið kom allt í einu rokna kraftur í meðlimi sveitarinnar og afmælið haldið með glæsibrag og var öðrnm dróttskáta- sveitum boðið. Síðan hefur sveitin starfað af áhuga og dugnaði. Mjög einkennilegur hlutur kom í ljós á fyrstu árum sveitarinnar, en það var að hún eignaðist happatöluna 11. Það voru 11 sem fóru í útilegu, 11 sem fengu forsetamerkið 1967, 11 sem tóku þátt í Hjálp í viðlögum námskeiði o. s. frv. Nú er þessi tala að sjálf- sögðu fallin úr, þar sem tala sveitarmeð- lima hefur margfaldazt með 3 eða 4. Innan sveitarinnar er gefið út blað er nefnist Skráargatið. Nafnið lilaut það vegna þess að fyrsta eintakið misheppnaðist svo í fjölritun, að lesa það var eins og að kíkja í gegnum skráargat. En nú er það auðvitað miklu betra. I útilegum hafa myndazt nokknr félög, svona upp á grín, bera þau ýmis skrýtin nöfn, svo sem, Sveinafélagið, Samlokufé- lagið og Gleðikonufélagið. Meðlimir Andrómedu eru flestir sveitar- foringjar eða í félagsráði, mjög lítið er um SKÁTINN — 19

x

Skátinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátinn
https://timarit.is/publication/929

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.