Skátinn


Skátinn - 01.02.1970, Blaðsíða 13

Skátinn - 01.02.1970, Blaðsíða 13
Landsmótið og flokksforinginn ÞEGAR rætt er um hvað taka skuli með á skátamót, fyrir flokkinn í sameiningu, og hvað ekki skal hafa með, er erfitt að velja og hafna. Margir vilja hafa þetta með og aðrir hitt, og stundum er ekkert hugsað um sameiginlegan flokksútbúnað. Hér fyrir neðan verður settur upp smá listi yfir út- húnað og hjálPargögn, sem gott er að hafa meðferðis, og nú er það ykkar að ákveða hvort flokkurinn verður sér til skammar eð- ur ei. a) Mátulega mörg tjöld fyrir flokkinn, og eldhústjald. b) Prímus og potta. Ef um er að ræða sjö manna flokk, þá er hæfilegt að hafa tvo góða prímusa og þrjá potta. c) Ekki er úr vegi að hafa eftirtalin áhöld í sambandi við matargerð, ausu, sleif, stóran gaffal, fat til að færa mat upp á og eina til tvær skálar til sömu nota. Uppþvottafat, bursta, þvottalög, viska- stykki o. fl. d) Ekki er úr vegi að hafa t. d. krydd (pip- ar, salt, karry, kanel), rasp, málm- pappír, plastPoka o. fl. e) Hlífðartjald fyrir tjöldin, má vera plast, sem nær þá alveg yfir tjaldið og niður fyrir skör. f) Snærishnotu, kaðal, nagla, hamra, nagl- bít, sleggju, axir (skarexi og venju- lega), nokkur spjöld úr valborði ca. 30x40 sm. til þess að nota við korta- gerð, eða til að setja jurta- og steina- söfn upp á. Títuprjóna, teiknibólur, grannt seglgarn, og að síðustu vatnsfötu eða brúsa undir vatn. g) Teikniblokk, skrifpappír, stílabók á hvern, blýanta sömuleiðis, liti (túss), lím og límbönd. h) Bækur um skátamál, ef til eru, allar prófhækur og eins er ágætt að hafa eftir- taldar bækur, ef þær eru til, Flóra Is- lands, Steinar í litum, Fuglabækur og bækur þar sem fjallað er um sögu Borg- arfjarðarhéraðs. Landakort og áttavita, söngbækur, leikjabækur, Við varðeld- inn og fleira. Þetta ætti nú að nægja til að koma ykkur af stað, en munið að byrja sem fyrst að undirbúa för ykkar á mótsstað, ef ekki er hægt að fá þessa hluti keypta vegna Peninga- leysis hjá flokkum, verður að fá þessa hluti lánaða heima hjá flokksmönnum, en niunið að skrá lijá ykkur hjá hverjum hvert og eitt atriði er fengið að láni. Að lokum er tvennt sem flokkurinn verð að hafa meðferðis og er það: GOTT SKAP OG FÉLAGSANDA. Bezt er að koma öllu fyrir í kistu flokks- ins og koma með þetta allt í einu lagi á mótsstað. SKÁTINN — 13

x

Skátinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátinn
https://timarit.is/publication/929

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.