Skátinn


Skátinn - 01.02.1970, Blaðsíða 7

Skátinn - 01.02.1970, Blaðsíða 7
dagana 27. júlí til 3. ógúst Eins og öllum íslenzkum skátum mun nú vera kunnugt, verður næsta landsmót haldið að Hreðavatni dagana 27. júlí til 3. ágúst næstk. Að undirbúningi hefur þegar verið starf- að frá því í sumar og gengur hann vel. Rannni mótsins að þessu sinni er regnbog- inn. Allir vita, að undir enda regnbogans leynist pottur með gulli, en ékki er auðvelt að komast þangað, það höfum við sjálfsagt flest reynt. A mótinu verður að leysa margar þrautir til þess að kornast þangað, en við trúum því að það takist með dugnaði. Gaman verður að sjá, hvernig skátunum tekst að nota regn- bogahugmyndina við uppbyggingu og skreytingu tjaldbúða sinna. Allt verður gert til þess að liafa dagskrá fjölbreytta og vonandi finnst eitthvað við allra hæfi á hverjum degi. Ymsar ferðir verða farnar bæði langar og stuttar. Undirtektir skáta um land allt hafa verið nokkuð góðarog má gera ráð fyrir að mikill fjöldi skáta safnist saman að Hreðavatni í sumar. Undirtektir erlendra skáta hafa verið einstaklega góðar. Þegar þessar línur eru skrifaðar er vitað um níu þjóðir, sem boðað hafa þátttöku, þar á meðal má búast við milli eitt og tvö hundruð frá Bretlandi. A mótsstað verður allt tilbúið til að taka á móti þátttakendum lielgina 25. og 26. júlí, en reiknað er með að félögin noti þá helgi til þess að koma upp búðum sínum og verði því verki lokið fyrir mótsetningu, sem mun fara fram um kl. 14,30 mánudaginn 27. júlí. Þá eiga einnig að vera komin upp Fró afhendingu aðaltjaldbúðaverðlauna 1966. Tryggvi Þorsteinsson tekur við úr hendi Ingólfs Armannssonar. öll mannvirki og oinberar byggingar móts- ins, svo sem símstöð, pósthús, banki, vatn, rafmagn og þess háttar, að hliðunum ó- gleymdum. I ráði er að bjóða út til félag- anna ýmis verkefni, og gætu þeir sem hafa áhuga fyrir einhverju ákveðnu verkefni sótt um það strax til „Landsmót skáta 1970“. Pósthólf 1247, Reykjavík. Mótsgjaldið hefur verið ákveðið kr. 2.300 og skal greiða kr. 500 í tryggingar- gjald með umsókn, en afganginn fyrir 1. júlí. Ymsum hefur þótt þetta gjald nokkuð hátt, en það skal tekið frarn að hækkunin frá síðasta móti gerir varla að vega upp þær verðhækkanir, sem orðið hafa síðan. Er því mótsgjald raunverulega aðeins lægra nú en þá. Sú nýbreytni hefur verið tekin upp í sambandi við greiðslu móts- gjaldsins, að samið hefur verið við Lands- bankann og útibú hans, sem tékur á móti greiðslu upp í mótsgjaldið og gefur kvittun fyrir. Getur því skáti, sem á kr. 100 í dag lagt þær inn í bankann sem greiðslu upp í mótsgjald. Vonandi verða margir til þess að notfæra sér þessa leið til að spara saman fyrir mótsgjaldinu. Takmarkið er að hvert einasta skátafélag á landinu eigi fulltrúa á landsmótinu 1970. Allir á landsmót í sumar. Marinó Jóhannsson, mótsstjóri. SKÁTINN — 7

x

Skátinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátinn
https://timarit.is/publication/929

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.