Dagsbrún - 01.05.1989, Qupperneq 11

Dagsbrún - 01.05.1989, Qupperneq 11
Páll Valdimarsson skrifar: STAÐA DAGSBRÚNARINNAN VERKALÝÐSHREYFINGARINNAR Staða Dagsbrúnar hefur lengi verið sterk. Ýmislegt bendir þó tU að hún sé að veikjast. Það er verulegt áhyggjuefni einmitt þegar viðfangsefni nánustu framtlðar krefjast sterkrar Dagsbrúnar. Dagsbrún hefur ávallt haft mjög sterka stööu innan verkalýöshreyfingarinnar. Þrjár ástæður hafa þar ráðið úrslitum öðrum fremur. í fyrsta lagi er Dagsbrún mjög fjölmennt félag, sem er byggt á traustum grunni. í öðru lagi er félagið mjög sterkt í þeim skilningi, að félags- menn þess starfa í mörgum mikilvæg- ustu og viðkvæmustu atvinnugreinum landsmanna, þannig að verkfallsvopn okkar er beittara en flestra annarra. í þriðja lagi hefur Dagsbrún notið starfskrafta sumra hæfustu forystu- manna íslensks verkalýðs; manna, sem hafa verið miklir áhrifamenii innan mið- stjórnar ASÍ, þingmenn og formenn Verkamannasambandsins. Þessar þrjár ástæður hafa í samein- ingu gert Dagsbrún að afli, sem við- semjendur þess ættu réttilega að virða og óttast. Ég hygg þó, að ýmislegt bendi til þess að nú þegar sé farið að draga úr þessum styrk. Dagsbrún á ekki lengur fulltrúa á Alþingi og formaður Dags- brúnar hefur lýst yfir, að hann muni ekki gefa kost á sér aftur til embættis formanns Verkamannasambandsins á hausti komanda. Sameiginlegir hagsmunir Að mínu mati væri það óheillavænleg þróun, bæði fyrir Dagsbrún og Verka- mannasambandið, ef nýr formaður sam- bandsins kæmi ekki úr röðum Dags- brúnarmanna. Hér kemur margt til. í fyrsta lagi er Dagsbrún fjölmennasta félag sambandsins, þó það eitt gefi ekki sjálfvirkt tilefni til formannssætis. Meira kemur til. Dagsbrún hefur sterkustu verkfallsstöðu allra félaga sambandsins og samningar við félagið hafa iðulega verið mótandi fyrir önnur félög. Þá hygg ég, að mikilvægt í þessu sambandi sé sú staðreynd, að Dagsbrún gæti á allra næstu árum beitt-sér fyrir málum, sem ekki snerta aðeins félagsmenn þess, heldur einnig alla verkalýðshreyfinguna og forsenda árangurs er náin og góð samvinna Dagsbrúnar og Verkamann- asambandsins. Hagsmunir sambandsins og Dagsbrúnar fara því saman. Á allra næstu árum verður Dagsbrún að beita sér fyrir mikilvægum baráttu- málum, sem að mörgu leyti eru af öðr- um toga spunnin en þau, sem hingað til hafa verið í brennidepli. Nokkur dæmi um þetta: Helstu framtíðarverkefni Að fá þá staðreynd metna að verðleik- um, að verkamannavinna nútímans er að lang stærstum hluta orðin sérhæfð verkamannavinna. Tækniframfarir síð- ustu ára hafa alls ekki skilað sér til laun- þega þrátt fyrir að starf verkamannasins sé nú farið að krefjast bæði þekkingar og ákveðinnar ábyrgðar, sem áður var ekki farið fram á. Starf hafnarverka- mannsins er t.d. mjög nærtækt dæmi. Þessi grundvallarbreyting á eðli verka- mannastarfsins hefur alls ekki verið metin að verðleikum í kaupi eða öðrum kjörum. Að vinna markvisst að því að félags- menn Dagsbrúnar geti lifað mannsæm- andi lífi af dagvinnunni einni ekki síðar en um næstu aldamót og ná þannig sömu kjörum og starfsbræður okkar í Evrópu náðu fyrir nokkrum áratugum. Að vinna að sameiningu Dagsbrúnar og verkakvennafélagsins Framsóknar, sem hlýtur að vera sjálfsögð leiðrétting á alvarlegri tímaskekkju, sem var verj- anleg í upphafi þessarar aldar en alls ekki í lok hennar. Slíkt sameinað félag yrði án nokkurs efa sterkasta verkalýðs- félag landsins. Sterk Dagsbrún er forsendan Hér hef ég aðeins nefnt þrjú atriði af fjölmörgum, sem Dagsbrún þarf að beita sér fyrir, bæði beint við viðsemj- endur sína svo og innan verkalýðshreyf- ingarinnar. Hagsmunir félagsins og Páll Valdimarsson er verkamaður hjá Reykj- avíkurborg. Hann á sæti í varastjóm Dagsbrún- ar. Verkamannasambandsins fara hér aug- ljóslega saman. Sterk Dagsbrún er forsenda þess, að íslenskir verkamenn geti lifað mannsæmandi lífi. Að mínu mati eru þau baráttumál, sem Dagsbrún gæti beitt sér fyrir á allra næstu árum svo mikilvæg, að það er nauðsynlegt að styrkja félagið þannig að það verði jafn áhrifamikið innan verkalýðshreyfingar- innar og það hefur verið. tJÖ- VEHX1ESL4 -góð vöm gegn veróhækkuiium DAGSBRÚN 11

x

Dagsbrún

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/936

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.