Dagsbrún - 01.05.1989, Side 16

Dagsbrún - 01.05.1989, Side 16
ERT ÞÚ AÐ TAPA RÉTTINDUM? LÍFEYRISSJÓÐUR Dagsbrúnar og Framsóknar hefur nú sent öllum félögum sínum yfirlit yfir lífeyrissjóðsiðgjöld á árinu 1988. Allt verkafólk, sem vann á félagssvæði Dagsbrúnar og Framsóknar á síðasta ári, á að hafa fengið slíkt yfirlit. HAFIR ÞÚ EKKI fengið yfirlitið eða ef því ber ekki saman við launaseðla og/eða launamiða vegna skattframtals 1989, kunna iðgjöld þín að vera í vanskilum. Þá skaltu hafa samband við skrifstofu sjóðsins eða skrifstofur Dagsbrúnar eða Framsóknar. VIÐ VANSKIL á greiðslum iðgjalda til lífeyrissjóðsins og sjóða Dagsbrúnar og Framsqknar geta menn átt á hættu að tapa dýrmætum réttindum. Þar á meðal má nefna: Ellilífeyri Örorkulífeyri Makalífeyri Barnalífeyri Slysabætur Líftryggingu Rétt til húsnæðisláns GÆTTU RÉTTAR ÞÍNS! í lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda nr. 55/1980 segir meðal annars: „Öllum launamönnum og þeim, sem stunda atvinnurekstur eða sjálf- stæða starfsemi, er rétt og skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði viðkom- andi starfsstéttar eða starfshóps...Atvinnurekendum er skylt að halda eftir af launum starfsfólks síns iðgjaldshluta þess og standa viðkomandi lífeyrissjóði skil á honum ásamt mótframlagi sínu...“ Fylgstu með greiðslu iðgjalda þinna! Lífeyrissjóður Dagskrúnar og Framsóknar, Suðurlandsbraut 30, Reykjavík sími 84399 Verkamannafélaglð Dagskrún, Lindargötu 9, Reykjavík sími 25633 Verkakvenafélaiii Fraastki, Skiphotti 50A, Reykjavík simi 688930 16 DAGSBRÚN

x

Dagsbrún

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/936

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.